Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 259
Kynning og vísindagreinar fyrirtækja og stofnana 257
Með fjölgun starfsfólks urðu viðfangsefnin fjölbreyttari og má segja að síðastliðin tíu ár
hafí um helmingur starfsmanna starfað við hönnun og ráðgjöf varðandi stjómkerfí fyrir
verksmiðjur, virkjanir, sundlaugar, skip, veitur og fleira. Stjórnkerfi þau sem sett hafa verið
upp samanstanda af iðntölvum og skjákerfum. Skjákerfin eru unnin á hugbúnað frá Seven
Technologies í Danmörku sem nefnist IGSS. I notkun eru yfir 50 slík kerfi hér á landi og er
umhverfí notandans allt á íslensku. Hinn hluti starfsmannanna hefur starfað við hönnun
raflagna, lýsingar og loftræsikerfa í ýmsar gerðir nýbygginga svo sem skóla, íþróttahús,
verslunar- og skrifstofúhús af ýmsum stærðum
og gerðum.
Þá sá Raftákn um alla hönnun raflagna í
Hvalíjarðargöng, þ.e. alla þætti er lúta að raf-
magni. Raftákn sá einnig um hönnun lýsingar-
og rafkerfa fyrir Múlagöng, Strákagöng og
Vestijarðagöng. Hönnunarsamningur um
Héðinsíjarðargöng og Austfjarðargöng voru
undirritaðir í febrúar sl. Það er sérstök upphefð
fyrir starfsmenn Raftákns að hafa þannig
komið að hönnun rafkerfa í öllum göngum sem
bomð hafa verið á íslandi nema göng um .. , , ... , , „ „ , ,
° Myna ur skjamyndakerji Hvaljjarðarganga.
Viðurkenningar
Til gamans má geta þess að á DEGI LJÓSSINS sem haldinn er á vegunr Ljóstæknifélags
Islands, er efnt til samkeppni um lýsingarkerfi senr þykja til fyrirmyndar. Bæði árið 1991 og
1995 fengu verk sem Raftákn hafði með höndurn viðurkenningar.
A árinu 1998 hlaut Raftákn viðurkenningu Atvinnumálanefndar Akureyrarbæjar vegna
sérstaks framlags til atvinnulífs og nýsköpunar á Akureyri.
Samvinna Raftákns og Víkings
Á síðasta ári hófst samvinna Raftákns og Verkfræðifyrirtækisins Víkings í Reykjavík um
raflagnahönnun í nýbyggingar og ber þar helst að geta nýbyggingar íslenskrar erfða-
greiningar í Vatnsmýrinni. Nú hafa eigendur fyrirtækjanna ákveðið að skiptast á hlutabréfum
og frá áramótum 2001/2002 er Verkfræðifyrirtækið Víkingur rekið undir nafninu Raftákn
Reykjavík.
Með þessari ráðstöfun verður fyrirtækið sterkara og betur í stakk búið til að veita enn
betri þjónustu okkar tryggu viðskiptavinum auk þess að ráða við stærri verkefni.
Verkfræðifyrirtækið Víkingur
Verkfræðifyrirtækið Víkingur hf. var stofnað árið 1989 og hefur frá upphafi unnið við alla
almenna raflagnahönnun.