Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 4
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 03.02.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
222,07
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,43 123,01
193,92 194,86
161,31 162,21
21,699 21,825
21,065 21,189
18,237 18,343
1,6051 1,6145
189,90 191,04
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
SAFNAMÁL Katrín Jakobs dóttir,
mennta- og menningarmála-
ráðherra, kallaði eftir því á Alþingi
í gær að ráðu neytið myndi efna til
sam ráðs, hugsanlega á vettvangi
Allsherjar- og menntamála nefndar,
um hvaða skal að gert í mál efnum
Náttúruminjasafns Íslands. Hún
segir söfn landsins almennt orðin
verulega aðkreppt og því verði
að gefa gaum við fjárlagagerð í
haust, enda ljóst að komið sé að þol-
mörkum í niðurskurði.
Katrín flutti munnlega skýrslu
sína um málefni safna á þinginu
í gær. Fyrst og síðast var til efnið
stjórnsýsluúttekt Ríkisendur-
skoðunar, sem birt var á dögunum,
þar sem nokkuð óvægin gagnrýni
var sett fram á því hvernig staðið
hefur verið að málefnum Náttúru-
minjasafnsins, eins af þrem höfuð-
söfnum Íslands, á undanförnum
árum. Hún sagði þó að Ríkisendur-
skoðun hefði mátt taka meira tillit
til þess við hvaða aðstæður ráðu-
neytið hafi búið undanfarin ár.
Katrín sagði að á aðeins tveimur
árum hafi þurft að skera niður fé
til safna um 1,2 milljarða og það
aðeins síðan fjárlög voru dregin
upp haustið 2009.
Ríkisendurskoðun komst að
þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni
að lögin um safnið, frá árinu 2007,
hafi verið gölluð. Það sé undirrót
vandans og það uppfylli ekki lög-
bundnar skyldur sínar, eins og
staðan er núna.
Katrín kallaði því eftir skoð-
unum þing heims um hvernig
höggva megi á þann harða hnút
sem málefni safnins eru í en það
verður ekki síst
rakið til tor-
tryggni og tog-
streitu sem sé
að finna innan
stjórnkerfisins.
Siv Friðleifs-
dóttir, þingmað-
ur Framsóknar-
flokksins, sem
hefu r h a ld -
ið málefnum
safnsins á lofti á þinginu og hefur
kallað eftir sérstakri umræðu um
málið síðar, sagði að safnið hafi
verið olnbogabarn í kerfinu og
það þyrfti einfaldlega að klára
málið, svo þing og þjóð sé sómi
að. Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, þingmaður og fyrrverandi
menntamálaráðherra, fagnaði
umræðunni og lýsti sig tilbúna til
samstarfs til að koma safninu á
fæturna og sagði að allir flokkar
sem komið hafa að stjórn landsins
þurfi að taka gagnrýni á vinnu-
brögð til sín.
Fulltrúar allra flokka tóku til
máls í umræðunni og tóku vel í
að setjast yfir málefni safna með
opnum huga. Ekki var annað að
skilja en menn vilji halda Náttúru-
minjasafninu sem sjálfstæðu
höfuð safni og hugmyndum um
sameiningu við Náttúrufræðistofn-
un var hafnað. svavar@frettabladid.is
Ráðherra kallar til
samráðs um safnið
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, tók upp málefni
Náttúru minjasafnsins á Alþingi í gær. Tilefnið er gagnrýni Ríkisendurskoðunar.
Vel var tekið í hugmynd hennar um endurskoðun málsins á vettvangi þingsins.
SAFN Í KJALLARAKOMPU Helgi Torfason safnstjóri kallaði eftir úttekt Ríkisendurskoð-
unar þar sem stefnu mótunar vinna hans hefur ekki fengið hljómgrunn í ráðuneytinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
SAMGÖNGUR Meðal þeirra sem
fá að reynsluaka metan bíl frá
Metan orku er Svandís Svavars-
dóttir, umhverfisráðherra. Dofri
Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Metanorku afhenti bílinn
síðdegis í gær.
Svandís er í hópi fimm
einstaklinga sem dregnir voru
út á Facebook síðu Metanorku
í keppni um að fá lánaðan bíl
í sólarhring og reyna á eigin
skinni hvort muni einhverju öðru
í akstri en eldsneytisverði.
Eftir helgi stendur til að ræða
á Alþingi frumvarp iðnaðar-
ráðherra um orkuskipti í sam-
göngum. „Það passar vel að
umhverfisráðherra hafi fengið
að prófa metanbíl áður en að því
kemur,“ segir Dofri. - óká
Var dregin út hjá Metanorku:
Ráðherra próf-
ar nýja bifreið
VIÐ RÁÐUNEYTIÐ Dofri Hermannsson
afhendir Svandísi Svavarsdóttur bíl til
afnota um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ofreiknaðir fasteignaskattar
Bæjaryfirvöld í Ísafjarðarbæ þurfa að
gefa út nýja álagningu fasteignaskatta
fyrir árið 2012 vegna mistaka að því
er skutull.is segir. Reiknað var með
0,65 prósent álagningu á fasteigna-
mat en leyfileg hámarksálagning er
0,625. Um leið og fasteignaskatturinn
er leiðréttur er reiknað með að
hækka vatnsgjald svo álagningin í
heild verði sú sama.
ÍSAFJARÐARBÆR
KÖNNUN Ekki er marktækur
munur á fjölda þeirra sem vilja
að ákæra á hendur Geir H.
Haarde fyrir Landsdómi verði
dregin til baka og hinna sem
vilja að málinu
verði haldið
til streitu.
Þetta sýnir
nýr þjóðar púls
Gallup. Sam-
kvæmt könn-
uninni vilja
52 prósent að
fallið verði
frá málinu, en
48 prósent að því verði haldið
áfram.
Mikil fylgni er á milli stuðn-
ings við stjórnmálaflokka og
afstöðu til ákærunnar. Þannig
vilja 94 prósent stuðningsmanna
Sjálfstæðisflokksins falla frá
ákærunni og um sjötíu prósent
fylgismanna Framsóknarflokks,
en aðeins um fjórðungur Sam-
fylkingarmanna og sex prósent
stuðningsmanna Vinstri grænna.
Einnig eru menn líklegri til að
vera á móti ákærunni eftir því
sem þeir hafa hærri tekjur. - sh
Jafnmargir með og á móti:
Þjóðin klofin
í afstöðu til
ákæru á Geir
GEIR H. HAARDE
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akur-
eyri lagði hald á 400 e-töflur í
bænum á fimmtudag. Er þetta
mesta magn e-taflna sem fundist
hefur á Akureyri í einu.
Fíkniefnin fundust við húsleit
á heimili manns á þrítugsaldri.
Maðurinn var handtekinn í
kjölfarið og játaði hann að eiga
töflurnar og viðurkenndi að þær
voru ætlaðar til sölu. - sv
Játaði á sig fíkniefnamisferli:
400 e-töflur í
húsi á Akureyri
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
9°
-10°
-5°
-5°
-5°
-10°
-6°
-6°
18°
2°
5°
5°
26°
-11°
-2°
15°
-9°Á MORGUN
3-8 m/s en vaxandi
SA-átt annað kvöld.
MÁNUDAGUR
10-18 m/s.
2
2
2
3
3
5
5
0
3
4
7
10
7
8
9
13
6
3
2
7
15
5
-2
-2
3
0
1
6
6
7
7
8
BJART Á MORGUN
Það snýst smám
saman í norðvest-
læga átt er líður á
daginn með heldur
kólnandi veðri og
éljum fyrir norðan
í kvöld og nótt. Þá
léttir víðast til á
morgun og verður
yfi rleitt hægur vind-
ur en gengur síðan
vaxandi suðaustan
annað kvöld.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
HEILBRIGÐISMÁL PIP-brjóstapúðar
hafa reynst lekir hjá rúmlega átta-
tíu prósentum þeirra kvenna sem
hafa farið í ómskoðun hjá Leitarstöð
Krabbameinsfélags Íslands.
Ómskoðanir hófust í vikunni og
búið er að skoða 41 konu. Þrjátíu
og fjórar þeirra reyndust vera með
leka púða, fimm voru með heila
púða en tvær kvennanna þarf að
skoða betur.
Um 450 konur eru taldar vera
með PIP-púða í brjóstunum. 215
hafa haft samband við Krabba-
meinsfélagið og óskað eftir skoð-
un, en reiknað er með því að um 40
konur verði ómskoðaðar í hverri
viku. Landlæknir mun fylgjast
með framvindu rannsóknanna.
Hann hefur farið fram á það við
Guðbjart Hannesson velferðarráð-
herra að púðarnir verði fjarlægð-
ir úr öllum konum á Íslandi, í ljósi
nýrrar skýrslu sérfræðingahóps
Evrópusambandsins sem kynnt var
í vikunni. Ráðherra ætlar að leggja
það til á ríkisstjórnarfundi á þriðju-
daginn að það verði gert.
Landlæknisembættið vinnur
enn að því að afla upplýsinga um
umfang brjóstastækkana hér á
landi. - þeb
Krabbameinsfélagið hefur ómskoðað rúmlega 40 konur með PIP-brjóstabúða:
Yfir 80 prósent með leka púða
BRJÓSTAPÚÐI Búist er við því að um
fjörutíu konur verði ómskoðaðar í hverri
viku. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið þarf að
efla eftirlit með framkvæmd
skuldbindandi samninga sem það
hefur gert við aðila utan ríkisins.
Er það mat ríkisendurskoðunar
að ráðuneytið þurfi að samræma
ákvæði samninga og skjalfesta
verklagsreglur vegna mála því
tengdu.
Ríkisendurskoðun vinnur nú
að úttekt á framkvæmd ráðu-
neytanna við alla skuldbindandi
samninga þeirra. Birt verður
skýrsla fyrir hver ráðuneyti. - sv
Framkvæmd samninga í ólagi:
Eftirlit skal eflt
hjá ráðuneyti