Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 8
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR8
ÚKRAÍNA, AP Í Rússlandi og
Úkraínu hafa stjórnvöld lagt
áherslu á að aðstoða heimilislaust
fólk í frost hörkunum, sem kostað
hafa á þriðja hundrað manns lífið
í austanverðri Evrópu undanfarna
daga.
Í Úkraínu voru dauðsföllin
komin yfir hundrað í gær. Flestir
þeirra voru heimilislausir og alls
fundust meira en sextíu þeirra
látnir úti á götum borga landsins.
Ástandið hefur verið verst í
austanverðri Evrópu, en óvenju
miklir kuldar hafa verið í allri
álfunni. Jafnvel í Róm varð vart
við snjókomu í gær, sem er afar
sjaldgæft þar í borg.
Frostið fór niður í 42 gráður
nyrst í Svíþjóð í fyrrinótt og víða í
austanverðri álfunni hefur frostið
verið upp undir eða jafnvel yfir
þrjátíu gráður.
Vetrarhörkurnar í álfunni hafa
nú staðið í viku og áfram er spáð
mjög köldu veðri yfir helgina. - gb
Frosthörkur áfram í Evrópu um helgina:
Tugir hafa fundist
látnir á götum úti
SNJÓRINN Í RÓM Sjaldséð sjón blasti við íbúum og ferðamönnum í höfuðborg Ítalíu
í gær. NORDICPHOTOS/AFP
UMFERÐ Vegagerðin hefur kallað
eftir veðurupplýsingum allt frá
árinu 1995 til að reyna að finna
fylgni milli tíðarfars og sam-
dráttar í umferð. Nýjar tölur sýna
að umferð í nýliðnum janúar-
mánuði dróst saman um ríflega
10 prósent miðað við sama mánuð
fyrir ári síðan. Samdrátturinn er sá
mesti milli janúarmánaða frá því
að saman burður var hafinn.
Friðleifur Ingi Brynjarsson,
verkefnisstjóri hjá Vegagerðinni,
segir samdráttinn svo mikinn að
hann skýrist ekki af veðurfari
einu saman. „Ekki má gleyma að
þessi samdráttur kemur í kjölfarið
á samdrætti í fyrra, sem þá var
með því mesta sem við höfðum
séð,“ segir hann og bendir á að
þrátt fyrir ófærð hafi akstur ekki
dregist saman milli janúarmánaða
á höfuðborgarsvæðinu.
Langmestur sam dráttur um-
ferðar er á Suður landi eða rúmur
fimmtungur. Þar á eftir kemur
Vestur land með 13 prósenta sam-
drátt. Bæði svæðin eru stór atvinnu-
svæði þar sem fólk hefur ekið
langar vegalengdir til vinnu.
Friðleifur Ingi segir hins vegar
ómögulegt að geta sér til um hvaða
þættir vegi þyngst í metsamdrætti
milli ára núna.
„Auðvitað hefur veðrið einhver
áhrif, en væntanlega koma þarna
líka til áhrif af háu eldsneytisverði
og efnahagsástandi í landinu,“
segir hann og gerir sér vonir um
að geta áætlað betur þátt veðursins
þegar búið er að rýna í gögn
Veðurstofunnar. - óká
Tölur Vegagerðarinnar sýna mesta samdrátt umferðar sem um getur á milli janúarmánaða:
Fleira skýrir minni akstur en vond færð
Umferð dregst saman
Munur á janúar 2012 og 2011.
Landsvæði Breyting
Suðurland -21,2%
Höfuðborgarsvæðið -7,4%
Vesturland -13,9%
Norðurland -5,3%
Austurland -5,7%
Samtals -10,2%
Heimild: Vegagerðin.
ÓFÆRÐ Þrátt fyrir snjóþunga minnkaði
ekki umferð á höfuðborgarsvæðinu í
janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1. Hvaða banki tapaði jafngildi 66
milljarða króna á Actavis síðustu
þrjá mánuði ársins 2011?
2. Hvaða íslenski rithöfundur fór í
vettvangsferð til Póllands að undir-
búa næstu glæpasögu sína?
3. Hvaða matvörukeðja hefur
ákveðið að hætta að hafa verslanir
sínar opnar á nóttunni?
SVÖR
1. Deutsche Bank. 2. Óskar Hrafn
Þorvaldsson. 3. Nóatún.
Eldsneytiskostnaður Volkswagen Passat
á hverja 1000 km*
Metan 8.442 kr.
Dísil 13.187 kr.
Bensín 17.059 kr.
www.volkswagen.is
Metanlegur
sparnaður
Volkswagen Passat EcoFuel
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat
* Miðast við almennt verð á
eldsneyti hjá Olís 1. febrúar 2012
Passat kostar aðeins frá
3.990.000 kr.
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Samkvæmt lögum VR gerir Uppstillinganefnd tillögu um skipan í trúnaðarráð félagsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið uppstillinganefnd@vr.is
fyrir kl. 12 á hádegi þann 10. febrúar nk.
Uppstillinganefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins og mögulegt
er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsmanna. Einnig verður litið til félagsaðildar og starfa
fyrir félagið.
Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis stærri málefni
sem upp koma í starfsemi félagsins svo sem við gerð kjarasamninga og stærri framkvæmda.
Uppstillinganefnd VR
Viltu leggja þitt af
mörkum í starfi VR?
VEISTU SVARIÐ?