Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 70
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR38
F
orsenda hjólabrettaiðkunar á
Íslandi er að við höfum innan-
hússaðstöðu. Eins og sést hefur
síðustu tvo mánuði þá hefur verið
alveg ófært utandyra,“ segir
Bjarni Einarsson, sem situr í
stjórn Brettafélags Reykjavíkur.
Brettafélag Reykjavíkur fagn-
ar 17 ára afmæli sínu á þessu ári.
Mikill uppgangur hefur verið hjá
félaginu síðustu ár en nú eru í því
um 80 virkir félagar sem eru á
aldrinum 5 til 45 ára.
Hjólabrettamenn kalla sig
stundum skötur. Að sögn Bjarna
er nafnið dregið af enska orðinu
skate sem og fisknum skötu.
„Árið 2000 vorum með aðstöðu
í gamalli fiskimjölsverksmiðju úti
á Granda. Þið getið rétt ímyndað
ykkur lyktina en þá festist nafn-
ið Skötuhúsið við aðstöðuna eftir
að okkur leið öllum eins og „skötum“ en
ekki „skaters“ þarna inni. Svo eru sköturnar
jaðar dýr eins og við,“ segir Bjarni og hlær.
Eitt það fyrsta sem fólk verður vart við
í brettagarðinum er sú virðing sem hjóla-
brettamennirnir bera hver fyrir öðrum.
Eldri og reyndari brettamenn bíða þolinmóð-
ir á meðan þeir yngri og óreyndari renna sér
og hvetja þá til dáða.
„Í hjólabrettagörðum erlendis getur þú
lent í því að stóri, sterki og tattúveraði hjóla-
brettagaurinn klessir á þig og þú ert í stór-
hættu. Hér er hins vegar pláss fyrir alla og
hér fá allir séns. Það er kúltúrinn sem við
höfum skapað,“ segir Bjarni.
Það hefur reynst þrautinni
þyngra fyrir sköturnar í Bretta-
félaginu að fá aðstöðu fyrir
áhugamál sitt. Á þeim sautján
árum sem félagið hefur verið
starfrækt hefur það verið á sjö
mismunandi stöðum. Síðustu tvö
ár hefur félagið þó verið með
aðstöðu að Seljavegi 2 í Vestur-
bænum.
„Það sem okkur dreymir um
er langtímaleigusamningur fyrir
hjólabrettaaðstöðu innanhúss á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Við
erum rosalega ánægðir hér en
nýtt stálgrindahús á besta stað er
náttúrulega draumurinn,“ segir Bjarni og
hlær. Brettafélagið hefur síðustu ár fengið
leigu- og framkvæmdastyrk frá Reykjavík-
urborg sem félagsmenn eru himinlifandi
yfir. „Það hefur mikil orka farið í að þurfa
alltaf að byggja allt okkar upp á nýtt. Við
erum ánægðir með að hafa fengið að vera
hér síðan 2009 og vonandi verður framhald
þar á,“ segir Bjarni.
Sköturnar
eru jaðardýr
í sjónum eins
og við
Svífandi skötur í Vesturbænum
Hjólabrettafélag Reykjavíkur fagnar 17 ára afmæli sínu á árinu. Brettafólkið, eða sköturnar eins og það kallar sig stundum,
hefur byggt upp starfsemi félagsins með miklum myndarbrag í húsnæði félagsins við Seljaveg. Óvíst er þó um framtíðarhúsnæði
félagsins. Kristján Hjálmarsson og Valgarður Gíslason fylgdust með glæsilegum tilþrifum í Brettagarðinum.
ALLIR VELKOMNIR Þótt félagið sé stofnað og kennt við Reykjavík eru allir velkomnir. „Hingað koma brettastrákar frá öllu höfuðborgarsvæðinu sem og utan af landi. Það skilar sér svo í betri samvinnu þegar brettamenn
útskrifast héðan út í sumarið. Það er eiginlega anti-hrepparígur sem ríkir hér,“ segir Bjarni.
UPPGANGUR Aðstaðan í Brettagarðinum er orðin afar flott og mikill uppgangur er hjá félaginu, nú eru í því um 80 virkir félagar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég var alltaf að renna mér á snjóbretti en vinir mínir voru á hjólabrettum. Ég
ákvað að prófa og mér finnst þetta ógeðs-
lega skemmtilegt, að stökkva og svona,“
segir Sindri Sigþórsson, 12 ára skata úr
Hlíðahverfinu. „Það er svo mikið frelsi
að vera á brettinu.“
Sindri byrjaði að renna sér á hjóla-
bretti í fyrrasumar en er nú þegar orðinn
einn efnilegasti brettamaður landsins.
Hann segist einu sinni hafa meitt sig á
hjólabrettinu. „Ég tognaði þegar ég var
að gera kick-flip í quarter-pipe og svo
meiddi ég mig einu
sinni í ökklanum,“
segir Sindri, sem
var þó ekki með
hjálm á höfði þegar
blaðamann bar að
garði. Hann segir
að mamma hans
vilji að
hann noti
hjálm.
„Ég
var einu
sinni alltaf
með hjálm en
svo fékk ég
gat á hausinn
og mér finnst
svo óþægilegt
að hafa hann
eftir það. En ég
ætla bráðum
að fara að nota
hann aftur.“
■ SINDRI SIGÞÓRSSON
Bretti, plata, áhættu-
viður – hjólabretti
Teilið – afturendinn á
brettinu.
Nósið – Framendinn
á brettinu.
Konkeifið – Skálin í
brettinu.
Regular stance – Ýtir
þér með hægri löpp.
Goofy stance – Ýtir
þér með vinstri löpp.
Switch stance – ýtir
þér eða gerir brellur
öfugt við þína nátt-
úrulegu stöðu.
Mongo – Ýtir þér
með fremri fætinum
(þykir fagurfræðilegt
stórslys).
Ollie – þegar brettið
er dregið upp í loftið
með því að slá aftur-
endanum í jörðina.
Nollie – Þegar brettið
er dregið upp í loftið
með því að slá fram-
endanum í jörðina.
180° – Snýrð líkam-
anum um 180° og
lætur brettið fylgja
með.
Kickflip – Sparkvelta
með tánni.
Heelflip – Sparkvelta
með hælnum.
360° flip – 360°
gráðu sparkvelta.
Popa – Hljóðið,
tilfinningin að slá tail-
inu í jörðina.
Slæda – þegar brettið
eða öxullinn rennur á
kanti eða handriði.
Street – Að takast á
við borgarlandslagið.
Vert – Rampur með
90° halla.
Míní-rampur –
Meðalstór eða lítill
rampur.
Bowlið – Stóri
rampurinn í Innan-
hússaðstöðu BFR.
Flatt-Bank – veggur
með 30° halla.
Wallride – keyrir upp
90° vegg frá jafnsléttu.
Píramídi – Píramídi
sem búið er að skera
toppinn af.
Gapp – ótilgreind
vegalengd á milli
brottfarar og
lendingar.
Bomba – fara hratt.
Hamra – Fara niður
stórar tröppur eða
göpp.
Slamma – Að detta
illa.
Slamm dauðans – Að
detta mjög illa.
Pumpa – Að halda
hraða á rampi.
Með brjálað steez
eða geðveikan stíl
– Sá sem fer út fyrir
þægindarammann
til að láta hlutina líta
betur út.
Krúsa – Sviga og gera
auðveldar brellur með
miklum stíl.
■ ORÐABÓK SKÖTUNNAR
Frelsi sem fylgir
hjólabrettinu
Sköturnar á Vísi
Viðtal við Bjarna Einarsson, sem situr í stjórn Brettafélags Reykjavíkur, má
einnig finna á Vísi.is. Þar má einnig finna myndbönd frá Brettagarðinum sem
og myndbönd frá First try fail Monday á slóðinni www.visir.is/firsttryfailmonday.