Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 141
2.7
Samgöngur
Vegamál
Bifreiðaeign: Samkvæmt upplýsingum frá Skráningarstofunni hf. voru nýskráðar fólks-
bifreiðar 14.802 á árinu 2000 á móti 17.018 árið áður sem samsvarar 13% færri skráningum.
A sarna tíma voru nýskráðar 133 hópferðabifreiðar á móti 118 árið áður sem svarar til 12,7%
aukningar. Nýskráðar vöru- og sendibifreiðar voru 2.189 á árinu 2000 en voru 1.854 árið
áður og er aukningin 18%.
Bensíngjald: Bensínsala á árinu 2000 nam rúmlega 180 milljónum lítrum og var salan 0,8%
minni en á árinu 1999. Innheimtar tckjur af bensínsölunni, þ.e. bensíngjaldið, voru 5.430
m.kr. árið 2000. Það er 253 m.kr. minna en tekjuspá vegaáætlunar gerði ráð fyrir eða um
4,5% minni tekjur.
haö má því segja að aukningin í bilreiðacign landsmanna skili sér ekki í aukinni bensín-
sölu. Astæðurnar má líklega rekja til þess að meðalakstur á bifreið fer minnkandi með
aukinni bifreiðaeign og að nýjar bifreiðir eru með sparneytnari vélar en þær eldri.
Aðalástæðan er samt líklega sú að díselbifreiðum, einkum díselfólksbifreiðum, Qölgar hlut-
fallslega rneira en bensínbifreiðum og hefur sú þróun verið undanfarin ár. Fjölgun bens-
ínbifreiða á árinu var 3,7% á meðan díselbifreiðum ijölgaði um 14,8%. Bensínbifreiðir eru
þó enn í miklum meirihluta í landinu og voru 84% af bifreiðaeign í átslok 2000, en til
samanburðar var þetta hlutfall 88,9% í árslok 1994. Bensíngjald var ekki hækkað á árinu
2000 og hefur ekkkert hækkað frá 1. júní 1999.
Þungaskattur: Innheimtar tekjur af kílómetragjaldi námu alls 2.480 m.kr. á árinu 2000.
Tekjuspá hljóðaði upp á 2.258 m.kr. og voru því innheimtar 222 m.kr. meira en gert var ráð
fyrir. Innheimt árgjald þungaskatts var um 2.065 m.kr. en tekjuspá vegáætlunar hafði ein-
ungis gert ráð fyrir 1.707 m.kr., þannig að tekjurnar af árgjaldinu reyndust töluvert meiri en
áætlað var. Þessa aukningu í árgjaldi þungaskatts má skýra með auknum bifireiðainnflutningi
og því að hlutdeild díselbifreiða í bifreiðaeign landsmanna fer vaxandi. Einkum er þar um
að ræða stærri fólksbifreiðir, s.s. jeppa, cn minni díselfólksbifreiðir eru cnn ekki vænlegur
kostur fyrir bifreiðaeigendur þrátt fyrir að neðslu flokkarnir í föstu árgjaldi þungaskatts hafi
í raun verið lækkaðir undanfarið.
Á árinu 2000 voru gerðar breytingar á lögum um fjáröflun til vegagerðar, þ.e. þunga-
skalli kílómetragjalds. K.ílómetragjald var hækkað en á móti því var fellt niður 100 þúsund
króna árgjaldið. Auk þcss var afsláttur af akstri umfram 95 þúsund kílómetra felldur úr gildi.
Þessar brcylingar voru gerðat' í kjölfar þess að Samkcppnisstofnun úrskurðaði að hclstu
brcytingar sem gerðar voru árið 1998 á lögum um íjáröflun til vegagerðar brytu í bága við