Fréttablaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 66
heimili&hönnun6
● SÍÐUSTU FORVÖÐ Í FRANKFURT Sýningin Randscharf Design in
Island, sem opnuð var þann 21. september í Museum für Angewandte Kunst í
Frankfurt, hefur verið framlengd um tvær vikur, eða til 4. mars. Á sýningunni er
að finna yfir 100 vörur eftir 59 íslenska hönnuði, vöruhönnuði, fatahönnuði og
grafíska hönnuði.
Tilurð sýningarinnar varð í tengslum við heiðursþátttöku Íslands á Bókasýn-
ingunni í Frankfurt 2011. Útsendarar MAK safnsins komu
hingað til lands á HönnunarMarsinn 2011 og völdu
hönnuði til þátttöku. Í tengslum við sýninguna gaf safnið
einnig út veglega sýningarskrá upp á 203 blaðsíður
þar sem er að finna tugi ljósmynda af íslenskri hönnun,
viðtöl og umfjöllun um íslenska hönnuði. Sýningarskráin
er bæði á ensku og þýsku og er eitt ítarlegasta rit sem
gefið hefur verið út um íslenska hönnun. Sýningarskráin
er eitt veglegasta rit sem gefið hefur verið út um íslenska
hönnun. Forsíðuna prýðir hönnun Sruli Recht.
Yfir 15.000 gestir hafa sótt sýninguna frá því hún var
opnuð þann 21. september í fyrra. - rat
Íslensk hönnunarsýning framlengd
Arkitektarnir og hjónin Erla
Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi
Þorsteinsson, sem reka stofuna
Minarc í Los Angeles, hafa sett
á markað einingahús gerð með
umhverfisvænni og framsæk-
inni aðferð í byggingaframleiðslu
sem kallast Mnm.MOD. Húsin,
sem hafa nú verið á teikniborð-
inu í nokkur ár, hafa vakið athygli
fjölmiðla vestanhafs og þannig
segir bandaríska tímaritið Design
Bureau þau vera stórkostleg í nýj-
asta tölublaði sínu.
Erla og Tryggvi lýsa sjálf hug-
myndinni að baki húsunum með
eftirfarandi hætti: „Hún geng-
ur út að nýta hvert efni til fulln-
ustu og lágmarka neikvæð um-
hverfisáhrif, þar á meðal af völd-
um úrgangs,“ útskýra þau. „Við
sjáum verðmæti í einstökum efni-
viði og erum sífellt að leita leiða
til að nýta hann, jafnvel á nýstár-
legan máta, endurnýta og endur-
nýta enn frekar. Að okkar mati er
nýtni stór hluti af því að vera um-
hverfisvænn.“
Þannig er endurunnið og end-
urnýtanlegt byggingarefni notað
við framleiðslu húsanna. Hvert og
eitt er síðan sérhannað út frá stað-
setningu þannig að orka sem fell-
ur til, jarðhiti, sólar- og vindorka,
er nýtt. Þá vekur óvenjuleg bygg-
ingaraðferð athygli en húsin eru að
mestu gerð úr panel-einingum sem
eru settar saman eins og LEGO-
kubbar. Að sögn Erlu og Tryggva
fylgja þessu fyrirkomulagi ýmsir
kostir.
„Hægt er að setja húsin saman á
staðnum eða í verksmiðju og þannig
fylgjast vel með framleiðslunni og
fyrirbyggja að sóðaskapur myndist
á byggingastaðnum. Með þessu móti
gefst líka færi á að útfæra húsin
eftir smekk hvers og eins. Svo ekki
sé nú minnst á að jafn auðvelt er
að taka húsin niður og að setja þau
upp,“ benda þau á. „Einingahús eru
klárlega framtíðin.“
Hugmyndin að baki eininga-
húsunum er því í takt við þá um-
hverfisstefnu sem Erla og Tryggvi
hafa fengið lof fyrir á undanförn-
um árum. Þau hafa unnið til fjölda
verðlauna og viðurkenninga fyrir
umhverfisvæna hönnun undir
merkjum Minarc. Meðal annars
hafa þau hlotið International De-
sign Awards fyrir einbýlishús og
fengið R+D Awards fyrir vask úr
endurunnu gúmmíi, svo fátt eitt sé
nefnt. - rve
Með nýtni að leiðarljósi
● Umhverfisvæn og sjálfbær einingahús úr smiðju arkitektahjónanna Erlu Daggar Ingjalds-
dóttur og Tryggva Þorsteinssonar, hjá Minarc í Los Angeles, vekja athygli vestanhafs.
Umhverfisvæn sjónarmið, þar á meðal endurvinnsla og sjálfbærni, eru höfð að leiðarljósi við gerð húsa frá Minarc. MYNDIR/MINARC
Hjónin og arkitektarnir Tryggvi Þor-
steinsson og Erla Dögg Ingjaldsdóttir
hafa rekið arkitektastofuna Minarc í Los
Angeles við góðan orðstír um nokkra
ára skeið.
Lesendur okkar
eru á öllum aldri
með ólíka
sýn á lífið
– og við þjónum
þeim öllum
Allt sem þú þarft
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist
alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00