Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 40
heimili&hönnun4
„Ég hef oftast búið í miðbænum
eða Vesturbænum en er nú komin
í Kópavoginn í fyrsta sinn,“ segir
Guðrún Dís Emilsdóttir, Gunna
Dís dagskrárgerðarmaður á Rás
2, sem býr með unnusta og þriggja
ára einkadóttur í gömlu einbýlis-
húsi í vesturbæ Kópavogs. „Það
var svolítið skrítið fyrst, en okkur
líður vel hér. Þetta er mjög rólegt
og gróið hverfi en samt svo stutt að
fara hvert sem maður þarf. Þetta er
eiginlega miklu meiri miðja heldur
en miðbærinn í Reykjavík, þótt það
fari auðvitað eftir því við hvað þú
miðar.“
Gunna Dís segist alltaf hafa lagt
mikla áherslu á að hafa notalegt
í kringum sig, en hún leggi ekki
mikið upp úr því að fylgja tísku-
straumum eða eignast hluti eftir
einhverja sérstaka hönnuði. „Ég er
ekki vel að mér í einhverri hönnun
og slíku,“ segir hún, „ég veit bara
hvað mér finnst fallegt. Ég er líka
mikið fyrir gamla hluti með sál, sér-
staklega hluti sem hafa verið lengi
í eigu fjölskyldunnar. Ég á stóla frá
ömmu og afa og skenk frá pabba
og mömmu og fleira í þeim dúr.
Mér líka ekki vel heimili sem eru
steríl og líta út eins og sýningarsal-
ir. Heimili er staður sem manni á að
líða vel á. Ég vil hafa heimilið svolít-
ið kaótískt en samt auðvitað huggu-
legt.“
Efst á lista yfir það sem skap-
ar notalegheit er kertaljós. „Ég er
kertasjúk, í alvöru,“ segir Gunna
Dís. „Ég þoli ekki loftljós heldur vil
litla, rómantíska og þægilega lýs-
ingu þannig að yfirleitt fylli ég öll
herbergi af kertum.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn á
heimilinu? „Það er bókahornið. Þar
er ég með fullt af bókum, græjurnar
og alla geisladiskana og góðan hæg-
indastól þar sem gott er að sitja og
lesa í bók eða hlusta á tónlist.“ - fsb
Svolítið kaótískt
en huggulegt
● Guðrún Dís Emilsdóttir hefur hreiðrað um sig, ásamt unnusta og dóttur, í gömlu
einbýlishúsi í Kópavogi. Hún segist ekki leggja mikið upp úr hönnun, aðalatriðið sé að hafa
huggulegt í kringum sig og láta sér líða vel heima hjá sér.
Hornskápurinn í borðstofunni er listasmíð, norskur að upp-
runa og minnir á predikunarstól. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mæðgurnar Gunna Dís og Aðalheiður
Helga láta fara vel um sig í eldhúsinu,
umvafðar ljómanum frá ótal kertum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Borðið í bókahorninu fundu þau í runna úti á víðavangi, tóku
með sér heim, þurrkuðu og lökkuðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stofan skartar dýrustu mublu sem Gunna Dís hefur keypt, forláta sófa úr Casa. Þar eru líka stólarnir frá afa og ömmu.
Bókahornið er uppáhaldsstaður Gunnu Dísar. Þar situr hún og les eða hlustar á
músík og lætur fara vel um sig í hægindastólnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● ÁHUGAVERT STOPP Í STOKKHÓLMI Hafsteinn Júlíusson vöruhönn-
uður verður einn þeirra hönnuða sem koma fram á alþjóðlegu PechaKucha-kvöldi
hönnunartímaritisins Form. Hafsteinn hannar undir merkinu HAF og er meðal
annars höfundurinn að Growing Jewellery.
Kvöldið fer fram á Stora Salongen í Berns Salonger við Berzelii Park í Stokk-
hólmi, klukkan 20.20, þriðjudaginn 7. febrúar. Umræðuefnið verður Helsinki
sem hönnunarhöfuðborg heimsins 2012. Einnig koma fram Pekka Timonen,
framkvæmdastjóri World Design Capital Helsinki, Matti Klenell, Julien de Smedt
arkitekt og Jesper Kouthoofd frá Teenage Engineering. Frítt er inn fyrir alla áhuga-
sama um hönnun, opinn bar og DJ.
Hafsteinn á PechaKucha hjá Form
Opið virka daga frá 9.00-18.00
og lau. frá 10.00-16.00
Laugavegi 29 - Sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
HVERFISSTEINAR
Hágæða
brýnsluvélar,
2 stærðir og
mikið úrval
aukahluta
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!