Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Side 201
Kynning og vísindagreinar fyrirtækja og stofnana 199
Viðnámsmælingar til könnunar djúpstæðra háhitakerfa
Sú hugmynd hefur þróast á undanförnum árum aö hugsanlega megi vinna háhita innan gos-
beltanna utan þekktra grunnstæðra háhitakerfa. Reynist það rétt kann að leynast margfalt
meiri orkuforði í gosbeltununa en talið hefúr verið, en hann mun þó verða að sækja á meira dýpi.
Þar sem jarðhiti hefur veruleg áhrif á rafleiðni bergs hafa viðnámsmælingar reynst
notadrýgstar til að leita að og kortleggja háhitakerfí. Þær aðferðir, sem einkum hefur verið
beitt til þessa, „sjá“ niður á um l km dýpi og geta því einungis fundið og kortlagt tillölulega
grunnstæða jarðhitavirkni og efsta hluta jarðhitakerfanna. Til að kanna jarðhitavirkni dýpra
í jörðu er því þörf á aðferðum sem séð geta niður á meira dýpi.
Arið 1999 var að frumkvæði Orkustofnunar hleypt af stokkunum íjölþjóðlegu samvinnu-
verkefni til að þróa og prófa viðnámsmæliaðferðir sem séð geta niður á um 1-5 km dýpi.
Þátttakendur í verkefninu eru, auk Orkustofnunar, Alþjóða jarðhitastofnunin í Pisa á ltalíu,
Háskólinn í Frankfurt og Háskólinn í Köln í Þýskalandi, Uppsalaháskóli í Svíþjóð,
Háskólinn í Edinborg í Skotlandi og Háskólinn á Akureyri. Auk framlaga þátttakenda er
verkefnið styrkt myndarlega af Tæknisjóði Rannís, Landsvirkjun, Orkuveitu Rcykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja.
Verkefnið skiptist í þrjá áfanga á jafnmörgum árum og er fyrstu tveimur áföngunum
lokið. 1 fyrsta áfanga ver beitt fræðilegum athugunum og líkanreikningum til að kanna og
meta dýptarskynjun og greiningarhæfni mismunandi viðnánismæliaðferða. í öðrum áfanga
voru gerðar tilraunamælingar þar sem beitt var samtímis mismunandi aðferðum í þeim til-
gangi að geta borið árangur þeirra saman. Tilraunamælingarnar voru gerðar haustið 2000,
meðfram Þrengslavegi. Það svæði var valið því það er innan gosbellisins og á milli háhita-
kerfanna undir Hengli og Hellisheiði í austri og Brennisteinsfjalla í vestri.
I lokaáfanga verkefnisins, sem unninn var árið 2001, fer fram úrvinnsla mæligagna frá
hinum mismunandi aðferðum og þau eru túlkuð yfír í viðnámsskipan niður á um 5 km dýpi.
Arangur og niðurstöður mismunandi aðferða verða bornar saman og mat lagt á hvaða
aðferð, eða samsetning aðferða, hentar best lil að kortleggja háhitakerfí djúpt í jörðu.
Erlendir og íslenskir vísindamenn sem standa að verkinu: Graham Dawes, Edinborg; Rainer
Bergers, Köln; Hjálmar Eysteinsson, Orkustofnun; Val Valiant, Edinborg; Knútur Árnason,
Orkustofnun; Adele Manzelia, Pisa; Behrooz Oskooi, Uppsölum, og Ingvar Þór Magnússon,
Orkustofnun.