Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 229
Kynning og vísindagreinar fyrirtækja og stofnana 227
Flugöryggismál og eftirlit með öllum þáttum flugsins eru í stöðugri þróun. Miklar
breytingar hafa orðið á reglum og umgerð þessara mála nokkur síðastliðin ár og rniklar
breytingar á allri framkvæmd eftirlitsins. I þessari grein verður íjallað um eftirtalin atriði
sem varpa vonandi einhverju Ijósi á hvernig staðið er að framkvæmd (lugöryggismála hér-
lendis:
1. Hlutverk flugöryggissviðs Flugmálastjórnar
2. Meginferli eftirlits
3. Aðgangsstjórnun
4. Samfellt eftirlit
5. Flokkun frávika sem koma fram við eftirlit
6. Dæmi um sértæka greiningu
7. Þróun flugöryggissviðs Flugmálastjórnar
Hlutverk flugöryggissviðs Flugmáiastjórnar
Eftirlitshlutverk Flugmálastjórnar er skilgreint í reglugerð nr. 441/1997. Þar segir:
„Flugmálastjórn Islands hefur eftirlit með því að lögum, rcglugerðuni og fyrirmælum um
flugrekstur sé framfylgt, með sérstakri áherslu á flugöryggi." Island er aðili að
Alþjóðaflugmálastofnuninni (lnternational Civil Aviation Organization - ICAO), sem er ein
af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Islendingar hafa verið aðilar að stofnuninni frá upphafi,
en hún varð til með undirritun Chicago-samningsins árið 1944.
Flug í heiminum byggist á stöðlum/reglum sem ICAO gefúr út og birtast í viðaukum
(Annexes) við stofnsamninginn. Flest lög og reglugerðir um flugmál á Islandi byggjast á
stöðlum/reglum ICAO og nánari útfærslu á þcim. Flugmálastjórn ber að framfylgja og hafa
eftirlit með að þeir sem málið varðar fari að lögum og reglugerðum um flutningaflug (far-
þegallug), þjónustuflug, einkaflug, viðhaldsstöðvar, flugskóla, útgáfu skírteina til llug-
manna og annarra, þjálfun og svo framvegis. Rekstraraðilar í flugi verða að sýna
Flugmálastjórn fram á að þeir uppfylli þær kröfur sem í reglunum felast. Það er grundvöll-
urinn að gagnkvæmri viðurkenningu milli landa.
ísland hefur einnig frá upphafí verið aðili að Flugöryggissamtökum Evrópu (Joint
Aviation Authorities - JAA) en þau voru stofnuð árið 1990 með það að markmiði að stuðla
að auknu flugöryggi í Evrópu. Tuttugu og fimm ríki eru fullgildir aðilar að samtökunum.
Flugöryggissamtökin hafa þróað og gefið út á þriðja tug regluverka, svo nefndra JARa (Joint
Aviation Requirements), sem flugmálastjórnir ríkjanna hafa skuldbundið sig til að koma á
heima hjá sér. Flugmálastjórn Islands hefur tekið þátt í þróun JAA-reglna um viðhald, flug-
rekstur, þjálfúnar- og skírteinamál og íylgst með þróun reglna um vottun flugvélategunda,
flugvélaframleiðanda og flugherma, svo fátt eitt sé nefnt. Þessar reglur eru í raun í fullu gildi
hérlendis þó svo lítið hafi reynt á þær þar sem engin framleiðsla er á loftförum né íhlutum
hér á landi. Við samningu reglna JAA er m.a. tekið mið af reglum Bandarísku flug-
málastjórnarinnar (FAA). Almennt má segja að því tæknilegri sem reglurnar eru því betur
eru evrópsku og bandarísku reglurnar samhæfðar, t.d. reglur um vottun íhluta
JAR21/FAR21. Eftir því sem reglurnar snúast meira um hæfni og réttindamál flugmanna
verða þær ólíkari. Sá meginmunur er þó á reglunum að í JAA-reglunum er krafa um innra