Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 32

Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 32
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR32 ...og flokkaðu það svo Dragðu úr söfnun á rusli... LÍF Í SÁTT OG SAMLYNDI VIÐ UMHVERFIÐ 1. 2. 3. 4. 5. 6. Kauptu minna af óþarfa Besta leiðin til þess að minnka hjá sér ruslið er að kaupa minna af því. Verslaðu inn af meðvitund. Það getur hjálpað til við að hemja neysluna að muna að þú gengur á auðlindir jarðar í hvert sinn sem þú kaupir vöru. 7. 10. 11. 8. 9. Bæði Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustan bjóða endurvinnslutunnur sem einfalda alla heimaflokkun til muna. Mörg sveitarfélög hafa gert samninga við þau, en ekki öll og gengið er misjafnlega langt í flokkuninni. Því er afar misjafnt hversu langt á veg heimilin í landinu eru komin í flokkun. Leiðbeiningarnar hér að ofanverðu miðast við að endurvinnslutunnur séu ekki til staðar á heimilinu. Veldu fjölnota Hættu að nota einnota hluti á borð við plast- eða pappaglös og -diska, eldhúsþurrkur og plast- og álfilmur. Taktu taupoka með þér þegar þú ferð út í búð í stað þess að kaupa plastpoka í hvert sinn. Vertu nýtinn Nýttu það hráefni sem þú kaupir betur. Komdu til dæmis grænmeti sem er að verða lélegt í frystinn og notaðu það síðar í súpur eða pottrétti. Notaðu glerkrukkur utan af sultum og öðru sem geymsluílát í stað þess að henda þeim. Spáðu í umbúðirnar Umbúðir eru um 30 prósent af heimilissorpi. Kauptu frekar stærri pakkningar en minni og sniðgakktu vörur með óþarflega umfangsmiklar umbúðir. Þegar vörum er þannig pakkað getur þú hvort sem er verið viss um að vera að greiða fyrir umbúðir á kostnað gæða. Hafnaðu fjölpósti Límdu límmiða á lúguna þína sem sýnir að þú kærir þig ekki um fjöl- póst og afpantaðu reikningsyfirlit á pappír frá bankanum. Þú getur nálgast allar þessar upplýsingar á netinu. Gefðu dótið þitt Úrgangur eins er annars fjársjóður. Settu gömul föt í söfnunargáma Rauða krossins. Láttu húsgögn sem þú ætlar að skipta út renna til Góða hirðisins og láttu reyna á bland. is ef þú vilt selja eitthvað sem þú getur ekki ímyndað þér að neinn vilji kaupa. UMHVERFISVÆNIR LÍFSHÆTTIR: Flokkun sorps Þ að er mér mjög eðli- legt að flokka og mér finnst það í rauninni siðferðislega rétt að gera það. Rusl- ið hverfur ekki um leið og það er farið í tunnuna, það gufar ekki upp,“ segir Katrín Georgsdóttir, umhverfis fræðingur og mastersnemi í umhverfis- og auðlindafræði. Á hennar heimili er mestallt heimilis sorp flokkað og þykir það lítið tiltökumál. „Við erum langt frá því að vera fana- tískir flokkarar. Ég nenni ekki að standa í flóknum flokkunar- aðgerðum, svo ég reyni frekar að velja einfaldar umbúðir. Við gerum þetta eins og allir meðal- jónar gætu gert, hugsunarlaust og án mikillar fyrirhafnar.“ Framtíðin verður grænni Fjölskyldan flokka allt mögu legt, svo sem pappír, plast af ýmsu tagi, dósir og flöskur, gler krukkur og niður suðu dósir. Þá fara þau reglulega í gegnum fata skápana sína og fara með föt sem þau eru hætt að nota í söfnunargám á vegum Rauða krossins, en þá er að finna á öllum endurvinnslu- stöðvum Sorpu. Ruslið sem þau eru búin að flokka fara þau svo með í Sorpu á tveggja til þriggja vikna fresti. Katrín sér fyrir sér að í framtíðinni verði fólki umbunað fyrir að flokka. „Það er ástæða fyrir því að það eru tvö flokkunar- fyrirtæki í landinu. Það er af því rusl er verðmæti og þau fá peninga fyrir þau.“ Foreldrar Katrínar eru öflugir flokkarar svo hún er vön því að hugsa á umhverfis vænum nótum. Það var hins vegar eftir skipti- nema dvöl í Hollandi, þegar hún var sautján ára, sem hún fór að hugsa um grænu málin fyrir alvöru. „Þarna bjó ég hjá venju- legu fólk, sem var með safn haug og hænur úti í garði hjá sér og fóru mikið um á hjólum. Í Hollandi er allt flokkað, það eru ekki bara furðu fuglar sem gera það.“ Sorphirða er neysla Katrín bendir líka á að ef fleiri myndu flokka þyrfti ekki að losa sorptunnurnar eins oft, með til- heyrandi kostnaði fyrir samfé- lagið. „Í rauninni er sorphirða neysla. Það sorglega er að þeir sem eru fátækastir eru um leið umhverfisvænastir, því þeir nýta hráefni betur og kaupa minna. Þeir þurfa svo að taka þátt í að urða allt draslið frá hinum ríkari sem henda mestu.“ ÞRIGGJA VIKNA BIRGÐIR Katrín Georgsdóttir og dætur hennar, þær Regína og Mathilda, voru einmitt á leiðinni í Sorpu með birðir síðustu þriggja vikna þegar ljósmyndarinn heimsótti þær á dögunum. Siðferðisleg skylda að flokka Umhverfisverkfræðingurinn Katrín Georgsdóttir hefur haft umhverfisvernd að leiðarljósi frá því á unglingsárum. Hún sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttir frá því hvernig hægt er að vera umhverfisvænn og flokka sorp, hugsunarlaust og án fyrirhafnar. „Að urða óflokkað rusl er jafn fárán- legt og að urða peninga. Sorp er vara sem við sækjum til fólks og seljum áfram. Þannig að fólk er beinlínis að henda peningum ef það flokkar ekki,“ segir Jón Þórir Franzson, framkvæmdastjóri Íslenska gámafélagsins, annars þeirra tveggja fyrirtækja sem býður margvíslega þjónustu á sviði flokkunar á sorpi. Á annan tug sveitarfélaga kaupir þjónustu af Íslenska gámafélaginu, sem þýðir að íbúar þeirra flokka sitt rusl, ýmist í tvo eða þrjá úrgangs- flokka. Jón segir að 90 prósent íbúa þeirra sveitarfélaga séu ánægð með að fá tækifæri til að flokka, sam- kvæmt athugunum fyrirtækisins. Þar sem flokkað er í þrjá flokka fer 66 prósent heimilissorpsins í endurvinnslu. Þar sem flokkarnir eru tveir er endurvinnsluhlutfallið á milli 20 og 30 prósent. Í maí hefja Kópavogur og Mosfellsbær flokkun, þar sem öllum íbúum sveitar- félaganna verður gert að flokka í tvo flokka, almennt sorp annars vegar og pappír og pappa hins vegar. „Þetta er frábært skref. Þó skrefið sé ekki tekið til fulls,“ segir Jón. Í Reykjavík er enn ekki flokkað að frumkvæði sveitarfélagsins. Þó er þar talsverður hópur fólks sem gerir það að sjálfsdáðum. Jón segir að gróft áætlað borgi 6 til 8 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu fyrir endur- vinnslutunnu af einhverju tagi, ýmist frá Íslenska gámafélaginu, Gámaþjón- ustunni eða sveitarfélaginu sjálfu. Jón segir landsbyggðina bera höfuð og herðar yfir höfuðborgar- svæðið þegar kemur að sorphirðu. Honum virðist íbúar landsbyggðar- innar jafnframt hafa ólíkt hugarfar til flokkunar en höfuðborgarbúa. „Maður finnur að umhverfisvitundin er meiri á landsbyggðinni. Kannski er það nándin við sveitina sem gerir það að verkum,“ segir hann. Hann vonar að sveitarfélög höfðborgar- svæðisins fari að frumkvæði lands- byggðarinnar og skikki íbúa til flokk- unar, enda sé það í þeirra valdi. „Ég er löngu búinn að komast að því að fólk sem flokkar er stolt af sjálfu sér fyrir það. Pólitíkin er hrædd um að þetta sé íþyngjandi fyrir fólk og það vilji ekki taka þátt í þessu. En því er öfugt farið. Fólk fagnar tækifærinu.“ 6 TIL 8 ÞÚSUND HEIMILI BORGA FYRIR AÐ FLOKKA Í FLOKKUNARSTÖÐINNI Jón Þórir Franzson, framkvæmdastjóri Íslensku gámaþjónustunnar, segir fólk henda peningum með því að flokka ekki. Pappír Pappír sem fer í endurvinnslu er sendur til Svíþjóðar, þar sem hann er endurunninn í margvíslegar afurðir. Pappír má skila í bláa grenndargáma, sem er að finna í nálægð við flestöll heimili, eða á um 80 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Í þá fara dagblöð, tímarit, auglýsingapóstur, prentpappír, hreinar og tómar umbúðir úr sléttum pappa, fernur, morgunkornspakkar, eggjabakkar og pakkningar utan af matvælum. Plastumbúðir Plastumbúðir eru ýmist nýttar til orkuvinnslu eða til endurnýtingar, bæði hérlendis og erlendis. Plastumbúðir á borð við sjampóbrúsa, tómatsósuflöskur, plastpoka, ílát undan mjólkurdrykkjum, jógúrtdósir og ílát undan hreinsiefnum má skila í grænu grenndargámana sem er að finna á 80 stöðum dreift um höfuðborgarsvæðið. Lífrænar matarleifar Lífrænn úrgangur er 30 til 35 prósent af öllu heimilissorpi. Hægt er að leigja tunnu undir hann, bæði hjá Íslenska gámafélaginu og Gámaþjónustunni. Þeir sem hafa aðstöðu til geta hins vegar komið sér upp safnkassa utan dyra en þeir eru einfaldari í notkun en margir halda. Í vel einangruðum safnkassa helst hitastig nægilega hátt til þess að úrgangurinn breytist hratt og vel í moltu, sem svo má nota sem jarðvegsbæti í garða og í blómapotta. Glerkrukkur, álpappír, kertavax... Nú ertu næstum því fullkominn flokkari. En hvað með glerkrukkurnar sem hrannast upp? Eða lokin af þeim? Allan álpappírinn? Og hvað gerir maður við kertavax? Allir þessir hlutir og fjölmargir fleiri eiga sinn vísa stað á endurvinnslustöðvum. Best er að tileinka einum til tveimur dögum í mánuði í Sorpuferð og dunda sér við að sortera í gáma. Þú endar með að þurfa að fara út með almenna sorpið einu sinni í viku í það mesta. Drykkjarumbúðir Fjórtán krónur fást fyrir hverja plastflösku, glerflösku eða áldós sem skilað er til endurvinnslustöðva. Skilagjaldskyldar drykkjar- umbúðir, fyrir utan vínflöskur, eru þær sem hafa innihaldið vatn, með eða án kolsýru, eða vatnsblönduð efni til drykkjar. Endurvinnslan selur úr landi um 700 tonn af áli á ári og 1.800 tonn af plasti. Glerið er notað til landfyllingar og við undirbyggingu vega ásamt fleiru.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.