Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 34

Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 34
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR34 V ið byrjuðum að mála saman fyrir algjöra tilviljun,“ segja syst- urnar Sara og Svanhildur Vil- bergsdætur sem síðan á menn- ingarnótt 2010 hafa stundað „dúettmálun“ eins og þær kalla það og opna sýningu á myndum sínum í Listasafni ASÍ á Safnanótt, föstudaginn 10. febrúar. „Þannig var að ég var fengin til að mála Vestfjarða- hlutann á sjö metra löngu málverki sem Ferðamálastofa fékk listamenn til að mála fyrir framan áhorfendur. Einn listamaður frá hverjum landshluta átti að mála sinn landshluta á metra af verkinu og við fengum bara klukkutíma til þess að klára,“ útskýrir Sara. „Ég sá fram á að lenda í mikilli tíma- þröng og bað Svanhildi að koma og vera til staðar. Við máttum kalla áhorfendur til aðstoðar en ég hafði gert svo flókna skissu að ég varð að hafa einhvern með mér sem ég treysti. Svanhildur er náttúrulega mál- ari og veit um hvað málið snýst. Ég er vön að mála fyrir framan fólk, búin að vera að kenna lengi, og átti ekki von á að það myndi stressa mig, en af einhverjum ástæðum fór ég gjörsamlega á taugum. Svanhildur kemur hlaupandi í síðu tjullpilsi, það var nú menn- ingarnótt, og tekur bara stjórnina. Róar mig niður og er algjörlega með þetta á hreinu. Þetta var alveg ný upplifun þar sem ég er nú stóra systir og hef litið á það sem mitt hlut- verk að passa hana. En þarna snerist þetta alveg við .“ Eftir þessa reynslu ákváðu systurnar að prófa að mála saman, „bara í gamni“ eins og Svanhildur segir. „Við fórum að hittast á vinnustofu Söru uppi á Korpúlfsstöðum og það bara gerðist eitthvað. Við urðum algjör- lega helteknar af þessu. Fórum að hringjast á oft á dag og kasta á milli okkar hugmynd- um. Sáum til dæmis eitthvað í fréttunum sem kveikti hugmynd sem við síðan rædd- um fram og til baka og mótuðum í sam- einingu, eins og til dæmis myndirnar um Tiger Woods. Við reyndum að hittast eins oft og við gátum og gleymdum okkur alveg við að mála, máluðum stundum í tólf tíma í beit. Við erum mjög ólíkar manneskjur en þegar við stöndum saman við strigann þá er eins og verði til þriðja elementið samsett úr okkur báðum og við einhvern veginn renn- um saman. Það hefur aldrei komið upp sú staða að við séum ekki sammála um hvern- ig eitthvað í myndunum á að vera, sem er stórmerkilegt eins ólíkar og við erum. Einn plús einn er nefnilega meira en tveir í svona samvinnu.“ Sara er þekktur málari sem hefur haldið fjölda einkasýninga en minna hefur borið á Svanhildi, hvað kom til að hún hellti sér af krafti út í málverkið? „Ég var alltaf upp- tekin af því að vinna fyrir salti í grautinn og hugsaði með mér að ég gæti bara geymt að mála þangað til ég væri komin á ellilíf- eyri,“ segir Svanhildur. „Árið 2009 fékk ég svo krabbamein og var tekin út úr system- inu, hætti að vinna og var í geislameðferð. Þá skapaðist rými og andrúm til að endur- skoða afstöðuna og skilja að maður hefur ekki allan tíma í heimi til að sinna því sem skiptir mann máli. Þannig að stundum finnst mér að krabbameinið hafi verið guðs- gjöf til að beina mér á rétta braut.“ Þær systur eru engan veginn hættar að mála saman, fram undan er mánaðar vinnustofudvöl í Danmörku og hugmyndir- nar halda áfram að flæða. Hafa þær unnið eitthvað sín í hvoru lagi síðan þær byrjuðu að mála saman? „Nei, ekki neitt,“ segir Sara og hlær. „Það er eins og það hafi bara horfið úr huganum. Þessi samvinna er svo ótrúlega skemmtileg, gefandi og frjó og svo marg- ar hugmyndir sem við eigum eftir að mála að ég sé ekki fram á að við hættum þessu á næstunni.“ Á opnuninni á föstudaginn verða þær systur ekki einu fjölskyldumeðlimirnir í kastljósinu, þótt þær verði auðvitað í aðal- hlutverkum. Faðir þeirra, Vilberg Vilbergs- son rakari á Ísafirði, betur þekktur sem Villi Valli, og bróðir þeirra, Rúnar Vilbergs- son fagottleikari, munu leika dúetta á harm- onikku og fagott fyrir gesti. Einnig verður sýnt myndband af systrunum í aksjón við strigann og einu herbergi safnsins breytt í vinnustofu til að sýna andrúmsloftið sem verkin spretta úr. Sýningin stendur til 4. mars. SARA OG SVANHILDUR Einstaklega samtaka við strigann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SKEGGRÆTT OG SKIPULAGT Systurnar vinna myndirnar í sameiningu frá a til ö, kasta á milli sín hugmyndum, spinna og prjóna við og eru alltaf sammála um nálgunina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Einn plús einn er meira en tveir Systurnar Sara og Svanhildur Vilbergsdætur eru báðar málarar sem undanfarna 18 mánuði hafa stundað „dúettmálun“, málað saman stórar, litríkar, sjálfsævisögulegar myndir. Friðrika Benónýsdóttir forvitnaðist um hvernig sköpun þeirra systra verður til. Systurnar Sara og Svanhildur Vilbergsdætur hafa málað saman frá því síðsumars 2010. Þær kjósa að kalla hugmyndavinnuna og framkvæmdina „dúettmálun“ og hún fer þannig fram að þær vinna hugmyndir saman frá grunni, kasta þeim á milli sín, grípa og annaðhvort henda eða prjóna við. Vinnuferlið hefst á samningaviðræðum um myndbyggingu og útfærslu og síðan tekur við málunin sjálf þar sem systurnar standa frammi fyrir sama striganum og mála tví- hent, ef svo má að orði komast. Segja má að margar myndanna séu ævintýramyndir með sjálfsævisögulegu ívafi þar sem yrkisefnin eru áhugamál þeirra og persónuleg reynsla. Í málverkunum má sjá systurnar í aðstæðum sem eru dæmigerðar fyrir þær sjálfar og líf þeirra en einnig leita þær víða fanga svo sem í ævintýrum og um leið bregður fyrir þekktum minnum og myndum úr listasögunni.“ ■ ÚR SÝNINGARSKRÁ: MYNDI Í MYND Í MYND MYND: GUÐMUNDUR INGÓLFSSON Í GRÆNNI LAUTU MYND: GUÐMUNDUR INGÓLFSSON JESÚBÖRNIN MYND: GUÐMUNDUR INGÓLFSSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.