Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 84
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR52
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Frjáls! Guð minn
almáttugur!
Mér fannst betra
þegar þú flokkaðir
þvottinn minn
eftir lit.
Ekki nógu
hreint fyrir
róna.
Skítugt. Ógeðslegt.
Ógeðslegt.
Viðbjóðslegt.
Ógeðslegt.
Þvílíkur
morgunn! Já.
Þau eru svo
frábærir krakkar.
Við hljótum
að vera að
gera eitt-
hvað rétt.
Já. Nú þurfum
við bara að finna
út hvað það er.
LÁRÉTT
2. vag, 6. kúgun, 8. nögl, 9. skora, 11.
í röð, 12. drepsótt, 14. virki, 16. gyltu,
17. flík, 18. hrópa, 20. gjaldmiðill, 21.
sleit.
LÓÐRÉTT
1. húsaþyrping, 3. í röð, 4. dagatal, 5.
gláp, 7. kálsoð, 10. fúsk, 13. útdeildi,
15. dreifa, 16. haf, 19. tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kjag, 6. ok, 8. kló, 9. rák,
11. mn, 12. plága, 14. skans, 16. sú,
17. fat, 18. æpa, 20. kr, 21. rauf.
LÓÐRÉTT: 1. þorp, 3. jk, 4. almanak,
5. gón, 7. kálsúpa, 10. kák, 13. gaf,
15. strá, 16. sær, 19. au.
Það er erfitt að vera fauskur. Samkvæmt fleygum ummælum eru hvítir, kristnir,
gagnkynhneigðir, miðaldra karlmenn þeir
einu sem ekkert slæmt má segja um. Fyrir
vikið virðist mega láta hvað sem er flakka
um þá. Í raun vantar mig aðeins byssuleyfið
til að vera að margra mati holdgervingur
alls sem að er í heiminum.
EN HVAÐ getur þá hress gaur eins og ég
gert til að halda hippinu og kúlinu þegar
hann stendur frammi fyrir því að árin hafa
gert hann að fauski? Er það yfirhöfuð hægt?
Þegar ég var unglingur fannst mér ekkert
aumkunarverðara en fólk á aldur við for-
eldra mína sem þóttist svalt með því að
reyna að tileinka sér tísku minnar kyn-
slóðar í tónlist og klæðaburði.
FAUSKURINN gegnir hlutverki. Honum
ber að hneykslast á ungu fólki. Það er
skylda hans gagnvart yngri kynslóðum að
sýna þeim að þær hafi sinnt þeirri
menningarlegu skyldu sinni að
ganga fram af honum. Þannig
er tuð fausks rós í hnappa-
gat ungs listafólks.
EN HVERNIG getur fauskur-
inn sinnt þessari samfélags-
legu skyldu af ábyrgð og
kærleika? Það gerir hann
ekki með því að sparka í
liggjandi menn og hæðast
að þeim sem eiga erfitt uppdráttar. Aftur á
móti hlýtur hann að mega dangla í þá sem
standa traustum fótum, rétt eins og mín
kynlóð ólst bæði upp við Ísbjarnarblús og
Spaugstofusketsa um „Subba Skorsteins“.
Það ætlaðist enginn til þess að Spaugstofu-
menn lægju flatir fyrir Utangarðsmönnum
og ég þarf ekkert að afsaka það að ég liggi
ekki marflatur fyrir „krúttunum“.
UNGU fólki ber að gera uppreisn. Það er í
eðli þess. Það liggur jafnframt í hlutarins
eðli að uppreisn gegn pönki getur ekki verið
meira pönk. Nýja uppreisnin er því í því
fólgin að vinda ofan af hamsleysinu og tryll-
ingnum. Þetta er eðlileg og jafnvel óum-
flýjanleg þróun, hugsanlega heillavænleg.
En það breytir því ekki að í eyrum manns
sem hafði himin höndum tekið með Geisla-
virkum hljómar þessi tónlist eins og tilgerð-
arlegt mjálm.
ÞAÐ háir fausknum að aldurinn ljær honum
virðuleika sem gerir það að verkum að fólki
hættir til að taka hann alvarlega. Mér er
það algjör nýlunda sem ég hef ekki enn van-
ist. Stundum skýt ég mig því í fótinn með
kerskni sem skilin er sem illt innræti og
atlaga að einstaklingum.
ANNAÐ sem ég hef ekki enn vanist, þótt
ég reki mig æ oftar á það, er hve hættulegt
sjálfsháð er í hópi húmorslausra. Vonandi
venst ég því aldrei.
Tilvistarkreppa fausks
Verslunin flytur
Opnum í Þönglabakka 4
( við hliðina á póstinum )
kl 12.00 í dag
laugardaginn 4. febrúar
Verið velkomin
Garnbúðin Gauja Þönglabakka 4 Sími 571-2288