Vísir - 24.12.1939, Side 47

Vísir - 24.12.1939, Side 47
VÍSIR 41 eg er svo glöð, að mér finst eg sjálf vera að opinbera. Hún settist en Daníel tók upp tvo hringa og dró annan á fing- ur Önnu, en hinn setti hann á fingur sér. Gestirnir stóðu upp og óskuðu hjónaefnunum til hamingju. Anna tók þessu með mestu ró, brosti blitt, hætti sér út í vafasamar samræður, en varað- ist að skrökva. Hún lék hlut- verk sitt betur en nokkur Holly* wood-stjarna, þangað lil Daníel kveikti á jólatrénu og settist svo við slaghörpuna og byrjaði að spila og syngja jólasálma. Allir tóku undir nema Anna. Hún gekk að glugganum og horfði út. Það var hætt að rigna. Tunglið gægðist niður á milli skýjanna og nokkrar stjörnur blikuðu hér og hvar á dökkblá- um himninum. Jólástjörnur, liugsaði hún, og á morgun verð- ur ef til vill kominn jólasnjór. Á morgun — --------þá var æf- intýrið horfið, eins og dýrðleg- ur draumur, og hún alein heima. Á miðnætti buðu gestirnir góða nótt og fóru. En Anna fór upp á loft til þess að hafa fata- skifti. — Við ætlum nefnilega að ganga heim, sagði hún við „tengdamóður“ sina. — Jæja, börnin mín, sagði gamla konan. — Þið ráðið því. En látið ykkur þá ekki verða kalt. Þegar þau voru tilbúin að fara, tók gamla konan loðkápu út úr skápnum i andyrinu og sagði: — Gjörðu svo vel, góða mín og farðu í þessa kápu. Þér get- ur orðið kalt i svona þunnri regnkápu, því nú er vist farið að frjósa. Anna ætlaði að mótmæla þessu, en komst ekki að fyrir gömlu konunni. — Unnur átti kápuna, hún fór að eins einu sinni í liana. Verið þið sæl á meðan, börnin mín. Þú kemur aftur á morgun, er það ekki? Eg þarf að hafa ungt fólk í kringum mig. Góða nótt, Danni minn —eg verð víst sofnuð þegar þú kemur aftur. Góða nótt, vina mín. — Siðan kysti hún Önnu á ennið og tár blikuðu i augum hennar. Þá fékk Anna samviskubit. Hún skammaðist sín fyrir það, að þurfa að slcrökva að þessari góðu og einlægu konu. Hún á- sakaði sjálfa sig fyrir léttúð sína og Daníel fyrir brellurnar. Þau gengu þegjandi dálítinn spöl, svo sagði hann: — Þér hafið gert mér ómet- anlegan greiða. —- Og orðið völd að sorg yðar, sagði Anna lirygg. — Hvað eigið þér við? — Bréfið. Það hlýtur að vera vegna þess, sem þér urðuð að biðja mig að leika í þessum skopleik. — Iivernig vitið þér um bréf- ið? — — Það var einmitt vegna bréfsins, sem eg kom. Hvað hélduð þér að eg væri annars að gera i ókunnugt hús á að- fangádagskvöld ? — Já, auðvitað. Hann kinkaði kolh og sagði svo eftir augna- bhks þögn: — Eg hugsaði ekk- ert um það, livert erindið hefði verið, þvi eg var svo hissa og glaður, þegar eg sá yður standa á tröppunum. Eg varð sann- færður um að jólasveinninn hefði sent yður til mín, til að gleðja mömmu. Öll jólagleði hennar hefði breyst i sorg, ef eg hefði sagt henni hvernig komið var. Inga kom liingað í gær til þess að dvelja hér um jóhn og kynnast mömmu. Við kyntumst í fyrra austur i Fljótshlið, en þar á Inga heima. Hún hefir á- kaflega gaman að blómum og þessvegna keyph eg blómakörfu i dag og ætlaði að láta senda hana til liennar. En af því eg hafði ekki nafnspjald á mér, lét eg senda liana heim til mín. Seinna fékk eg litinn dreng til þess að fara með hana. Þegar eg nú i kvöld kom til Ingu, var hún ferðbúin, en ekki til þess að fara með mér, held- ur öðrum manni, sem beið eft- ir henni. Er eg spurði um ástæðunar réth hún mér þetta bréf, og. sagðist í raun og veru gleðjasl yfir því, að svona skyldi fara. Og þar sem eg væri nú giftur annari, ætlaði hún hka að gift- ast öðrum, sem liún elskaði — þó bláfátækur væri. — Mér þykir afar leiðinlegt, að þetta skyldi koma fyrir, og það er alt liirðuleysi mínu að kenna, sagði Anna. Og nú sagði liún honum upp alla söguna. — Ef til vill er ekki of seint að laga þetta. Ef þér viljið, skal eg koma með yður til stúlkunn- ar og sannfæra hana um mis- skilninginn. Máske hefir hún slegið þessu fram i augnabliks geðshræringu. Henni lilýtur að þykja vænt um yður. — Haldið þér það? — Já, eg efast ekki um það. — Hversvegna? — Það veit eg ekki, eg held það bara. — Nei, þalík’ yður fyrir. Við skulum ekki fara til Ingu; það er sjálfsagt best að svona fór. Mamma hefði hvort eð er aldrei getað felt sig við hana. En yð- ur kann hún vel við, það held eg að mér sé óhætt að segja. — Já, en það er hræðilegt, að skrökva að henni. Eg skamm- ast min, og það ættuð þér lika að gera. — Hversvegna má mömmu ekki þykja vænt um yður? — Jólasveinninn sendi yður til mín, og einhver liefir tilgang- ur hans verið með þvi. Og þér lofuðuð mömmu að koma á morgun, og það er ljótt að svíkja loforð sin. —■ Eg ’.ofaði alls ekki neinu. Eg fyrirlít mig og yður, — þvi það er yður að kenna, að eg hefi komið fram sem svikari á jafn heilögu kvöldi og nú. — Já — en Inga----------æ — — nei, eg meina — — — — Eg heiti Anna Ingólfsdótt- ir. — 10■■■■■■■■■■■■■■■ ■ M M a M k GLEÐILEG JÓL! M M ■ ■ ■ Versl. Drífandi. >ÖÍXÍOOOO!SOOOOOOOÍJÍiaOOS5«ÍOQS GLEÐILEG JÓL! Prentmyndagerðin Ólafur J. Hvanndal. g SOOS SOOOO! SOOOOOOOSS! ÍOOOO! SOO! — Anna, þér gleymið þvi, að bréfið á sökina. En hvað gerir þetta til? Við erum bæði skips- brotsmenn ástarinnar. Forsjón- in hefir hagað því svo til, að við höfum bæði lent á sama flekan- um. Þar erum við neydd til að vera, þangað til ákveðið er, hvort eigi að sökkva okkur í hið ólgandi djúp, eða leiða í höfn. Er nokkuð þvi til fyrir- stöðu, að við ákveðum sjálif,, hvor leiðin verður vahn? Þau staðnæmdust og störðu þegjandi hvort á annað dáhtla stund. Svo brosti hún og kink- aði kolli til samþykkis. — — — Stjörnurnar blikuðu, tunglið skein skært og töfrandi. Það var komið frost og snjór var i lofti. Jólin voru komin. GLEÐILEG JÓIJ Skóbúð Regkjavíkur. GLEÐILEG JÓL! Húsgagnaverslun Reykjavíkur, Vatnsstig 3. GLEÐILEG JÓL! Jónas Bergmann, Reykjavíkurveg 19. SOOS SOOOO! SOOOOOOSÍO! SOOOO! SOSS! 25 52 2« 8 GLEÐILEG JÓL! S a n i t a s. 25 ■SSOOQOOOOOOOOSSOOOOOtSOOS M M m GLEÐILEG JÓL! M M GLEÐILEG JÓL! M M Tóbaksverslunin Versl. Havana. London. M ■ M 11

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.