Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 11

Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 11
LAUGARDAGUR 4. febrúar 2012 11 STJÓRNSÝSLA Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra leggur til að fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli borgi um fimm þúsund krónur fyrir hverja bakgrunnsskoðun starfsmanna sinna. Talið er að fjöldi skoðana sé um 2.500 tals- ins sem skili um 12,5 milljónum króna á ársgrundvelli. Ráðherra mælti fyrir gjaldtökunni, sem felur í sér breytingu á lögum um loftferðir, á ríkisstjórnarfundi í gær. Veruleg fjölgun hefur orðið á útgáfu svokallaðra aðgangspassa fyrir starfsmenn Keflavíkur- flugvallar og áhafnir flugfélaga vegna hertra reglna innan EES. Til að fá slíkan passa þarf lög reglan á Suðurnesjum að kanna bak grunn við komandi starfsmanns og hefur þessi mikla fjölgun athugana það í för með sér að lögreglan hefur ekki lengur bolmagn til að sinna verkefninu nema því fylgi fjármagn. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er því lagt til að kostnaður greiðist af fyrir- tækjum fyrir hverja bakgrunns- skoðun. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir fyrirtækið fagna til- lögunni í ljósi þess að það finnist lausn á þeim töfum sem nú hafa orðið við útgáfu passanna. „Þessa vinnu þarf að manna og vinna kostar peninga,“ segir hann. - sv Innanríkisráðherra leggur til breytingar á lögum um bakgrunnsskoðanir starfsmanna: Gæti skilað inn 12,5 milljónum á ári LEIFSSTÖÐ Um 1.800 aðgangspassar voru gefnir út fyrir starfsfólk Keflavíkurflugvallar á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Akur eyri hefur ákært tvo Ólafs- firðinga, annan rétt tvítugan en hinn tæplega fertugan, fyrir að hafa í sam einingu stolið tveimur bílum á Siglu firði 15. október síðast liðinn og ekið þeim báðum út af veginum. Annar bíllinn valt út af veginum norðan Siglufjarðar en hinum var ekið út af við Skeiðsfossvirkjun. Mennirnir eru ákærðir fyrir nytjastuld en sá yngri, sem ók bílunum, er jafnframt ákærður fyrir umferðarlagabrot enda var hann undir áhrifum áfengis og kannabisefna og auk þess próflaus. - sh Tveir ákærðir fyrir norðan: Stálu tveimur bílum og óku báðum út af SÚ NÝUPPGÖTVAÐA Keimlík þeirri gamalkunnu. NORDICPHOTOS/AFP SPÁNN Viðgerðir á málverki af Monu Lisu, sem hefur árum saman verið geymt á Prado-lista- safninu í Madrid, leiddu í ljós að það var málað á sama tíma og hið fræga verk Leonardo da Vincis. Áður var talið að málverkið væri eftirgerð af verki da Vincis, en nú þykir ljóst að nemandi hans hafi málað mynd af sömu fyrirsætu um leið og meistarinn málaði sitt verk, og nemandinn þá haft vinnubrögð da Vincis til hliðsjónar. Þessi nýuppgötvaða „tvíbura- systir“ Monu Lisu verður fyrst sýnd opinberlega í Prado-safninu 21. febrúar. Myndin verður síðan til sýnis við hlið hins fræga verks da Vincis í Louvre-safninu í París frá 26. mars. - gb Uppgötvun í Madrid: Mona Lisa á tvíburasystur MENNTAMÁL Vaka bar sigurorð af Röskvu í kosningum til Stúdenta- ráðs Háskóla Íslands í vikunni. Listi Vöku hlaut 2.499 atkvæði, eða 55,86 prósent, og fimm menn kjörna. Röskva fékk 1975 atkvæði, eða 44,14 prósent, og fjóra menn kjörna. Auð atkvæði voru 333, eða 6,93 prósent. 4807 kusu, eða 31,62 prósent stúdenta. Í kosningum til háskólaráðs fékk listi Vöku 2.056 atkvæði og einn mann kjörinn. Röskva hlaut 1.763 atkvæði og sömuleiðis einn mann kjörinn. Þar var kosninga- þátttaka 27,4 prósent. Kosið var 1. og 2. febrúar. - sh Með hreinan meirihluta: Vaka vann í HÍ Lesið af mælum í snjó Orkubú Vestfjarða biður orku- notendur í Holtahverfi á Ísafirði að sjá til þess að aðgengi sé tryggt að orkumælum vegna aflesturs sem stendur yfir þessa dagana. „Víða er talsverður snjór fyrir kyndiklefum,“ segir á vef Orkubúsins og tiltekið að orkunotendum beri að sjá til þess að gott aðgengi sé að orkumælum. ORKUMÁL Palheiro golfvöllurinn í Madeira Allar nánari upplýsingar á www. vita.is/golflif Hotel Casa Valha do Palheiro Golfvöllurinn Palheiro er gullfallegur 18 holu vel hirtur völlur með dásamlegu útsýni yfir bæinn Funchal og hafið. Miðbær Funchal er aðeins í 10 mínútna akstursleið frá hótelinu en þar er iðandi mannlíf og góðir veitingastaðir. Hotel Casa Valha do Palheiro við völlinn er 5 stjarna lúxushótel með rólegu og yfirveguðu andrúmslofti. Veitingastaður hótelsins er þekktur fyrir einstaklega góðan mat. Verð frá 279.500 kr.* á mann í tvíbýli. + 15.000 Vildarpunkta Innifalið: Flug, flutningur á golfsetti, akstur, gisting í 10 nætur, morgunverður, 7 kvöldverðir, ótakmarkað golf með golfkerru, skattar og íslensk fararstjórn. *Verð án Vildarpunkta 289.500 kr. Ótakmarkað golf í 10 daga. Einstakt tækifæri sem enginn kylfingur má missa af! VITA er lífið VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is Beint leiguflug með Icelandair 10. - 20. apríl Lúxus golfferð til MADEIRA SPÁNN PORTÚGAL MAROKKÓ Kanaríeyjar MADEIRA ATL A N T S H A F
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.