Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 54
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR
Sunna er stórt fjölskyldurekið
gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur.
Það starfar allan ársins hring.
Framundan er annasamur og
skemmtilegur tími.
Við leitum að jákvæðu, ábyrgðafullu og skemmtilegu fólki
til að starfa með okkur:
Framtíðarstarf við vaktavinna í gestamóttöku
Helstu verkefni:
Hæfniskröfur:
Sumarstarf í gestamóttöku
Helstu verkefni:
Hæfniskröfur:
Sumarstarf við framreiðslu á morgunverði
-
-
Hæfniskröfur:
RAFVIRKI BORGARNESI
Límtré Vírnet ehf í Borgarnesi vill ráða rafvirkja og
eða nema í rafvirkjun til framtíðarstarfa.
Hjá fyrirtækinu starfa núna í Borgarnesi þrír rafvirkjar
sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Helstu verkefni
eru í viðhaldi véla og húsnæðis fyrirtækisins, en
jafnframt þjónusta við fjölbreyttan hóp viðskiptavina
á Vesturlandi, við viðhald og nýlagnir.
VÉLVIRKI SUÐURLANDI
Límtré Vírnet ehf leitar að vélvirkja til starfa til að
sinna viðhaldi í einingaverksmiðjunni í Reykholti og
límtrésverksmiðjunni áFlúðum.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af nýsmíði,
viðhaldi og viðgerðum, ásamt því að hafa frumkvæði
og skipulagshæfileika.
Nánari upplýsingar gefur Aðalsteinn Símonarson,
sími 412 5302 eða netfang alli@limtrevirnet.is.
Umsóknarfrestur er til 12. febrúar.
Ríkisskattstjóri leitar að öflugum og jákvæðum
einstaklingi til starfa við eftirlit með beitingu alþjóðlegra
reikningsskilastaðla auk annarra verkefna.
Menntunar- og hæfnikröfur
Löggilding í endurskoðun eða viðskiptafræðimenntun
með sérhæfingu á sviði endurskoðunar og reikningsskila
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Mjög góð samskiptahæfni
Upplýsingar um starfið veitir Inga Hanna Guðmundsdóttir
starfsmannastjóri RSK í síma 442 1151.
Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við BHM.
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu embættisins, www.rsk.is,
eða á Starfatorgi. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar
m.a. um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað er máli skiptir
þarf að fylgja með.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2012.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin
um ráðningu.
Upplýsingar um embættið má finna á vefsíðu þess www.rsk.is.
Eftirlit með beitingu
alþjóðlegra
reikningsskilastaðla
Garðyrkjufólk óskast til starfa
Umhverfis- og samgöngusvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða garðyrkjumenn til starfa á verkbækistöð garðyrkjunnar. Væntan-
legir starfsmenn þurfa að hafa góða almenna þekkingu á öllu er lítur að viðhaldi skrúðgarða og útivistarsvæða, hafa bílpróf og færni í
mannlegum samskiptum.
Störfin tilheyra Skrifstofu náttúru og útivistar en meðal verkefna hennar er viðhald allra skrúðgarða borgarinnar, trjágróðurs og
blómabeða á opnum svæðum og stofnanalóðum. Gróðursetningar á grænum svæðum og umsjón með ræktun og gerð náttúrustíga í
útmörkinni, þ.e. á skógræktarsvæðum og þar sem náttúrulegt yfirbragð er látið halda sér í meginatriðum.
Krafist er náms frá Garðyrkjuskóla ríkisins eða sambærilegrar menntunar frá erlendum garðyrkjuskólum og reynslu af garðyrkjustörfum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar
um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Gunnsteinn Olgeirsson yfirverkstjóri -Verkbækistöð 2 í síma 411 1111.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um stafið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is . Ferilskrár, afrit af prófskírteinum og
önnur gögn skal senda inn sem viðhengi með umsókn eða á netfangið helga.bjorg.ragnarsdottir@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og
með 19. febrúar 2012.
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar er eitt af fagsviðum borgarinnar og samanstendur af skrifstofum Samgöngumála,
Neyslu og úrgangs og Náttúru og útivistar, auk Staðardagskrár 21, Bílastæðasjóði og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem skiptist í tvær
deildir: Umhverfiseftirlit og Matvælaeftirlit auk þess sem Heilbrigðiseftirlitið sér um vöktun umhverfisgæða og hundaeftirlit.