Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 36
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR36
V
ið vinnum að því af
öllum mætti að upp-
ræta hómófóbíu. Það
er skylda okkar og
allir ættu að finna til
ábyrgðar gagnvart
því verkefni. Við viljum að yfir-
völd, félög og stuðningsmenn til-
einki sér hugarfarið „og hvað með
það?“ varðandi samkynhneigð í fót-
bolta,“ segir í yfirlýsingu sem leik-
mannasamtök ensku deildarinnar
sendu frá sér í vikunni.
Í yfirlýsingunni er greint frá
þeim áformum samtakanna að
senda öllum 92 félögunum í deild-
inni plakat og fræðslumynd sem
tileinkuð eru baráttunni gegn for-
dómum gagnvart samkynhneigðum
innan íþróttarinnar. Öðrum þræði
er herferðinni, sem nýtur meðal
annars stuðnings enska knatt-
spyrnusambandsins, ætlað að full-
vissa samkynhneigða knattspyrnu-
menn um að kjósi þeir að koma
opinberlega út úr skápnum hljóti
þeir stuðning liðs síns, liðsfélaga
og almennings.
Brautryðjandinn Fashanu
Umræðan um samkynhneigð og
íþróttir skýtur reglulega upp koll-
inum í Bretlandi. Hún minnti og
rækilega á sig í vikunni vegna yfir-
lýsingar leikmannasamtakanna, en
ekki síður þegar BBC frumsýndi
nýjan sjónvarpsþátt um efnið,
Britain‘s Gay Footballers, sem
vakti mikla athygli þar í landi.
Í þættinum rifjar fyrirsætan
Amal Fashanu, dóttir atvinnu-
mannsins fyrrverandi Johns
Fashanu, upp sorgarsögu föður-
bróður síns, Justins Fashanu, sem
var fyrsti atvinnumaðurinn í knatt-
spyrnu sem kom opinberlega út úr
skápnum árið 1990. Justin Fashanu
varð einnig fyrsti svarti leikmað-
urinn sem var seldur milli félaga
fyrir meira en eina milljón punda,
þegar Nottingham Forest keypti
hann frá Norwich City árið 1981,
og þannig brautryðjandi á ýmsum
sviðum.
Velgengnin á vellinum endur-
speglaðist þó ekki í einkalífi
Fashanu. Snemma fóru að berast
út sögusagnir um tíðar heimsóknir
hans á skemmtistaði ætlaða sam-
kynhneigðum og hlaut leikmað-
urinn bágt fyrir hjá liðsfélögum
sínum, knattspyrnustjórum (Brian
Clough, stjóri Nottingham Forest,
kallaði Fashanu opinberlega „poof“,
skammaryrði yfir homma, eftir að
sá síðarnefndi kom út úr skápnum)
og áhorfendum sem jusu yfir hann
svívirðingum við hvert tækifæri.
Sjálfstraustið dvínaði með hverju
árinu og náði Fashanu aldrei sínu
fyrra formi. Hann gerði opinber-
lega grein fyrir samkynhneigð
sinni í viðtali við slúðurblaðið The
Sun árið 1990 og í kjölfarið afneit-
Veit kærastinn að þú ert hérna?
Umræðan um samkynhneigð og íþróttir minnti rækilega á sig í Bretlandi í vikunni í kjölfar átaks leikmannasamtaka ensku
deildarinnar til að berjast gegn fordómum og sýningu sjónvarpsþáttar um efnið. Kjartan Guðmundsson kannaði málið.
FYRSTI OG EINI Justin Fashanu varð fyrstur og er hingað til sá eini enski atvinnumaður í knattspyrnu til að koma opinberlega út úr
skápnum. Hann svipti sig lífi árið 1998. NORDICPHOTOS/AFP
Englendingurinn John Amaechi komst á spjöld sögunnar þegar hann skoraði
fyrstu stig nýrrar aldar í NBA-deildinni.
Öllu meiri athygli vakti þó sjálfsævisaga
hans, Man in the Middle sem hann gaf út
árið 2007, nokkrum árum eftir að hann
lagði skóna á hilluna, en í henni kom
Amaechi út úr skápnum og varð þann-
ig fyrsti NBA-leikmaðurinn til að ræða
samkynhneigð sína opinberlega.
Á ferlinum lék Amaechi meðal ann-
ars með Orlando Magic og Utah Jazz.
Í bókinni ræðir Amaechi um þá innri
baráttu sem hann átti í öll þau fimmtán
ár sem hann lék körfubolta, hvernig
hann hugsaði stöðugt um að koma út
úr skápnum en gat ekki hugsað sér það
vegna þess öfga-karlmennskuandrúms-
lofts sem ríkti í kringum íþróttina, og
í raun flestar aðrar íþróttir. Í stað þess
lifði Amaechi tvöföldu lífi, ferðaðist
milli borga til að sækja skemmtistaði
sem vinsælir voru meðal samkyn-
hneigðra og lifði sínu ástalífi í felum.
Jafnvel umboðsmaðurinn hans vissi
ekki um samkynhneigðina fyrr en þeir
höfðu unnið saman í dágóðan tíma.
„Það var ekki fyrr en hann kom heim
til mín og heyrði óminn af rödd Karen
Carpenter í gegnum útidyrahurðina
sem hann grunaði eitthvað. Svo sá
hann regnbogalitaða handklæðið mitt
á baðherberginu og þá varð hann alveg
viss,“ segir Amaechi í bók sinni. „Hann
sagði mér að ég hlyti að vera eini
íþróttakappinn í sögunni sem þurrkaði
sér með handklæði í regnbogalitum og
raulaði með laginu „We‘ve Only Just
Begun.“
Viðbrögðin við bók Amaechi voru
mikil og blendin. Leikmaðurinn Tim
Hardaway sagðist til dæmis aðspurður
„hata homma“, en Shaquille O’Neal og
Grant Hill studdu ákvörðun Amaechis.
■ FYRSTI NBA-LEIKMAÐURINN ÚT ÚR SKÁPNUM
aði bróðir hans, John Fashanu sem
lék meðal annars með Wimbledon
á gifturíkum ferli, honum í fjöl-
miðlum.
Eftir að hafa þvælst á milli liða
í Evrópu og Bandaríkjunum lagði
Fashanu skóna á hilluna árið 1997.
Ári síðar var hann kærður fyrir
kynferðisbrot gegn sautján ára
gömlum dreng í Bandaríkjunum
og framdi í kjölfarið sjálfsmorð
í London. Í kveðjubréfi sínu hélt
hann fram sakleysi sínu, en síðar
kom í ljós að rannsókn málsins
hafði þegar verið hætt vegna skorts
á sönnunargögnum.
Hvers vegna engir fleiri?
Fram til þessa dags er Justin
Fashanu eini atvinnufótboltamað-
urinn í Bretlandi sem komið hefur
út úr skápnum, í það minnsta
meðan á sjálfum knattspyrnuferlin-
um stendur. Slíkt er ólíkt algengra
meðal knattspyrnukvenna, en ekki
virðist miklu púðri hafa verið eytt
í að kanna ástæður þess misræmis.
Undirliggjandi í sjónvarpsþætti
Amal Fashanu á BBC er spurning-
in hvers vegna fleiri hafi ekki fylgt
í fótspor frænda hennar og komið
út úr skápnum, þar sem almennur
líkindareikningur geri ráð fyrir að
samkynhneigðir knattspyrnumenn
hljóti að vera allnokkrir talsins.
Svaranna leitar Fashanu í heim-
sóknum á fótboltavelli og samræð-
um við leikmenn, sem og aðra sem
starfa innan geirans, og virðast ansi
skiptar skoðanir um ástandið í dag.
Fashanu ferðast meðal annars
til Brighton, sem stundum er nefnd
höfuðborg samkynhneigðra í Bret-
landi, sækir leik með Brighton
Hove & Albion og spjallar við
aðdáendur liðsins. Þar heyrir hún
stuðningsmenn mótherjanna ein-
beita sér að tengingu borgarinn-
ar við samkynhneigð í söngvum
sínum og fræðist um að þannig sé
það á hverjum einsta leik. „Does
your boyfriend know you‘re here?“
og „Stand up if you can‘t sit down“
er meðal þess sem þeir kyrja, en
stuðningsmenn Brighton svara með
„You‘re too ugly to be gay“.
Þá veltir ungur stuðningsmaður
Brighton því upp hvort ekki ætti að
gera fordóma gegn samkynhneigð
á fótboltavöllum ólöglega rétt eins
og kynþáttafordóma, en málaferli
vegna hinna síðarnefndu hafa verið
einkar áberandi í Englandi síðustu
vikur og mánuði.
Joey Barton hrósað
Í sama streng tekur fyrrum NBA-
leikmaðurinn John Amaechi, sem
einnig er breskur og vikið er að
nánar hér á síðunni, og segir að
ensk knattspyrnuyfirvöld gætu
hæglega náð mun betri árangri í
baráttunni við þessa fordóma en
verið hefur. Peningarnir séu vissu-
lega til staðar, og í ótrúlega miklu
magni, en svo virðist sem enginn
raunverulegur áhugi sé á að tækla
vandamálið. Í framhaldi af því má
velta fyrir sér hvort það að senda
plaköt og DVD-myndir til félag-
anna í deildinni, eins og minnst var
á í upphafi, endurspegli í raun ein-
beittan vilja til árangurs í þessum
efnum.
Amal Fashanu segist í þættinum
handviss um að þátttaka vinsælla
leikmanna, sem margir hverjir eru
fyrirmyndir ungs fólks um allan
heim, í hvers kyns baráttu gegn
slíkum fordómum myndi skila sér
margfalt til baka. Hún hafði sam-
band við marga af þekkstustu leik-
mönnum deildarinnar, meðal ann-
arra þá John Terry, Rio Ferdinand,
Frank Lampard og Theo Walcott,
en enginn þeirra gaf kost á sér í
viðtal fyrir þáttinn.
Eini úrvalsdeildarleikmaðurinn
sem sem vildi, eða hafði tíma til, að
ræða opinskátt um samkynhneigð
í enska boltanum er Joey Barton,
leikmaður QPR, sem oftar en ekki
hefur komist í fréttir vegna skap-
ofsa á vellinum og utan hans. Hefur
Barton verið hrósað mjög í fjölmiðl-
um ytra fyrir þátttöku sína í þætt-
inum, en þar ræðir hann meðal
annars um frænda sinn sem er
samkynhneigður og stemninguna í
búningsherbergjum fótboltamanna,
þar sem nánast virðist bannað að
ræða um annað en stelpur, bíla og,
jú, fótbolta.