Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 87
LAUGARDAGUR 4. febrúar 2012 55
með Íslenska dansflokknum síðan
2003. „Það er sérstaklega gaman að
hitta höfund verksins, sem er mik-
ils metinn víða. Það fara af honum
alls kyns sögur og því var ég mjög
forvitin, en hann er yndislegur í
alla staði, hlýr og rólegur.“
Naharin er höfundur Gaga-
tækninnar svokölluðu, sem hann
telur skapa flæði í gegnum allan
líkamann og leyfa fullkominn
sveigjanleika. Hann beitti tækninni
í upp hitunartíma með dönsurum
verksins í gær og segir Aðalheiður
tímann einn þann besta sem hún
hefur sótt. „Eftir tímann var ég í
líkamlegri vellíðunarvímu, þetta
var svo ótrúlega gott. Það er svo
gaman að kynnast einhverju nýju
í dansinum. Þegar nýjungagirnin
hverfur er líklega best að hætta.“
Fyrra verk kvöldsins er Groß-
stadtsafari eftir norska Grímuverð-
launahafann Jo Strömgren, sem
frumsýnt var á síðasta ári.
kjartan@frettabladid.is
HJARTA OG RÝMI Ohad Naharin höfundur verður viðstaddur frumsýningu verksins.
Á morgun klukkan 14
verður boðið upp á leiðsögn í
Ásmundar safni með áherslu
á útil ista verk Ásmundar
Sveinssonar og verk í opinberu
rými. Kristín Dagmar
Jóhannes dóttir, list fræðingur
og verkefna stjóri dag skrár
hjá Lista safni Reykja víkur,
segir frá verkum Ásmundar
og hugmyndum hans um
mikilvægi þess að listin sé hluti
af dag legu umhverfi fólks.
Umhverfis Ásmundar safn er
högg mynda garður og prýða
hann nær þrjátíu högg myndir
lista mannsins en gengið verður
um garðinn ef veður leyfir.
Ásmundur stundaði nám við
Sænsku list akademíuna undir
hand leiðslu mynd höggvarans
Carls Milles. Þar kynntist hann
þeirri hugmynd, sem hann að-
hylltist æ síðan, að högg mynda-
listin væri hluti af land slagi
borgarinnar. Ásmundur boð-
aði líka að listin ætti erindi við
fólkið í landinu og ætti heima á
meðal þess. Hann var kallaður
alþýðu skáldið í mynd list sem má
rekja til lífs af stöðu hans ekki
síður en högg mynda hefðarinnar.
Flest verk sín hugsaði hann sem
hluta af opin beru rými, órofa
hluta af umhverfi sínu eða þá að
hann útfærði þau sem hönnunar-
og nytjahlut.
Mikilvægi listar
í umhverfinu
ÁSMUNDARSAFN Þar verður leiðsögn
um verk Ásmundar á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
www.barnamenningarhatid.is
Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 17. – 22. apríl næstkomandi.
Höfuðborgarstofa hvetur alla sem áhuga hafa á því að efla barnamenningu, hverju nafni
sem hún nefnist, að senda inn tillögur að dagskráratriðum fyrir 27. febrúar næstkomandi.
Hátíðin er kærkominn vettvangur fyrir menningu barna, menningu með börnum og menningu
fyrir börn. Þemað að þessu sinni er Uppspretta og má það gjarnan speglast í viðburðum
hátíðarinnar, þó er það ekki skilyrði þátttöku. Við tökum vel á móti öllum tillögum.
Umsóknir berist til karen.maria.jonsdottir@reykjavik.is
eða gudmundur.birgir.halldorsson@reykjavik.is
Vilt þú taka þátt í
Barnamenningarhátíð
í Reykjavík 2012?