Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 42

Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 42
„Ég er að springa úr spenningi,“ segir hann. „Þetta verður ósvikin fjölskylduskemmtun með stór- kostlegum sjónhverfingum sem hafa aldrei sést á Íslandi, þeirra á meðal frægasta töfrabragð fyrr og síðar,“ segir Einar Mikael og mundar óhugnanlega sög sem hann hyggst nota til að saga kven- mannsbúk í fjóra búta. „Það tekur á taugarnar ef hnífs- blaðið fer ekki nógu hratt í gegn, en þetta er teflonhúðað blað svo sögunin ætti að taka fljótt af,“ útskýrir Einar Mikael, sem að eigin sögn lifir fyrir töfrabrögð. „Ég er Hogwarts-menntaður og vinn nú að meistaragráðu í töfra- fræðum við skólann,“ segir Einar Mikael sem byrjaði þrettán ára að fikta við töfrabrögð. „Það er erfitt að losna undan galdrabakteríunni ef hún bítur mann einu sinni. Ég legg metnað í töfrabrögð á heims- mælikvarða og þykir skemmtileg- ast að koma áhorfendum á óvart.“ Einar Mikael segir töfrabrögð- um best lýst sem tilfinningalegri upplifun sem heilinn nær ekki að tengja; þegar tíminn stöðvast í nokkrar sekúndur og allt getur gerst á meðan. „Sjálfur trúi ég á galdra sem lítil kraftaverk og get lofað að gestir munu taka andköf af undrun vegna upplifunar sinnar í kvöld.“ Einari til fulltingis eru meðal annars sérræktaðar og sérþjálf- aðar töfradúfur sem hann fékk að velja sér við inngöngu í Hog- warts-galdraskólann á milli Oxford og Cambridge á Englandi. „Víst var óraunverulegt að stunda nám við Hogwarts. Áður var skólinn ekki eins vinsæll og nú eftir að myndirnar um Harry Potter urðu til, en ég hefði viljað sjá drenginn taka fleiri spila- galdra. Harry stóð sig samt með prýði, þótt bíómyndastússið hafi tafið hann frá náminu,“ segir Einar Mikael og er hvergi af baki dottinn þegar kemur að góðgerðarmálum. „Ég mun styrkja góð málefni svo lengi sem þjóðin á um sárt að binda og gera allt sem í mínu valdi stendur til að bágstaddar fjölskyldur geti lifað mannsæm- andi lífi.“ Töfrasýning Einars Mikaels hefst í Austurbæ klukkan 20. Miðasala er við innganginn og á midi.is. Sjá nánar á tofrabrogd.is. thordis@frettabladid.is Framhald af forsíðu Einar Mikael með tvær af töfradúfunum sem hann fékk í Hogwarts. Á sýningunni í kvöld ætlar hann meðal annars að saga kvenmannsbúk í fjóra parta. Barnabókasetur – rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna verður stofnað við Háskólann á Akur- eyri í dag en af því tilefni verður hald- inn stofnfundur í Amtsbókasafninu klukkan 12. Viljayfirlýsing um stofnun Barnabóka- setursins var undirrituð í HA á degi íslenskrar tungu 16. nóvember síðast- liðinn en þörfin fyrir barnabókaset- ur sem einblínir á bóklestur og lestr- armenningu barna hefur lengi verið ljós. Ótal rannsóknir hafa sýnt minnk- andi áhuga íslenskra barna og ung- linga á bóklestri. „Áhugi barna á lestri hefur víðar dregist saman en hér- lendis en íslensk börn eru hins vegar undir meðaltali og standa sig í kjöl- farið verr í lesskilningi en börn í þeim löndum sem við oftast berum okkur saman við. Stofnendur setursins telja mikilvægt að stunda rannsóknir á þessu sviði. Þeir telja tímabært að nýta þær rannsóknir sem gerðar hafa verið til að fræða fólk og snúa vörn í sókn,“ segir í tilkynningu. Markmið setursins eru meðal annars að stunda rannsóknir og fræðslu um barna- bókmenntir og lestur á Íslandi og að miðla þekkingu og upplýsingum um barnabókmenntir Að Barnabókasetrinu standa, auk háskólans, Amtsbókasafnið og Minja- safnið á Akureyri. Þá á Rithöfunda- samband Íslands, Samtök barna- og unglingabókahöfunda, IBBY, Félag fagfólks á skólasöfnum og fleiri aðild að setrinu. Samhliða stofnfundin- um í dag opnar Katrín Jakobsdóttir, mennta og menningarmálaráðherra, sýninguna „Yndislestur æsku minnar“ sem er fyrsta verkefni setursins. Þar sýnir þekkt fólk eftirlætisbarnabókina sína og lýsir því hvers vegna hún er minnisstæð. Barnabókasetur stofnað á Akureyri Ótal rannsóknir hafa sýnt minnkandi áhuga barna og unglinga á bókalestri. Þótt gaman sé að lyfta sér upp í helgarfríinu er gott að hafa hugfast að börnum þykir oft langbest að vera heima um helgar, í rólegheitum og kærkomnum friði frá stífri dagskrá hvunndagsins. Hefur flú starfa› vi› pípulagnir og vilt ljúka námi í greininni? th or ri@ 12 og 3. is 4 26 .0 40 fiá gæti raunfærnimat veri› fyrir flig Raunfærnimat í pípulögnum mi›ar a› flví a› meta flekkingu og færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›. A› loknu raunfærnimati er markmi›i› a› flátttakendur fari í skóla og ljúki sveinsprófi. Inntökuskilyr›i í raunfærnimat eru 5 ára starfsaldur í greininni og 25 ára lífaldur. Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA fræ›slusetur í síma 590-6400. Nánari uppl‡singar er a› finna á: www.idan/radgjof.is. Einnig er hægt a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is Veri› er a› vinna samskonar verkefni í húsasmí›i, blikksmí›i, rennismí›i, stálsmí›i og vélvirkjun. Allur fatnaður á 2.990 kr. Skart á 40% afslætti. • Mikið úrval af peysum • Fatnaður, mikið á eldri konur stærðir small-3xl. • Klútar, slæður 500-1000 kr. • Hárskraut, buddur og ýmislegt smádót • Leggings 1990 kr. • 1500 kr. slá Laugardaginn 4. febrúar milli kl 13-17 Lyngháls 10. v/hliðina á Heiðrúnu ÁTVR. (þýsk-íslenska húsinu) LAGERBOMA Tösku og hanskabúðin Skólavörðustíg 7 101 Reykjavík Sími 551 5814 www.th.is AFSLÁTTUR AF ÖLLUM FERÐATÖSKUM Á 2 HJÓLUM 20% FERÐATÖSKUDAGAR í 3 daga frá fimmtudegi til laugardags Sölufulltrúar: Jóna María jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan brynjadan@365.is 512 5465 Snorri snorris@365.is 512 5457
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.