Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 88
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR56
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 4. febrúar 2012
➜ Tónleikar
13.00 Íslenski saxófónkvartettinn
heldur tónleika í sal Tónlistarskólans í
Garðabæ við Krikjulund. Miðaverð er kr.
1.500, en kr. 1.000 fyrir eldri borgara.
➜ Sýningar
14.00 Kristinn G. Jóhannsson opnar
málverkasýninguna Mannabyggð með
Ströndum í Mjólkurbúðinni Listagili
Akureyri. Allir velkomnir.
14.00 Sýningin Glitrar á hjarnið opnar
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Á
henni sýnir Páll Guðmundsson á Húsa-
felli úrval verka sinna af hellu-, svell- og
bergþrykki og verk úr steini. Við opnun
sýningarinnar leika þeir Páll og Hilmar
Örn Hilmarsson á steinhörpu Páls undir
kveðskap Steindórs Andersen.
15.00 Opnuð verður sýning á verkum
Bjargar Eiríksdóttur myndlistarmanns
í Artóteki á 1. hæð Borgarbókasafns
Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
17.00 Opnun í Öruggu Rými við
Freyjugöturóló frá 17 til 20. Helena
Hansdóttir og Ólöf Helga Helgadóttir
sýna ný vídeóverk. Opið sunnudag frá
14-17. Aðeins þessa einu helgi.
➜ Fræðslufundir
13.00 Jórunn Erla Eyfjörð prófessor
segir frá tengslum grunnrannsókna á
brjóstakrabbameini við meðferð og
horfur í Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16.
➜ Uppákomur
10.00 Landssamtök hjólreiðamanna
og Hjólafærni standa fyrir hjólreiðaferð
frá Hlemmi. Hjólað verður um borgina
í 1-2 tíma. Allir velkomnir og ókeypis
þátttaka.
14.00 Súkkulaðibrosum verður dreift
á hvatningarhátíð Bergljótar Arnalds
„Kærleikar” og í framhaldinu lagt upp
í Kærleiksgöngu í kringum tjörnina. Þá
munu kórar syngja fyrir framan Iðnó að
lokinni göngunni.
➜ Málþing
13.00 Myndhöggvarafélag Reykjavíkur
heldur uppá 40 ára afmæli sitt í ágúst
á þessu ári og efnir því til málþings
í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur
í Hafnarhúsi. Erindi flytja þau Æsa
Sigurjóns dóttir, Ólafur S. Gíslason og
Sara Riel. Aðgangur er ókeypis og allir
eru velkomnir.
➜ Tónlist
19.00 Jussanam og Andres Þór flytja
nýtt Bossa Nova prógram á Radisson
Blue 1919. Leikin verða lög frá Íslandi,
Brasilíu, Kúbu og Bandaríkjunum. Miða-
verð, með kvöldmat, er kr. 5000.
23.00 Kántrísveitin Klaufar slær upp
hlöðuballi á Spot í Kópavoginum.
Alvöru sveitaballsstemning.
Aðgangseyrir er kr. 1.800.
➜ Fyrirlestrar
14.00 Stefán Snævarr, prófessor í
heimspeki við Lillehammerháskóla
í Noregi, heldur fyrirlestur á vegum
Félags áhugamanna um heimspeki.
Yfirskrift fyrirlestursins er Frelsi er spurn
og verður hann haldinn í Reykjavíkur
Akedemíunni Hringbraut 121, 4 hæð.
Sunnudagur 05. febrúar 2012
➜ Tónleikar
16.00 Tríó Vadims Fyodorovs heldur
útgáfutónleika í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Tríóið skipa þeir Vadim
Fyodorov á harmóniku, Leifur
Gunnarsson á kontrabassa og Gunnar
Hilmarsson á gítar.
➜ Leiklist
14.00 Möguleikhúsið sýnir barna-
leikritið Prumpu hóllinn í Menningar-
miðstöðinni í Gerðubergi. Sýningin er
ætluð áhorfendum á aldrinum 2ja til 10
ára. Miðaverð er kr. 2.000.
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir.
19.00 Bridge, tvímenningur, verður
spilaður í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14.
Allir velkomnir.
➜ Sýningar
14.00 Sýning á olíumálverkum Lilju
Þorsteinsdóttur opnar í Boganum í
Gerðubergi. Sýningin stendur til 15.
apríl og er opin virka daga kl. 11-17 og
kl. 13-16 um helgar.
16.00 23 manna listahópur frá
Guangxi háskóla í Suður-Kína, flytur
margvísleg atriði á sviði stóra sals
Háskólabíós. Einstakt tækifæri til að
kynnast kínverskri dans-, söng- og
bardagalist.
➜ Kvikmyndir
22.00 Skemmtistaðurinn Prikið slær
upp þynnkubíói. Aðgangur ókeypis og
popp í boði.
➜ Leiðsögn
14.00 Boðið verður upp á leiðsögn
í Ásmundarsafni með áherslu á
útilistaverk Ásmundar Sveinssonar og
verk í opinberu rými. Kristín Dagmar
Jóhannesdóttir annast leiðsögnina.
14.00 Boðið verður upp á
barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands
og er hún að þessu sinni hugsuð fyrir
börn á aldrinum 5-8 ára.
14.00 Sigríður Melrós Ólafsdóttir fjallar
um sýninguna ÞÁ og NÚ í Listasafni
Íslands og fjallar einnig um verk þeirra
Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar.
➜ Listamannaspjall
15.00 Anna Líndal verður með
listamannaspjall í Listasafni ASÍ. Spjallið
er í tengslum við sýningu hennar
Kortlagning hverfulleikans. Aðgangur er
ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Í dag opnar Valgerður Freeland Sigurðardóttir
sína fyrstu einkasýningu í Gallerí 002, Þúfubarði
17 í Hafnarfirði. Valgerður hreppti fyrsta sæti í
skúlptúrkeppni Íslands, sem haldin var í fyrsta
sinn á Bakkusi í nóvember. Að launum hlaut hún
að sýna á þessari fyrstu sýningu ársins í Galleríi
002.
Valgerður er 19 ára og er í FB á listnámsbraut.
Þaðan útskifast hún í vor og stefnir á frekara
listnám. Verkið sem tryggði henni sigurinn í
skúlptúr keppninni var risaeðluinnsetning. „Ég hef
verið að safna risaeðlum úr plasti. Ég var með allt
það safn og eldfjall og raðaði þessu saman á borði
og bjó til innsetningu úr því,“ segir Valgerður,
sem er stoltur eigandi 160 risaeðla og er enn að
safna. „Margir töluðu um að þeim þótti þetta
túlka offjölgun, en aðallega var ég nú að hugsa um
fallega liti og mismunandi form.“
Viðfangsefni sýningar Valgerðar í Gallerí 002
eru þrjú, en þau skapa saman eina heild: Abstrakt
og fígúratíf málverk með frumum sem myndefni,
margs konar ljósalampar og plánetur sem lýsa
í myrkri, risaeðluinnsetning með risaeðlunum
hennar Valgerðar.
Gallerí 002 er rekið af Birgi Sigurðssyni,
sjálflærðum myndlistarmanni og rafvirkja. Um
það bil einu sinni í mánuði tæmir hann blokkaríbúð
sína í Hafnarfirði, flytur út og leyfir öðrum
myndlistarmönnum að athafna sig þar að vild.
Sumir þeirra hafa notað veggi íbúðarinnar sem
striga og því er heimili Birgis síbreytilegt og ávallt
undir áhrifum síðasta listamanns sem þar sýndi.
Sýning Valgerðar verður opnuð í dag klukkan 14
og er opin til klukkan 17. Á morgun, sunnudag, er
sýningin einnig opin á milli klukkan 14 og 17, en
hún er aðeins opin þessa einu helgi. - hhs
Frumur, plánetur og risaeðlur
VALGERÐUR FREELAND SIGURÐARDÓTTIR Opnar sína fyrstu
einkasýningu í Galleríi 002 í dag klukkan 14.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
81
78
0
1/
12
Lægra
verð
í LyfjuD-3 vítamín er nauðsynlegt fyrir alla
– börn, konur og karla.
Töfrandi, grípandi
og mannbætandi bók
2 . 699
Verð
krónur