Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 54

Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 54
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR Sunna er stórt fjölskyldurekið gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur. Það starfar allan ársins hring. Framundan er annasamur og skemmtilegur tími. Við leitum að jákvæðu, ábyrgðafullu og skemmtilegu fólki til að starfa með okkur: Framtíðarstarf við vaktavinna í gestamóttöku Helstu verkefni: Hæfniskröfur: Sumarstarf í gestamóttöku Helstu verkefni: Hæfniskröfur: Sumarstarf við framreiðslu á morgunverði - - Hæfniskröfur: RAFVIRKI BORGARNESI Límtré Vírnet ehf í Borgarnesi vill ráða rafvirkja og eða nema í rafvirkjun til framtíðarstarfa. Hjá fyrirtækinu starfa núna í Borgarnesi þrír rafvirkjar sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Helstu verkefni eru í viðhaldi véla og húsnæðis fyrirtækisins, en jafnframt þjónusta við fjölbreyttan hóp viðskiptavina á Vesturlandi, við viðhald og nýlagnir. VÉLVIRKI SUÐURLANDI Límtré Vírnet ehf leitar að vélvirkja til starfa til að sinna viðhaldi í einingaverksmiðjunni í Reykholti og límtrésverksmiðjunni áFlúðum. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af nýsmíði, viðhaldi og viðgerðum, ásamt því að hafa frumkvæði og skipulagshæfileika. Nánari upplýsingar gefur Aðalsteinn Símonarson, sími 412 5302 eða netfang alli@limtrevirnet.is. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar. Ríkisskattstjóri leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi til starfa við eftirlit með beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla auk annarra verkefna. Menntunar- og hæfnikröfur Löggilding í endurskoðun eða viðskiptafræðimenntun með sérhæfingu á sviði endurskoðunar og reikningsskila Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Mjög góð samskiptahæfni Upplýsingar um starfið veitir Inga Hanna Guðmundsdóttir starfsmannastjóri RSK í síma 442 1151. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við BHM. Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu embættisins, www.rsk.is, eða á Starfatorgi. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað er máli skiptir þarf að fylgja með. Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2012. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Upplýsingar um embættið má finna á vefsíðu þess www.rsk.is. Eftirlit með beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla Garðyrkjufólk óskast til starfa Umhverfis- og samgöngusvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða garðyrkjumenn til starfa á verkbækistöð garðyrkjunnar. Væntan- legir starfsmenn þurfa að hafa góða almenna þekkingu á öllu er lítur að viðhaldi skrúðgarða og útivistarsvæða, hafa bílpróf og færni í mannlegum samskiptum. Störfin tilheyra Skrifstofu náttúru og útivistar en meðal verkefna hennar er viðhald allra skrúðgarða borgarinnar, trjágróðurs og blómabeða á opnum svæðum og stofnanalóðum. Gróðursetningar á grænum svæðum og umsjón með ræktun og gerð náttúrustíga í útmörkinni, þ.e. á skógræktarsvæðum og þar sem náttúrulegt yfirbragð er látið halda sér í meginatriðum. Krafist er náms frá Garðyrkjuskóla ríkisins eða sambærilegrar menntunar frá erlendum garðyrkjuskólum og reynslu af garðyrkjustörfum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Nánari upplýsingar um störfin veitir Gunnsteinn Olgeirsson yfirverkstjóri -Verkbækistöð 2 í síma 411 1111. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um stafið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is . Ferilskrár, afrit af prófskírteinum og önnur gögn skal senda inn sem viðhengi með umsókn eða á netfangið helga.bjorg.ragnarsdottir@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2012. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar er eitt af fagsviðum borgarinnar og samanstendur af skrifstofum Samgöngumála, Neyslu og úrgangs og Náttúru og útivistar, auk Staðardagskrár 21, Bílastæðasjóði og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem skiptist í tvær deildir: Umhverfiseftirlit og Matvælaeftirlit auk þess sem Heilbrigðiseftirlitið sér um vöktun umhverfisgæða og hundaeftirlit.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.