Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Síða 330
328 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
Tafla 3: Hlutfallslegt varmatap. nýtist
inn til hússins en qu tapast til umhverfts.
Tafla 4: Kólnun vatns í lögnum.
Hitastigsbreyting [°C]
?/ % % % Vegalengd [m] Rör 1 Rör 2 Rör 3 Rör 4
Rör 1 3,78 39,2 5,87 60,8 10 -0,119 -0,301 -0,118 -0,0002
Rör 2 3,08 39,2 4,78 60,8 100 -1,18 -2,95 -1,16 -0,0026
Rör 3 0,771 23,5 2,51 76,5 Hlutfallsleg 0,15% 0,38% 0,33% 0,004%
Rör 4 -0,941 1,23 kólnun á 10 m
Tafla 2 sýnir varmaflæði milli einstakra yftrborða líkansins. í töflu 3 er tekið saman
varmaflæði frá rörunum sem nýtist annars vegar inn til hússins eða sem tapast út til um-
hverfísins. Þar má sjá að heldur meiri varmi lapast út til umhverfis heldur en sá sem nýtist
inn til hússins. Þegar útreikningarnir voru endurteknir með hærra útihitastigi (-5°C) kom í
Ijós að þetta hlutfall hafði minnkað, þ.e. minni munur var á varmatapi inn og út. Þetta bendir
til þess að til sé krítískt útihitastig en fyrir ofan það kemur varminn til með að nýtast betur
til hússins.
Mynd 7. Kólnun vatns I hefðbundnu
lagnakerft. Tajla 4 inniheldur nákvœmar
upplýsingar um kólnunina.
Það sést á töflu 4 að við fullt rennsli er mjög
lítil kólnun í lögnunum. Það kemur einnig í ljós
að þó að kólnunin sé ekki línuleg er hún nálægt
því að vera það, a.m.k. á því bili sem um ræðir.
Ferillinn fyrir rör nr. 3 á mynd 7 sýnir að
hitastigið er lægst í byrjunarpunktinum (0 m)
og hækkar eftir því sem lengra er farið. Ekki er
um að ræða að vatnið hitni í lögninni heldur
rennur vatnið í röri 3 í öfuga átt miðað við hin
rörin. Upphafspunktur þess er því í 100 m.
Hlutfallsleg kólnun er reiknuð miðað við
0°C en ekki 20°C sem væri alla jafnan eðlilegra
(hita-stig vatnsins fer þá ekki niður fyrir inni-
hitastig). I þessu tilfelli er útihitastig nokkuð
lágt (-15°C) þannig að ljóst er að vatnið í lögn-
unum kólnar niður fyrir 20°C.
Rör-í-rör kerfi
Niðurstöður útreikninga á rör-í-rör kerfum eru á tvennan máta. Annars vegar athugun á yfir-
borðshita gólfs og hins vegar á varmatapi frá lögnum.
Yfirborðshiti
Yfirleitt er miðað við að yfirborðshitastig gólfs fari ekki yfir 30°C. Á mynd 8 c) sést að fyrir
lagnaaðferð 1 þá fer yfirborðshitastigið yfir 30°C þegar fjögur heit rör liggja saman. Með
Iagnaaðferð 2, þar sem rörin liggja við yfirborðið, fer yfirborðshitinn ekki yfir 30°C fyrir
þessi tilfelli sem athuguð voru. Það virðist sem kaldavatnsrörin hafi áhrif til lækkunar á yfir-
borðshita gólfsins. Það verður þó að taka fram að líkanið leyfir ekki varmaflæði niður um