Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 34
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR34
V
ið byrjuðum að mála saman fyrir
algjöra tilviljun,“ segja syst-
urnar Sara og Svanhildur Vil-
bergsdætur sem síðan á menn-
ingarnótt 2010 hafa stundað
„dúettmálun“ eins og þær kalla það og opna
sýningu á myndum sínum í Listasafni ASÍ á
Safnanótt, föstudaginn 10. febrúar. „Þannig
var að ég var fengin til að mála Vestfjarða-
hlutann á sjö metra löngu málverki sem
Ferðamálastofa fékk listamenn til að mála
fyrir framan áhorfendur. Einn listamaður
frá hverjum landshluta átti að mála sinn
landshluta á metra af verkinu og við fengum
bara klukkutíma til þess að klára,“ útskýrir
Sara. „Ég sá fram á að lenda í mikilli tíma-
þröng og bað Svanhildi að koma og vera
til staðar. Við máttum kalla áhorfendur til
aðstoðar en ég hafði gert svo flókna skissu
að ég varð að hafa einhvern með mér sem
ég treysti. Svanhildur er náttúrulega mál-
ari og veit um hvað málið snýst. Ég er vön
að mála fyrir framan fólk, búin að vera að
kenna lengi, og átti ekki von á að það myndi
stressa mig, en af einhverjum ástæðum fór
ég gjörsamlega á taugum. Svanhildur kemur
hlaupandi í síðu tjullpilsi, það var nú menn-
ingarnótt, og tekur bara stjórnina. Róar mig
niður og er algjörlega með þetta á hreinu.
Þetta var alveg ný upplifun þar sem ég er nú
stóra systir og hef litið á það sem mitt hlut-
verk að passa hana. En þarna snerist þetta
alveg við .“
Eftir þessa reynslu ákváðu systurnar að
prófa að mála saman, „bara í gamni“ eins
og Svanhildur segir. „Við fórum að hittast á
vinnustofu Söru uppi á Korpúlfsstöðum og
það bara gerðist eitthvað. Við urðum algjör-
lega helteknar af þessu. Fórum að hringjast
á oft á dag og kasta á milli okkar hugmynd-
um. Sáum til dæmis eitthvað í fréttunum
sem kveikti hugmynd sem við síðan rædd-
um fram og til baka og mótuðum í sam-
einingu, eins og til dæmis myndirnar um
Tiger Woods. Við reyndum að hittast eins
oft og við gátum og gleymdum okkur alveg
við að mála, máluðum stundum í tólf tíma í
beit. Við erum mjög ólíkar manneskjur en
þegar við stöndum saman við strigann þá er
eins og verði til þriðja elementið samsett úr
okkur báðum og við einhvern veginn renn-
um saman. Það hefur aldrei komið upp sú
staða að við séum ekki sammála um hvern-
ig eitthvað í myndunum á að vera, sem er
stórmerkilegt eins ólíkar og við erum. Einn
plús einn er nefnilega meira en tveir í svona
samvinnu.“
Sara er þekktur málari sem hefur haldið
fjölda einkasýninga en minna hefur borið
á Svanhildi, hvað kom til að hún hellti sér
af krafti út í málverkið? „Ég var alltaf upp-
tekin af því að vinna fyrir salti í grautinn
og hugsaði með mér að ég gæti bara geymt
að mála þangað til ég væri komin á ellilíf-
eyri,“ segir Svanhildur. „Árið 2009 fékk ég
svo krabbamein og var tekin út úr system-
inu, hætti að vinna og var í geislameðferð.
Þá skapaðist rými og andrúm til að endur-
skoða afstöðuna og skilja að maður hefur
ekki allan tíma í heimi til að sinna því sem
skiptir mann máli. Þannig að stundum
finnst mér að krabbameinið hafi verið guðs-
gjöf til að beina mér á rétta braut.“
Þær systur eru engan veginn hættar
að mála saman, fram undan er mánaðar
vinnustofudvöl í Danmörku og hugmyndir-
nar halda áfram að flæða. Hafa þær unnið
eitthvað sín í hvoru lagi síðan þær byrjuðu
að mála saman? „Nei, ekki neitt,“ segir Sara
og hlær. „Það er eins og það hafi bara horfið
úr huganum. Þessi samvinna er svo ótrúlega
skemmtileg, gefandi og frjó og svo marg-
ar hugmyndir sem við eigum eftir að mála
að ég sé ekki fram á að við hættum þessu á
næstunni.“
Á opnuninni á föstudaginn verða þær
systur ekki einu fjölskyldumeðlimirnir í
kastljósinu, þótt þær verði auðvitað í aðal-
hlutverkum. Faðir þeirra, Vilberg Vilbergs-
son rakari á Ísafirði, betur þekktur sem
Villi Valli, og bróðir þeirra, Rúnar Vilbergs-
son fagottleikari, munu leika dúetta á harm-
onikku og fagott fyrir gesti. Einnig verður
sýnt myndband af systrunum í aksjón við
strigann og einu herbergi safnsins breytt
í vinnustofu til að sýna andrúmsloftið sem
verkin spretta úr. Sýningin stendur til 4.
mars.
SARA OG SVANHILDUR Einstaklega samtaka við strigann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKEGGRÆTT OG SKIPULAGT Systurnar vinna myndirnar í sameiningu frá a til ö, kasta á milli sín hugmyndum, spinna og prjóna við og eru alltaf sammála um nálgunina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Einn plús einn er meira en tveir
Systurnar Sara og Svanhildur Vilbergsdætur eru báðar málarar sem undanfarna 18 mánuði hafa stundað „dúettmálun“, málað
saman stórar, litríkar, sjálfsævisögulegar myndir. Friðrika Benónýsdóttir forvitnaðist um hvernig sköpun þeirra systra verður til.
Systurnar Sara og Svanhildur Vilbergsdætur hafa málað saman frá því síðsumars 2010. Þær kjósa að kalla hugmyndavinnuna og framkvæmdina „dúettmálun“ og hún
fer þannig fram að þær vinna hugmyndir saman frá grunni, kasta þeim á milli sín, grípa
og annaðhvort henda eða prjóna við.
Vinnuferlið hefst á samningaviðræðum um myndbyggingu og útfærslu og síðan tekur
við málunin sjálf þar sem systurnar standa frammi fyrir sama striganum og mála tví-
hent, ef svo má að orði komast. Segja má að margar myndanna séu ævintýramyndir með
sjálfsævisögulegu ívafi þar sem yrkisefnin eru áhugamál þeirra og persónuleg reynsla.
Í málverkunum má sjá systurnar í aðstæðum sem eru dæmigerðar fyrir þær sjálfar og
líf þeirra en einnig leita þær víða fanga svo sem í ævintýrum og um leið bregður fyrir
þekktum minnum og myndum úr listasögunni.“
■ ÚR SÝNINGARSKRÁ:
MYNDI Í MYND Í MYND
MYND: GUÐMUNDUR INGÓLFSSON
Í GRÆNNI LAUTU
MYND: GUÐMUNDUR INGÓLFSSON
JESÚBÖRNIN
MYND: GUÐMUNDUR INGÓLFSSON