Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 96
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR64
sport@frettabladid.is
ÞÓREY RÓSA STEFÁNSDÓTTIR hefur framlengt samning sinn við danska liðið Team Tvis Holstebro
um tvö ár. Þórey Rósa var í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu á HM í Brasilíu og henni er ætlað stórt hlutverk
í Danmörku. „Ég trúi því að hún verði ein sú besta í sinni stöðu í deildinni,” sagði Niels Agesen, þjálfari liðsins.
Það er ekki farinn
samningur út úr mínu
húsi og það er í rauninni það
eina sem ég get sagt.
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON
HANDKNATTLEIKSMAÐUR
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
13.00 Arsenal - Blackburn Sport 2 & HD
15.00 WBA - Swansea Sport 2 & HD
15.00 QPR - Wolves Sport 3
15.00 Norwich - Bolton Sport 4
15.00 Stoke - Sunderland Sport 5
15.00 Wigan - Everton Sport 6
17.30 Man. City - Fulham Sport 2 & HD
Sunnudagur:
13.30 Newcastle - A. Villa Sport 2 & HD
16.00 Chelsea - Man. Utd. Sport 2 & HD
FÓTBOLTI Árið hefur ekki byrjað vel
hjá Manchester City en liðið hefur
ekki unnið nema þrjá af síðustu níu
leikjum sínum í öllum keppnum.
Liðið hefur á síðustu vikum
fallið úr leik í bæði bikarnum og
deildar bikarnum og í vikunni náðu
grannarnir í Manchester United að
jafna liðið að stigum á toppi ensku
úrvals deildarinnar.
City-menn eiga þó ágætis mögu-
leika á að endur heimta forystuna
um helgina. Fyrir fram má áætla að
verk efni liðsins um helgina sé tals-
vert auð veldara en hjá Manchester
United og Tottenham sem koma í
næstu sætum á eftir. City mætir
Fulham á heima velli í dag en
United þarf að fara á erfiðan úti völl
og leika gegn Chelsea á morgun.
Hið sama á við um Tottenham sem
mætir Liverpool á Anfield á mánu-
dags kvöldið.
Líkurnar á því að City misstígi
sig gegn Fulham í dag eru ekki
miklar. Liðið er með 100 prósenta
árangur í deildinni á heimavelli –
hefur unnið alla ellefu leiki sína
með markatölunni 34-6.
Íslendingaliðin QPR og Wolves
mætast í dag en þar sem Heiðar
Helguson er frá vegna meiðsla mun
hann ekki spila með fyrrnefnda
liðinu. Eggert Gunnþór Jónsson
var í byrjunarliði Wolves í vikunni
er liðið tapaði fyrir Liverpool.
Gylfi Þór Sigurðsson verður
væntanlega í liði Swansea sem
mætir West Brom, rétt eins og
Grétar Rafn Steinsson hjá Bolton
sem mætir Norwich. - esá
Heilmikið undir í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar nú um helgina:
City þarf að komast aftur á skrið
EKKI MEÐ John Terry er meiddur á
hné og verður ekki með Chelsea gegn
United. NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son segir að það sé ekki rétt sem
spurðist út í gær að hann væri
búinn að semja við þýska stórliðið
Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar
og Aron Pálmarsson leikur með.
„Það er ekki farinn neinn samn-
ingur frá mér, með mínu nafni út
úr mínu húsi. Ég er ekki búinn að
gera samning við neinn,“ sagði
Guðjón Valur þegar Fréttablaðið
náði tali af honum í gær. Mikið
var að gera hjá Guðjóni í símanum
í gær eftir að sú saga fór í gang að
hann væri búinn að semja við Kiel.
„Fyrir mér er það þannig að allt
er orðið klárt þegar samningur
sem ég hef skrifað undir er
kominn í hendurnar á þeim sem
ég var að semja við. Það er ekki
farinn samningur út úr mínu húsi
og það er í rauninni það eina sem
ég get sagt.“
Guðjón viðurkennir að hann
sé kominn með samningstilboð
í hendurnar sem verið sé að fara
yfir.
„Það er orðið svolítið þreytt að
þurfa að svara daglega um eitt-
hvað sem gæti kannski gerst,“
sagði hornamaðurinn.
Danska liðið AG, sem Guðjón
spilar með í dag, dró samnings-
tilboð sitt til Guðjóns til baka á
dögunum og er búið að semja við
sænska hornamanninn Fredrik
Petersson í hans stað. „Ég skil
vel að sögusagnir fari í gang á
meðan ég er í þessari stöðu en það
er ekkert undirskrifað og ekkert
staðfest.“
Guðjón viðurkennir að ýmislegt
hafi verið í pípunum hjá honum
eftir EM og vonast til þess að hans
mál komist á hreint um helgina
eða strax eftir helgi.
„Umboðsmaðurinn minn var
að tala við þrjú félög um síðustu
helgi og ég geri ráð fyrir því að nú
um helgina verði allt frágengið.
Í byrjun næstu viku ætti því
vonandi að liggja fyrir hvar ég
spila handbolta næsta vetur.“
Fjölmörg sterk félög eru í leit
að vinstri hornamanni og Guðjón
Valur sagði er hann skrifaði undir
hjá AG á sínum tíma að hann vildi
taka þátt í þeim dansi sem nú er í
gangi er þessi félög leita að nýjum
hornamanni.
Kiel er eitt þessara félaga enda
er sænski hornamaðurinn Henrik
Lundström á leið frá félaginu
næsta sumar. Fyrir hjá félaginu
er síðan þýski landsliðsmaðurinn
Dominik Klein.
Það er að ýmsu að hyggja hjá
Guðjóni Val um helgina því hann
er á leið til Álaborgar með AG
þar sem liðið mun taka þátt í
úrslitahelginni í bikarnum. Þar
eru Danmerkurmeistararnir ansi
líklegir til afreka.
„Við ætlum okkur auðvitað stóra
hluti þar og það verður gaman að
taka þátt í þessari helgi,“ sagði
Guðjón Valur en ef AG fer með
sigur af hólmi yrði það fyrsti titill
hans með félaginu en með AG leika
einnig þeir Arnór Atlason, Snorri
Steinn Guðjónsson og Ólafur
Stefánsson. henry@frettabladid.is
Er ekki búinn að semja
Guðjón Valur Sigurðsson segir að það sé rangt sem kvisaðist út í gær að
hann væri búinn að semja við þýska félagið Kiel, sem hefur augastað á leik-
manninum. Hans mál skýrast um helgina eða eftir helgi. Þrjú félög í sigtinu.
EKKERT UNDIRRITAÐ Guðjón Valur talar varlega en býst við því að hans mál verði
kláruð um helgina eða strax eftir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Aron Pálmarsson,
leikmaður Kiel, er á ágætum
batavegi eftir að hafa fengið
heiftarlega matareitrun sem
hefur haldið honum í rúminu alla
helgina.
„Ég fékk þetta annað hvort í
Liverpool eða Kaupmannahöfn.
Ég varð fárveikur á mánudaginn
og hef verið slappur síðan,“ sagði
Aron í samtali við Fréttablaðið í
gær. Hann nýtti fríið eftir EM til
þess að skella sér á leik Liverpool
og Man. Utd. um síðustu helgi. Í
því fríi fékk hann máltíð sem var
augljóslega ekki í lagi.
„Ég hef verið í meðferð
hjá liðslækninum síðan þá og
þurft að fá næringu í æð meðal
annars. Þetta er hundfúlt því ég
vildi vera að æfa en það er lítið
við þessu að gera. Ég er samt
boðaður á æfingu í fyrramálið [í
dag] og mun láta reyna á þetta.
Ég hlýt að vera orðinn góður um
helgina,“ sagði Aron brattur.
Fyrsti leikur Kiel eftir
Evrópumeistaramótið er næsta
fimmtudag og Aron ætti að vera
orðinn fullgóður þá. - hbg
Aron Pálmarsson:
Fékk slæma
matareitrun
ARON PÁLMARSSON Spilaði virkilega vel
fyrir Ísland á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hefst sunnudaginn 12. febrúar
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
2 fyrir 1
af lambasamlokum
í febrúar.
Nýbýlavegi 32 www.supersub.is
KÖRFUBOLTI Undanúrslit Powe-
radebikars karla fara fram
annað kvöld þegar Keflavík fær
KFÍ í heimsókn í Toyota-höllina
í Keflavík og Tindastóll tekur
á móti KR á Króknum en báðir
leikir hefjast klukkan 19.15.
KR-ingar, sem hafa unnið alla
átta bikar leiki sína undir stjórn
Hrafns Kristjánssonar, eiga titil
að verja og gætu komist í Laugar-
dals höllina í þriðja sinn á fjórum
árum. KR sló Tinda stól út í undan-
úrslitunum í fyrra en sá leikur
fór fram fyrir sunnan. Nú mætast
liðin í Síkinu á Sauðár króki og
Stólarnir geta þar komast í bikar-
úrslita leikinn í fyrsta sinn í sögu
félagsins. Tinda stóll hefur tapað
fjórum sinnum í undan úrslitum
en aldrei verið á heima velli.
Keflavík og KFÍ hafa beðið
mislengi eftir að komast í úr-
slitin. Keflavík hefur tapað
tveimur síðustu undanúrslita-
leikjum sínum og voru síðast í
höllinni fyrir sex árum en Ísfirð-
ingar komust í fyrsta og eina
skiptið í bikarúrslit árið 1998. - óój
Undanúrslit bikarsins:
Skrifa Stólarnir
nýja sögu?
SVAVAR BIRGISSON Reynsluboltinn í liði
Tindastóls. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NFL Hinn árlegi leikur um Ofur-
skálina (e. Super Bowl) fer fram
aðfaranótt mánudags en í þetta
sinn eigast við lið New England
Patriots og New York Giants.
Þessi sömu lið áttust við árið
2008 en þá hafði Giants betur.
Tom Brady og félagar í Patriots
fá nú tækifæri til að hefna fyrir
tapið og eru þeir taldir sigur-
stranglegri. Manning hjá Giants
hefur hins vegar oft tekist að ná
sínu besta fram á ögurstundu.
Leikurinn verður sýndur á
ESPN America sem má finna á
Fjölvarpi Stöðvar 2. - esá
Hápunktur NFL-tímabilsins:
Ná Patriots
fram hefndum?