Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1933, Qupperneq 117
ÁRSÞING
93
Skýrsla íþróttafélagsins Fálkinn.
Félagið hefir starfað þetta ár og haft
margskonar íþróttaiðkanir með höndum.
Samvinna meðlima hefir verið mjög góð
og almennur áhugi fyrir málefnum fé-
lagsins mjög mikill. Fimleikaæfingar eru
tvö kvöld í viku hverri og lítur Mr.
Gordon Ackland eftir þeim að mestu
leyti. Gefur hann tima sinn til þess alveg
Jkeypis.
I sumar sem leið tók félagið þátt i
“Baseball’ ’leikum, æfði þrjá flokka ungra
íslendinga er áhuga hafa fyrir þeirri í-
þrótt. Fóru þær æfingar fram í Sargent
Park hér i Winnipeg. Einnig æfði félagið
flokk manna er kepti í “Intermediate
Diamond Baseball League of Manitoba”.
Gerði sá flokkur svo vel að um tíma var
útlit fyrir að hann mundi vinna sigur í
samkepninni. En leikslok urðu þau að
hann tapaði í síðasta leik. Var þessi
flokkur “Fálkanna” álitinn einn af þrem-
ur bestu “Baseball” flokkum í Winnipeg.
Aðal starfsemi félagsins á þessu ári
hefir verið hockey-leikar. Má segja að
aldrei hafi verið eins mikill áhugi Islend-
inga eldri og yngri — fyrir hockey síðan
á frægðardögum gömlu “Fálkanna”, sem
þennan vetur.
Félagið hefir starfrækt þrjá hockey-
flokka í vetur, sem hafa kept í Juvenile,
Junior og Intermediate hockey-flokkum
Winnipeg borgar.
Hafa þessir flokkar gert svo vel á þess-
um eina vetri að tveir af þeim hafa kom-
ist í úrslita samkepni (finals). Einnig
hefir félagið leigt Wesley-skautahringinn
einu sinni á viku hverri í allan vetur fyrir
unglinga til að æfa hockey.
Margir ungir og efnilegir Islendingar
hafa tekið þátt í leikum þessum, er búast
má við miklu af í framtíðinni og er það
von félagsins að árangur þeirrar starf-
semi verði sá ,að hér rísi með tímanum
upp aðrir “Fálkar” er með fræknleik sin-
um beri hróður Islendinga um allar jarðir.
I sumar er ákveðið að koma upp
tveimur “Baseball” flokkum, líkt og i
fyrra, sem sé; einum í “Senior League”
og öðrum í “Intermediate League” Win-
nipeg borgar. Leikvöllur félagsins verður
sá sami og áður, Sargent Park, Vonar
félagið að árangur þeirra starfsemi verði
sá að "Fálkarnir” verði hlutskarpastir
allra flokka hér i Winnipeg, næsta sumar,
i þessari alþektu og vinsælu íþrótt.
Pete Sigurðsson, forseti.
Þá lagði Iþróttamálsnefndin fram svo-
hljóðandi álit:
íþróttamál (Nefndarálit)
1. Nefnd sú er útnefnd var til að í-
huga íþróttamál leggur til að skipaður
sé einn maður úr stjórnarnefnd Þjóð-
ræknisfélagsins og að tveir séu kosnir af
þingheimi sem milliþinga Iþróttamála-
nefnd.
2. Nefnd þessi hefir með höndum öll
íþróttamál og er fulltrúi félagsins í
“Hockey” samkepni um verðlauna bik-
ar félagsins.
3. Leggur nefndin til að Þjóðræknis-
félagið sýni sambandsfélaginu “Fálkun-
um” viðurkenning fyrir hinu áhrifamikla
starfi þess á síðast liðnu ári með fjár-
veitingu.
4. Nefndin mælir með að stjórnar-
nefnd Þjóðræknisfélagsins fari þess á leit
við íslenzku blöðin að þau haldi uppi
dálkum um íþróttamál og þroskun íþrótta
meðal Islendinga.
C. Thorlaksson
Ragnh. Davíðsson
Walter Jóhannsson
Árni Eggertsson gerði tillögur er G. P.
Magnússon studdi að nefndarálitið sé
viðtekið. Samþykt.
I Iþróttanefnd skipaði forseti þá:
Walter Jóhannsson og
Jack Snydal.
Þá var tekin fyrir 4. liður nefndar-
álitsins um Sjóðstofnanir. Benti forseti
á, að frá því máli hefði verið gengið á
þingi, 1929. Gerði Dr. Rögnv. Pétursson
tillögu er Miss Hlaðgerður Kristjánsson
studdi, að 4. liður álitsins sé feldur. Sam-
þykt. Var þá nefndarálitið í heild borið
undir atkvæði, með áorðnum breytingum
og samþykt.
1 milliþinganefnd í Rithöfundasjóðmál-
inu, var stungið upp á:
Jónasi Jónassyni
Jóni Kemested og
G. J. Oleson.
Var útnefning þeirra samþykt.