Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Síða 370
368 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
völdu margir að nota „mixað gler“, þ.e. útloftaðar rúður og var sú bráðabirðalausn valin af
mér. Aðgerðin var þó látin duga í 30 ár, en að þeim tíma liðnum hafði íslensk framleiðsla
notið ráðgjafar Rb [8] og tekið stakkaskiptum. 20 ár eru liðin frá glerskiptum og hvergi hefír
komið fram galli á rúðu. Þetta er þó ekki annað en hinn almenni árangur, sem náðst hefir í
glerjun í byggingariðnaðinum, en rótin að framvindunni lá í þeirri aðstöðu, búnaði og vís-
indarannsóknum sem frá er greint í tilvitnuðu Rb-riti.
Klæðningin
Loksins var klæðningin ákveðin. Alcoa Siding, Super 40, - en nokkur saga fylgir.
Tæknilegar upplýsingar hafði ég séð i Sweets Catalogue, en þekkti ekkert til innkaupa-
reglna. Eg skrifaði því til Alcoa bréf og bað um innkaupaleiðbeiningar. Brátt kom svar til
baka ásamt klæðningabæklingi frá félaginu, en það hafði Evrópuumboðsmenn og lágmarks
heildsöluafgreiðsla var að mig minnir tvær milljónir dollara. Bréf mitt var því sent áfram til
Lausanne í Sviss. Þaðan kom svo umboðsmaður á leið sinni vestur um haf, sem gat bent mér
á aðila í Noregi, sem sæi um dreifíngu þar. Sá nefndist Elkem. Eg gat því skrifað staðlaða
pöntun fyrir allt efni í klæðninguna og valið innflytjanda til að fylgja pöntuninni eftir. E.t.v.
var þama stoínað til fyrstu viðskipta bæði við Alcoa og Elkem.
Eg ræddi nokkuð varanleika álklæðninga við Lausannc-fulltrúann, sem eðlilega hældi
vöru umboðsmanna sinna og benti á að jafnvel á hinu innbakaða lakki klæðningarinnar væri
25 ára ábyrgð. Þegar ég hafði tjáð honum misjafna reynslu af fyrstu álklæðningum á þökum
húsa hér við sjávarsíðuna, tókum við fljótt upp annað tal.
Jæja, klæðningin kom og með öllu sem til hennar heyrði. Henni var líka skcllt upp á
mjög stuttum tíma því svo vel var hugsað fyrir öllum uppsetningaratriðum og búnaði.
Láréttir startlistar neðst, negldir álnöglum eins og öll klæðningin út- og innhornaprófílum
komið fyrir, en síðan fyrsta borði smellt upp á startlistann og þá borð af borði.
31 ár er nú liðið frá uppsetningu klæðningarinnar, en á henni sjást engin merki um
endumýjunarþörf.
Viðhald á þaki
Svo sem áður er minnst á komu fram nokkrar skemmdir á bárujárnsklæðningu þaksins og
stöfuðu þær af tilraunum mínum með svartolíubrcnnslu í nokkur ár. Þetta kostaði nokkurt
viðhald, jókst með ámnum og lauk með endurnýjun á járninu 1992. Þá var nýtt járn neglt á
5 cm lista og milli þeirra settar steinullarmottur til hljóð- og aukinnar hitaeinangrunar.
Listarnir voru negldir beint á steypuna og kom þar neglanleiki og naglhald enn að gagni og
auðveldaði mikið verkið.
Sögulok
Hús em mannvirki en mannvirki em, eins og raunar liggur í orðsins hljóðan, minnisvarðar
um meistara sína, áræðni þeirra, elju og kunnáttu. Já svo er nú það, en þá hefí ég líka, með
því að skrifa þessa grein, verið að dásama eigin afrek. Því er best að huga að erindislokum
áður en skrifín öll verða dæmd sem karlagrobb.
Já, hér mætti setja amen eftir efninu, en ég er ekki alveg hættur að hugsa um efniseigin-
leika vikurs. A 50 ára búsetu í húsinu hefir hugurinn oft vafrað um ýmsa möguleika í bygg-