Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 61
Félagsmál VFÍ/TFÍ 59
Orðanefndin sótti um aðild að Hagþenki - Félagi höfunda fræðirita og kennslugagna.
Umsókn hennar var synjað á þeirri forsendu að félagsaðild væri bundin einstaklingum, en
nefndin var sett á póstlista félagsins.
I ferð til Færeyja vorið 1999 færði formaður Orðanefndarinnar Landsbókasafni Færeyja
og Magnúsi Daníelssyni, prófessor við Fróðskaparsetur Færeyja, íslenskt-enskt/enskt-íslenskt
raftækniorðasafn að gjöf frá ORVFI. Að venju hafa ýmsum stofnunum og einstaklingum eða
orðanefndum hérlendis verið færðar nýútkomnar bækur Orðanefndarinnar að gjöf í þakk-
lætisskyni eða í bókaskiptum.
IÐNU gaf Orðanefndinni höfðinglegar gjafir í desember 1999. Um var að ræða íjölda
útgáfubóka forlagsins um rafmagnsfræði, eðlisfræði o.fl., alls 13 kennslubækur og
íðorðabækur. ISAL færði Orðanefndinni að gjöf tvö eintök af íslensku álorðasafni, sem
fyrirtækið gaf út 1999. íslcnsk málstöð gaf nefndinni Hagfræðiorðasafn, ril íslenskrar mál-
nefndar nr. 12, útgefið 2000.
Um áramótin 1999/2000 keypti ORVFÍ geisladisk með orðasafni 1EC hjá Staðlaráði.
Orðanefndin keypti nýja útgáfu af orðasafni Alþjóðlega orkumálaráðsins, WEC; Energy
Dictionaiy. 1 því eru um 2000 hugtök á sviði orkumála. Ef ORVFÍ ræðst i þýðingu og útgáfu
þessa verks bíður hennar feiknarmikil vinna.
Aðalfundur RVFI 2000 ákvað að ekki væri ástæða til að aðalfundur kysi menn árlega í
orðancfnd deildarinnar, heldur sæi nefndin sjálf um að velja sér samverkamenn. Áður hafði
nefndin óskað eftir því, að Gunnar Ámundason rafmagnsverkfræðingur aðstoðaði nefndina
við lokayfirferð kaflans um rafvélar í Raftækniorðasafni 8. Nefndin hefur iðulega áður leitað
til sérfræðinga með ósk um liðsinni þeirra á sérfræðisviði hvers og eins. Að samkomulagi
varð að Gunnar starfaði áfram sem nefndarfélagi.
Að gefnu tilefni var rætt um málfar fyrirlesara á fundum í VFÍ og RVFÍ. Gera verður þær
kröfur til fyrirlesara að þeir sýni fundarmönnum þá virðingu að undirbúa sig sómasamlega
undir fyrirlestra sína og flytja þá með því málfari, að mönnum sé ekki misboðið. Gera má
þá kröfu að íslenskur fyrirlesari kynni sér íslenskt málfar um það efni, sem hann hyggst
flytja. Þar kemur Raftækniorðasafn að góðu gagni.
í Orðanefnd RVFÍ eru rafmagnsverkfræðingarnir Bergur Jónsson formaður, Gísli
Júlíusson, Gunnar Ámundason, ívar Þorsteinsson, Jón Þóroddur Jónsson, Sigutður Briem,
Sæmundur Óskarsson, Þorvarður Jónsson og rafmagnstæknifræðingarnir Guðmundur
Guðmundsson og Hreinn Jónasson. Auk þess starfar Baldur Sigurðsson lektor við KHÍ með
nefndinni sem sérfræðingur og ráðgjaft um íslenskt mál.
Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga
Bergur Jónsson formaður
(Texti styttur)