Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 138
136 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
Á árinu var kveðinn upp úrskurður Skipulagsstofnunar vegna umhverfísmats um námu-
vinnslu í Syðriflóa Mývatns. Þar var fallist á ósk Kísiliðjunnar um námuvinnslu á Bolum á
svokölluðu svæði tvö með nokkrum skilyrðum. Umhverfisráðherra staðfesti síðan úrskurð
Skipulagsstofnunar í öllum meginatriðum. Með þcssunr úrskurði er vcrksmiðjunni tryggt
hráefni til 20 ára vinnslu sem er lengri vinnslutími en legið hefur fyrir síðustu 20 árin.
íslenska járnblendifélagið hf.
Árið 2000 var fyrsta árið sem íslenska járnblendifélagið var með þrjá ofna í rekstri allt árið.
Framleiðslan var 108.400 tonn af 75% kísiljámi og 28.000 tonn af kísilryki. Þetta var um
50% aukning á framleiðslu frá fyrra ári. Jafnframt var aukin framleiðsla á verðmeiri
afurðum, einkum hreinsuðum málmi sem var um 23% af heildarframleiðslu. Markvisst var
unnið að öryggismálum á árinu og fækkaði vinnuslysum umtalsvert frá fyrri árum. Miklir
erfiðleikar voru í rekstri rafskauta fyrri hluta ársins. Sala á afúrðum var góð allt árið, bæði
á kísiljárni og kísilryki. Verð á kísiljárni var mjög lágt allt árið eins og árið áður.
Gengisþróun var félaginu einnig óhagstæð. Á fyrri hluta ársins var hlutafé félagsins aukið.
I september var starfsmönnum fækkað en það var liður í margþættum aðgerðum til að lækka
rekstrarkostnað við erfíðar markaðsaðstæður og óhagstæða afkomu.
Sementsverksmiðjan hf.
Sementssalan varð um 143.300 tonn, sem er um 9,5% aukning frá árinu áður. Þetta er mesta
árssala síðan 1976. Mikil umsvif voru í flestum eða öllum þáttum framkvæmda og fram-
leiðslu þar sem sement kemur við sölu.
Miðað við umsvif fyrirtækisins hefði mátt vænta betri rekstrarafkomu en ýmsir þættir,
sem hafa áhrif á hana, voru fyrirtækinu óhagstæðir eins og mörgum öðrum fyrirtækjum á
síðasta ári. Sementsverð var að meðaltali um 7% lægra en árið áður. Framleiðslugeta
brennsluofns var nýtt að fullu en að auki þurfti að flytja inn um 13.200 tonn af gjalli.
Steinullarverksmiðjan hf.
Tekjur Steinullarvcrksmiðjunnar hf. námu u.þ.b. 693 milljónum króna á árinu 2000 og var
hagnaður um 88 milljónir króna, miðað við 108,8 milljóna króna hagnað árið áður. Minni
hagnað má að mestu rekja til þess að uppsafnað rekstrartap fyrri ára var að fullu nýtt og
hækkuðu skattar fyrirtækisins því um 15,4 milljónir og námu 42,6 milljónum króna.
Fleildarsala fyrirtækisins varð 182 þúsund rúmmetrar, sem er um 6% meira en árið áður,
og er þetta mesta sala frá upphafí rekstrar árið 1985. Sala á innanlandsmarkaði nam um 121
þúsund rúmmetrum, sem er um 4,5% aukning frá fyrra ári. Út voru fluttir um 61 þúsund
rúmmetrar, sem er u.þ.b. 11% aukning milli ára. Sem fyrr er mest flutt út til Bretlands og
Færeyja.