Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 10
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR10
LESTARSLYS Í INDLANDI Stór lest fór af
teinunum nálægt Gauhati í Indlandi í
gær. Lestin rakst á jarðýtu og minnst
þrír létu lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AFGANISTAN, AP Hina Rabbani Khar,
utanríkisráðherra Pakistans, þver-
tekur fyrir að talibanar í Afganistan
nytu stuðnings frá Pakistan. Fangar
NATO úr röðum talibana hafa hald-
ið slíku fram við yfirheyrslur og
segir frá í leynilegri skýrslu NATO
sem kom upp á yfirborðið í gær.
Khar sagði hins vegar að þessar
ásakanir ættu ekki við rök að
styðjast. „Þetta er gamalt vín á
ennþá eldri belgjum,“ sagði hún.
„Þessar ásakanir hafa verið í gangi
í mörg, mörg ár.“
Meðal annars sem kemur fram
í skýrslunni er að talibanarnir
telja sig vera í sterkri stöðu meðal
almennra borgara og eiga fulltrúa
allt upp í efstu lög stjórnkerfisins.
Því telja þeir sig munu eiga auðvelt
með að ná völdum eftir að herlið
NATO yfirgefur landið árið 2014.
Carsten Jacobsen, talsmaður
alþjóðlega heraflans í Afganistan,
gerði lítið úr því sem haft er eftir
talibönunum í skýrslunni. „Þeir
eru að tala um hvernig þeir halda
að baráttan gangi og hvað þeir vilja
að við höldum um þeirra baráttu.“
Jacobsen segir þvert á móti að
aðgerðir gegn talibönum hafi gengið
vel síðustu misseri. - þj
Talibanar segjast njóta stuðnings frá Pakistan í leyniskýrslu NATO sem var kynnt í gær:
Segir ásakanir gamalt vín á eldri belgjum
VÍGREIFIR Skæruliðar talibana í haldi NATO hafa sagt við yfirheyrslur að þeir fái styrki
frá Pakistan, en stjórnvöld þar í landi segja það ekki rétt. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Ingibjörg Ingvadóttir,
lektor við lagadeild Há skólans
á Bifröst, hefur verið kjörin í
bankaráð Seðlabankans. Ingi-
björg hefur
verið vara-
maður í ráðinu
en tekur nú við
af þýska hag-
fræðingnum
Daniel Gros.
Sæti hennar
sem varamaður
tekur Jón Helgi
Egilsson, hag-
fræðingur.
Sjö fulltrúar eiga sæti í banka-
ráði Seðlabankans. Þeir eru auk
Ingibjargar; Lára V. Júlíusdóttir,
Ragnar Arnalds, Björn Herbert
Guðbjörnsson, Hildur Trausta-
dóttir, Ragnar Árnason og Katrín
Olga Jóhannesdóttir. - mþl
Daniel Gros yfirgefur ráðið:
Skipt um full-
trúa í bankaráði
LÁRA V.
JÚLÍUSDÓTTIR
EGYPTALAND Fjöldi manns streymdi
út á götur Kaíró í gær að loknum
föstudagsbænum, sem jafnan eru
mikilvægar samkomustundir í
ríkjum múslima.
Mótmælendur köstuðu grjóti og
lögreglan svaraði með táragasi.
Átökin í Kaíró og víðar í landinu
undanfarna daga hafa kostað að
minnsta kosti fjóra lífið. Tveir
mótmælendur létust á fimmtudag
af skotsárum í hafnarborginni
Súes, lögreglumaður lést í gær
af sárum sem hann hlaut á
fimmtudaginn í Kaíró, og svo lést
hermaður í gær eftir að hann varð
fyrir herbifreið.
Upphaf þessara nýju óeirða er
atvikið á fótboltavelli í Port Saíd
á fimmtudag, þegar 74 létust í
troðningum og meira en þúsund
manns særðust.
Almenningur er reiður út í
stjórnvöld og lögreglu, sem sögð
eru hafa brugðist með því að koma
ekki í veg fyrir harmleikinn í Port
Saíd. Á hinn bóginn eru stjórnvöld
sökuð um að hafa vísvitandi komið
þessum átökum af stað í von um að
geta notað öngþveitið til að styrkja
stöðu sína.
Harmleikurinn í Port Saíd hefur
haft mikil áhrif á Egypta, sem gátu
fylgst með því sem gerðist í beinni
útsendingu á fimmtudagskvöldið.
Lífseigasta samsæriskenningin
er sú að lögreglan hafi viljað hefna
sín á aðdáendahópi knattspyrnu-
félagsins Al-Ahly, en þeir hafa
einmitt verið í hópi hörðustu
mótmælendanna á Tahrir-torgi
undanfarið ár.
Stjórnvöld hafa rekið nokkra
embættismenn vegna atburðanna
í Port Saíd, þar á meðal stjórn
Knattspyrnusambands Egypta-
lands.
Herforingjastjórnin í landinu
tók við eftir að Hosni Mubarak for-
seti hrökklaðist frá völdum fyrir
tæpu ári, en á að láta af völdum
síðar á þessu ári.
Þingkosningar hófust í des-
ember og hafa íslamista flokkar
náð meiri hluta í neðri deildinni.
Kosningar til efri deildar þingsins
hófust í byrjun þessarar viku, en
þeim lýkur 22. febrúar.
Að því búnu fær sérstakt stjórn-
lagaþing, kosið af báðum deildum
þjóðþingsins, nokkra mánuði til að
semja nýja stjórnarskrá og loks er
ætlunin að kjósa forseta fyrir mitt
ár. gudsteinn@frettabladid.is
Hörð átök í
Egyptalandi
Annan daginn í röð börðust mótmælendur við lög-
reglumenn í Kaíró í gær í beinu framhaldi af dauðs-
föllunum á fótboltavelli í Port Saíd á fimmtudag.
GRJÓTKAST GEGN TÁRAGASI Nokkur dauðsföll hafa orðið í átökunum síðustu daga.
NORDICPHOTOS/AFP
SAMÞÆTTING
Við hjálpum þér að fá meira út úr fjárfestingu í viðskiptalausnum
með samþættingu við önnur upplýsingakerfi.
VIÐSKIPTALAUSNIR
Bjóðum uppá þrautreyndar viðskiptalausnir,
eins og Microsoft Dynamics NAV og LS Retail.
RÁÐGJÖF
Hjá Rue de Net starfar samstíga hópur sérfræðinga
með áralanga reynslu af rekstri og innleiðingu viðskiptakerfa.
KERFISÖRYGGI
Við tryggjum hámarks virkni og áreiðanleika
viðskiptalausna þinna.
Framúrskarandi
lausnir á einum stað
www.ruedenet i. s
Rue de Net Reykjavík - Vesturgötu 2a, 101 Reykjavík - Sími: 414 5050 - ruedenet@ruedenet.is
REYNSLA, ÞJÓNUSTA OG PERSÓNULEG RÁÐGJÖF
Rue de Net hefur yfir að ráða samstíga hópi sérfræðinga með áralanga reynslu af rekstri viðskiptakerfa,
innleiðingu og samþættingu viðskiptalausna. Við leggjum áherslu á nána og persónulega ráðgjöf þar sem
ráðgjafi Rue de Net kemur að verkferlinu frá byrjun til enda, frá sölu til afhendingar vöru, lausnar og þjónustu.
BANDARÍKIN Hakkarahópurinn
Anonymous hefur birt sím tal
á milli banda rísku alríkis lög-
reglunnar FBI og bresku lög-
reglunnar. Símafundurinn snerist
um rannsóknir á tölvuþrjótum og
hökkurum.
Anonymous birti símtalið, sem
er sautján mínútur, á vef síðunni
YouTube. Þar ræddu lögreglu-
menn um aðgerðir til að stemma
stigu við Anonymous og öðrum
svipuðum hópum. Þar voru fyrir-
hugaðar handtökur ræddar og
smá atriði um sönnunar gögn sem
lögreglan hefur í höndunum. Sím-
talið átti sér stað í síðasta mánuði.
Einnig var birtur tölvupóstur
frá FBI þar sem fram komu tölvu-
póstföng þeirra sem tóku þátt í
símafundi FBI og lögreglunnar.
FBI hefur staðfest að símtalið
hafi verið hlerað og segist munu
finna þá sem bera ábyrgð. Upp-
lýsingarnar hafi aðeins verið
ætlaðar lög reglunni og hlerunin
sé ólög leg. Upptakan er talin vand-
ræða leg fyrir lögreglumennina
sem tóku þátt í fundinum.
Félagar í Anonymous hökkuðu
sig einnig inn á síðu gríska dóms-
mála ráðuneytisins í gær. Það var
gert í mótmælaskyni vegna þess að
Grikkir skrifuðu undir höfundar-
réttar samning og vegna efna-
hags stjórnar þeirra. Í stað heima-
síðunnar birtist í gær myndband
þar sem stóð: „Lýðræðið fæddist
í ykkar landi en þið hafið drepið
það.“ - þeb
Hópurinn Anonymous birti símtal á YouTube í gær:
Hakkarar hleruðu
símtal lögreglumanna