Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 2

Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 2
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR2 Hilmar, voru þeir í A-ha upp- teknir? „Það er verið að ræða við þá fyrir norsku útgáfuna.“ Suður-kóreska stjarnan Haha hefur verið fengin til að syngja sérstakt kynningarlag um kvikmyndina Hetjur Valhallar: Þór fyrir frumsýninguna þar í landi. Hilmar Sigurðsson er framkvæmdastjóri CAOZ, sem framleiðir myndina. LÖGREGLUMÁL Rúmlega tvítugur maður var í gær úr skurðaður í gæslu varðhald til 10. febrúar, grunaður um að hafa veitt manni um fertugt lífs hættu lega áverka með hníf í Kópa vogi í fyrrinótt. Lögregla var kvödd að fjölbýlis- húsi í Engihjalla á fjórða tímanum aðfara nótt föstudags eftir að tilkynning barst um alvar lega líkams árás. Þegar hún kom á staðinn fann hún blóðugan mann, sem var með stungusár bæði á síðu og kvið. Skammt hjá var grunaður árásar- maður ásamt konu á svipuðu reki og voru þau bæði handtekin. Lagt var hald á tvo hnífa, annan innandyra og hinn í bíl í grennd- inni. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins rannsakar lögreglan þjófnað á bílnum í tengslum við málið. Maðurinn særðist illa af at- lögunni en var úr lífshættu um hádegisbil í gær. Honum var þó haldið undir eftirliti lækna á gjör- gæsludeild Landspítalans. Konunni var sleppt úr haldi að loknum yfirheyrslum en maðurinn var færður fyrir dómara í Héraðs- dómi Reykjaness á fimmta tímanum og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann, líkt og konan, hafa komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnabrota. Þá mun lögregla sömuleiðis kannast við brotaþolann. - sh Talinn hafa veitt manni um fertugt lífshættulega áverka í Engihjalla: Í gæsluvarðhald vegna hnífsstungu LEIDDUR FYRIR DÓMARA Lögregla lagði fram kröfu um gæsluvarðhald á hendur meintum árásarmanni í gær í þágu rannsóknar málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON NÁTTÚRA Uglur hafa hópast saman og haldið til í Laugardalnum í Reykjavík frá því um miðjan janúar. Bæði hafa sést branduglur og eyruglur, en suma daga hafa margir fuglar af þessari sérstöku tegund hópast saman á litlu svæði. Hannes Þór Hafsteinsson, náttúrufræðingur og starfs maður Borgar garða, hefur um árabil fylgst með fugla lífinu í dalnum, með fram vinnu sinni. Hann hefur aldrei séð neitt þessu líkt, enda virðist um einstakt fyrir brigði að ræða. „Við urðum fyrst varir við uglurnar um miðjan janúar. Mest höfum við séð átján uglur saman; fimmtán eyruglur, tvær brand uglur og síðan eina sem við náðum ekki að greina,“ segir Hannes. Uglurnar hafa fangað athygli fugla áhugamanna sem vilja fylgjast með þessum fallegu fuglum. Hannes segir að síðan í október hafi sést 40 eyruglur, en samkvæmt hans upplýsingum ber mjög mikið á þessari tegund í Norður-Evrópu um þessar mundir. „Ég hef starfað lengi í Laugar- dalnum, síðan 2004, og hef aldrei áður séð eyruglur hérna. Þetta er eitthvað mjög sérstakt.“ - shá Eyruglur og branduglur draga að fuglaáhugamenn og ljósmyndara: Uglur hópast saman í Laugardal BRANDUGLA Í LAUGARDALNUM Undanfarið hafa sést fjölmargar uglur í dalnum. MYND/STEFÁN FREYR MARGRÉTARSON KÓPAVOGUR Fulltrúar Sjálf stæðis- flokks, Lista Kópavogsbúa og Framsóknarflokks, ætla að halda áfram viðræðum um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Kópa- vogs. Formlega var ákveðið í fyrradag að hefja slíkar viðræður og var fundað um málið í gær.„Ég veit ekki með aðra en mér finnst ganga vel,“ sagði Ómar Stefánsson, odd- viti framsókn- armanna í gær- kvöld. Ómar kvaðst vonast til að viðræðunum lyki um helgina. Ekki náðist í hina oddvitana tvo, þau Ármann Kr. Ólafsson úr Sjálfstæðisflokki og Rannveigu Ásgeirsdóttur, bæjarfulltrúa Lista Kópavogsbúa. - gar Bæjarfulltrúar í Kópavogi: Nýr meirihluti á umræðustigi ÓMAR STEFÁNSSON DANMÖRK Vindmyllur geta verið hættulegar fuglum á flugi ef marka má nýja rannsókn sem gerð var í Þýskalandi. Á vef dönsku fuglafræðisam- takanna segir að hver vindmylla á landi drepi um fjóra fugla á ári, samkvæmt tíu ára rannsókn- um í þýska ríkinu Brandenburg. Þar sem þrjú þúsund vindmyllur eru í Brandenburg einu saman má því gera ráð fyrir að 12.530 fuglar drepist þar á ári. Margar þeirra fuglategunda sem eru í hættu vegna þessa eru í útrýmingarhættu, en þar á meðal eru ernir og svölugleður sem átta sig ekki á hættunni sem felst í því að fljúga milli myl- luspaðanna. - þj Ný rannsókn á fugladauða: Myllur drepa þúsundir fugla DAUÐAGILDRA Hver vindmylla á landi drepur fjóra fugla á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GRUNARFJÖRÐUR „Ef bréfberar fást ekki til starfa er það vís- bending um að launakjör séu ekki viðunandi,“ segir bæjarráð Grundarfjarðar sem mótmælir harðlega óviðunandi póstútburði í bænum. Borið hafi á að póstur hafi ekki verið borinn út og það skýrt með skorti á bréfberum. Íslandspóstur geti ekki borið því fyrir sig að fólk fáist ekki til starfa því í Grundarfirði sé fólk í atvinnuleit. „Íslandspóstur getur ekki hag- rætt í rekstri sínum með því að bjóða laun sem eru ekki sam- keppnisfær og dregið með þeim hætti úr tíðni póstdreifingar,“ segir bæjarráð og krefst þess að fyrirtækið sinni póstdreifingu í samræmi við lög og reglugerð. - gar Hnökrar á pósti í Grundarfirði: Fá ekki fólk til að bera út bréf STJÓRNMÁL Níu þingmenn á Alþingi lögðu fram frumvarp í gær um skattaívilnanir til þeirra sem spara vegna húsnæðis- öflunar. Frumvarpið er hugsað til viðbótar öðrum opinberum úrræðum sem auðvelda eiga fólki að eignast húsnæði, til dæmis vaxtabótakerfi og Íbú- ðalánasjóði. Eygló Harðardóttir úr Framsóknarflokki er fyrsti flutnings maður frumvarpsins, en að því standa þingmenn úr Fram- sóknarflokki, Samfylkingu og VG auk óháðra þingmanna. - jhh Þingmannafrumvarp á Alþingi: Spari fyrir íbúð og fái frádrátt Marijúana í Herjólfi Fíkniefnahundurinn Luna fann 150 til 200 grömm af marijúana í farangurs- geymslu bíls sem ökuréttindalaus maður kom með til Vestmannaeyja í Herjólfi gær. Maðurinn, sem er 22 ára og var undir áhrifum fíkniefna, sagði marijúanað til eigin nota. LÖGREGLUFRÉTTIR SPURNING DAGSINS ÞINGMENN VG HALDA OPNA FUNDI VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ Á NÆSTU DÖGUM Laugardagur 4. febrúar Hafnarfjörður, kl. 13 í Strandgötu 11 Kópavogur, kl. 13 í Kragakaffi Hamraborg Reykjavík, kl. 16 í Iðnó Mánudagur 6. febrúar Húsavík, kl. 12 á Sölku Ísafjörður, kl. 20 í Edinborgarhúsinu Þriðjudagur 7. febrúar Vestmannaeyjar, kl. 20 í Alþýðuhúsinu Miðvikudagur 8. febrúar Hornafjörður, kl. 12 í Nýheimum Egilsstaðir, kl. 20 á Hótel Héraði Komdu og taktu þátt í lifandi stjórnmálaum ræðu með þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. www.vg.is SAMGÖNGUR „Umferðarmenningin hefur breyst mjög mikið, og til hins betra,“ segir Dagbjartur Sigur- brandsson, sem um þessar mundir lætur af störfum hjá Reykjavíkur- borg eftir að hafa stýrt umferðar- ljósum borgarinnar í 41 ár. Þegar Dagbjartur hóf störf voru umferðarljós á 16 gatnamótum í Reykjavík. Sama ár tók hann þátt í að gangsetja fyrstu hnappastýrðu gangbrautarljósin, á Bústaða- vegi við Grímsbæ. Rúmum fjöru- tíu árum síðar eru umferðarljós á 118 gatnamótum og 33 hnappa- stýrð ljós, auk þess sem í kerfinu hafa verið innleiddar margvíslegar tækninýjungar. Þar á meðal hraða- og umferðarljósamyndavélar. Myndavélarnar segir Dagbjartur einmitt hafa leikið lykilhlutverk í að bæta umferðarmenninguna. „Menn fá núna fjóra punkta í ökuferilsskrá fyrir hvert brot. Svo tökum við líka myndir af þeim sem aka of hratt í gegn á grænu ljósi,“ segir hann. „Ég hef oft verið kallaður fyrir dóm í málum sem þessum,“ segir hann og bætir við að eftir að hann fékk í einu máli tíma til að útskýra tæknina á bak við myndatökuna fyrir dómaranum hafi ekki tapast mál þar sem hraða- eða ljósamynd sé notuð sem sönnunargagn. Aðhaldið hafi því leikið lykilhlutverk í að fá ökumenn til að bæta aksturslag sitt. Núna segir Dagbjartur þýsku hraðamyndavélarnar sem í notkun eru að verða úreltar. „Það er orðið erfitt að fá í þær filmur. Við erum því að leggja út í stafræna tækni.“ Nýjar myndavélar segir hann ýmist tengdar miðlægu kerfi með ljósleiðara eða 3G net. Annars segist Dagbjartur ekki DAGBJARTUR Í LJÓSASKIPTUM Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri réð Dagbjart Sigurbrandsson til starfa árið 1971 og setti sem skilyrði að hann mætti ekki hætta fljótlega eftir ráðningu. Við það hefur Dagbjartur staðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hefur stýrt umferðar- ljósunum í yfir 40 ár Dagbjartur Sigurbrandsson lætur brátt af störfum eftir að hafa stýrt umferðar- ljósunum í Reykjavík í 41 ár. Hann segir umferðarmenningu betri nú en í byrjun áttunda áratugarins. Nær ekki að skila nýrri miðlægri stýringu ljósa. Dagbjartur Sigurbrandsson, verkefnastjóri miðlægrar stýringar umferðarljósa, er fæddur í Reykjavík árið 1946. Hann er giftur Guðfinnu Kjartansdóttur. Þau eiga þrjú uppkomin börn og sex barnabörn. Hann hefur frá æsku stundað íþróttir og hugar vel að heilsunni, hefur til að mynda hvorki reykt né drukkið. „Ég vann hjá tollinum í Gullfossi í gamla daga, 14 ára gamall,“ segir Dagbjartur, þá yngstur til að fá ráðningu þar, „og ég lofaði einum yfir- tollverði sem ég hjálpaði að smakka það alls ekki. Við það stóð ég.“ Í þá daga segir Dagbjartur kerfið hafa verið þannig að hann hafi fengið sama toll og aðrir, ginflösku, viskíflösku, 24 flöskur af bjór og tvö karton af sígarettum. „Margir vildu kaupa og borguðu litla stráknum mikinn pening fyrir.“ Hefur verið reglumaður alla tíð sjá eftir öðru nú við lok starfsins en að hafa ekki fengið að sjá fyrir endann á mið lægu stýri kerfi ljósa sem nú hafi verið inn leitt til hálfs. „Við ætluðum að vera búin að þessu fyrir 2010 en hrunið setti strik í þann reikning.“ Hann segist hins vegar skilja sáttur við, enda búinn að vera alveg nógu lengi að. Nú sé kominn tími til að sinna hugðar- efnum og fjölskyldunni, svo sem barna börnunum sex. olikr@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.