Tónlistin - 01.12.1945, Page 14

Tónlistin - 01.12.1945, Page 14
44 TÓNLISTIN uð krónur í árslaun. Um áramót 1913 lét ég af forsöngvarastarfinu og hélt þá að liausti til Vesturheims. Þar mættu mér ný verkefni. Ferð- aðist ég um í Kanda og Dakota, á vegum Þjóðræknisfélagsins, kenndi unglingum kórsöng og annaðist safnaðarsöng. Var þetta starf eftir annarra umsögn talið fjöregg ís- lenzkrar samheldni og þjóðrækni vestan iiafs. Aukastarf mitt var hljóðfærastilling, sem ég síðan liefi stundað. í íslendingahvggðunum hafði ég með höndum barnakóra, ldandaða kóra, kvennakóra og karlakóra. Þar kynntist ég fyrst Björgvin Gujðmundssyni tónskáldi og tók við stórum karlakór í Winni- ])eg, sem liann liafði stofnað. Stóð sönglíf Vestur-Islendinga í miklum hlómay og var ldjóðfæraleikur mjög úthreiddur. Var dvöl mín þar vestra hin ánæjulegasta, og þar eignaðist ég marga góða vini. Langaði þig samt ekki til þess að snúa aftur heim til ættlandsins? Jafnvel þótt kynni min af Vest- ur-íslendinum væru mér mjög hug- stæð, gerði heimþráin oft vart við sig. Og að því kom, að ég hvarf aftur heim, 1933. Tók ég þá aftur upp söngkennslu í þremur barna- skólum og hafði umsjón með kennslunni að nafninu til. Varð ég þó óneitanlega fyrir miklum von- brigðum í þessu starfi, því að mér fannst söngkennslu allri hafa hrak- að mjög frá því fyrr. Þó vil ég skýrt taka fram, að þessi misbrestur var ekki sök kennaranna, heldur staf- aði hann af því fyrirkomulagi, sem allsstaðar ríkti i skólunum. Kenn- ararnir gátu ekki notið sín vcgna óhagstæðra skilyrða, og hórnin feng- ust ekki til þess að leggja rækt við þá námsgrein, vem einskis var met- in. Þau sáu sem eðlilegt var, að hag- ur þeirra í vitnisburði batnaði ekki hið minnsta, þótt þau legðu allt sitt mesta og bezta kapp í söngfræði- námið. Kennararnir voru yfirleitt góðir starfsmenn, en kraftar þeirra nýttust ekki eins vel vegna þessa misræmis í skólareglugjörðinni. Söngkennslan á auðvitað að vera einkannaskyld. Og leggja ber höf- uðáherzlu á nótnalestur og söngpróf á vorin, til þess að efla metnað barnanna. Hvert er álit þitt á nútíðar-söng- mennt Islendinga? I hljóðfæraleik verður vart mjög mikilla framfara. Söngurinn hefir hinsvegar, finnst mér, orðið útund- an, og væri æskilegt, að tónlistar- skólinn réði sér sérstaklega góðan kennara i söng. Opinberlega má oft Iieyra söngmenn misbeita rödd sinni, og er það Ieiður vottur um ónóga kunnáttu. Blandaðir kórar ])urfa að dafna miklum mun bet- ur, en karlakórarnir mega teljast ágætir, þótt í rauninni séu þeir ekki eins fullkomin hljóðfæri. Þó get ég ekki látið hjá liða að minnast á þessar óendanlega mörgu og löngu raddæfingar, þar sem þrástagazt er i sífellu á sömu röddinni, upp aft- ur og aftur, svo sem verið væri að kenna páfagaukum. Slíkt fyrir- komulag er þó, því miður, eðlilegt, þar sem tækifæri til betra undir- búnings bjóðast ekki í uppvexti. Yfirleitt læra hér allt of fáir að

x

Tónlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.