Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 49
TOLLSTJÓRI, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, sími: 560 0300, vefur: www.tollur.is
VILT ÞÚ EIGA ÞÁTT Í EINU STÆRSTA
VERKEFNI ÍSLENSKRAR STJÓRNSÝSLU
Á NÆSTU ÁRUM?
Tollstjóri leitar að rétta fólkinu til að taka þátt í spennandi verkefni með samfélagslegum ávinningi. Verkefnið snýr að hönnun
og innleiðingu nýrra tollakerfa til að auðvelda viðskipti milli landa og standa vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs.
Verkefnið tekur mið af bestu framkvæmd og alþjóðlegum stöðlum og felur meðal annars í sér endurhönnun verkferla, hug-
búnaðarþróun, alþjóðleg samskipti og verkefnastjórnun. Í boði eru mikil tækifæri fyrir rétta aðila, áhugaverð og krefjandi störf
sem henta jafnt konum sem körlum.
Sérfræðingur (Alþjóðamál)
Ráðgjöf og aðstoð varðandi samskipti við erlenda samstarfsaðila.
Starfssvið:
>> Umsjón með styrkumsóknum.
>> Ráðgjöf og aðstoð til vinnuhópa verkefnisins.
>> Skýrslugerð.
>> Textagerð og yfirlestur.
Hæfniskröfur:
>> Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
>> Þekking á alþjóðamálum.
>> Reynsla af þýðingavinnu á ensku æskileg.
>> Reynsla af skýrslu- og textagerð æskileg.
>> Reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
>> Öguð vinnubrögð og lipurð í samskiptum eru lykileiginleikar.
>> Góð enskukunnátta skilyrði.
>> Þekking á t.d. Prince2, RUP, Scrum, Agile, SOA, BPM, UML,
BPMN eða BPEL er æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigfríður Gunnlaugsdóttir í síma
560-0445. Umsókn merkt „sérfræðingur (alþjóðamál)“ skilist
rafrænt, starf@tollur.is, fyrir 19. febrúar nk.
Sérfræðingur í gæða- og verkefnastjórnun
Vinnur að stefnumótun, ráðgjöf og fræðslu á sviði gæðamála og verkefna-
stjórnunar. Veitir verkefna- og hópstjórum verkefnisins stuðning í starfi.
Starfssvið:
>> Þátttaka í mótun gæðastefnu og innleiðingu gæðakerfis.
>> Aðstoð við skjalfestingu og uppfyllingu gæðakrafna.
>> Ráðgjöf og fræðsla á sviði gæðamála og verkefnastjórnunar.
>> Aðstoð við áætlanagerð og eftirfylgni.
>> Umsjón með innleiðingu hópvinnukerfis og rekstur þess.
Hæfniskröfur:
>> Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
>> Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar (MPM) er kostur.
>> Leiðtoga- og stjórnunarfærni ásamt þjónustulund, jákvæðni og sjálfstæði.
>> Færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti, hvoru tveggja á
íslensku og ensku.
>> Þekking á aðferðafræði verkefnastjórnunar, t.a.m. Prince2, Agile
og/eða Scrum.
>> Þekking á stöðlum gæða- og verkefnastjórnunar, t.a.m. ISO 9001
og 10006.
>> Reynsla af innleiðingu verkefnastjórnunar og/eða gæðakerfis er kostur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Rut Benediktsdóttir í síma
560-0385. Umsókn merkt „sérfræðingur í gæða- og verkefna-
stjórnun“ skilist rafrænt, starf@tollur.is, fyrir 19. febrúar nk.
Hópstjóri í hugbúnaðarþróun
Stjórn vinnuhóps í endurhönnun og nýsmíði tölvukerfa í nánu
samstarfi við verkefnastjóra viðskiptaferla, sérfræðinga og birgja.
Starfssvið:
>> Stjórn hugbúnaðarverkefna.
>> Þarfagreining og þróun.
>> Samskipti við notendur, stjórnendur, aðra verkstjóra og birgja.
>> Erlend samskipti.
Hæfniskröfur:
>> Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
>> Þekking á hugbúnaðargerð.
>> Þekking á verkefnastjórnun.
>> Þekking á stefnumótun.
>> Reynsla af stjórnun hugbúnaðarverkefna er kostur.
>> Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
>> Þekking á t.d. Prince2, RUP, Scrum, Agile, SOA, BPM, UML,
BPMN eða BPEL er æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Óttar Erlingsson í síma
560-0473. Umsókn merkt „hópstjóri í hugbúnaðarþróun“ skilist
rafrænt, starf@tollur.is, fyrir 19. febrúar nk.
Sérfræðingur í verkferlum
Umsjón með hönnun og endurhönnun verkferla, felur meðal annars í
sér að leiða vinnuhópa og teikna verkferla.
Starfssvið:
>> Verkefnastjórnun.
>> Endurhönnun verkferla og verkferlaskráning.
>> Samskipti við notendur, stjórnendur, aðra verkstjóra og
samstarfsaðila embættis Tollstjóra.
>> Erlend samskipti.
Hæfniskröfur:
>> Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
>> Reynsla af BPM og þekking á endurhönnun verkferla, t.d. með
BPM, BPM2, BPEL eða sambærilegu.
>> Góðir greiningarhæfileikar, samskiptafærni, leiðtogafærni, yfirsýn,
frumkvæði, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð, tölvufærni
og góð enskukunnátta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörn Guðbjörnsson í síma
560-0303. Umsókn merkt „sérfræðingur í verkferlum“ skilist
rafrænt, starf@tollur.is, fyrir 19. febrúar nk.
Gildi Tollstjóra eru traust, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá embættinu munu taka mið af þessum gildum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðeigandi stéttarfélags. Um
starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í
sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.