Fréttablaðið - 04.02.2012, Page 90
4. febrúar 2012 LAUGARDAGUR58
folk@frettabladid.is
Gildir eingöngu þegar forráðamaður kaupir máltíð. 1 máltíð á barn af barnamatseðli. Gildir eingöngu í sal.
lifsstill@frettabladid.is
58
SVÍARNIR SÝNA
HAUSTTÍSKUNA 2012
VÍSINDI Vísindamenn hafa þróað forrit sem getur
lesið hluta af hugsunum fólks, byggt á því hvaða
orð fólkið heyrir. Þetta þýðir að líf þeirra sem hafa
fengið heilablóðfall eða glíma við annars konar
veikindi sem hamla talfærni þeirra getur breyst
til muna.
Samkvæmt The Guardian gæti framtíðin litið
þannig út að örflögu verði komið fyrir í heila
fólks. Hún myndi túlka hugsanir þess með því
að senda frá sér orð eða setningar sem fólkið ímyndar sér. Fimmtán
sjúklingar tóku þátt í rannsókninni og voru niðurstöðurnar birtar í
tímaritinu Plos Biology.
Forrit sem les hugsanir
FILIPPA K:
Sænska merkið Filippa
K hefur átt miklum
vin sældum að fagna
og er þekkt fyrir að
upphefja einfald-
l eikann í fatnaði
sínum. Næsta haust
boðar Filippa K sterka
liti, bein buxnasnið
og háar klaufar.
CHEAP MONDAY:
Gallabuxnamerkið, sem er
hvað frægast fyrir níð-
þröngu buxurnar á bæði
kynin, boða breytingar með
haustinu en þá má finna
víðar buxur, axlabönd og
brjóstahaldara yfir boli.
MINI-
MARKET:
Þetta sænska
merki er þekkt
fyrir litadýrð
og hressandi
samsetningar.
Haustlínan
var engin
undantekning á
því og ef marka
má Minimarket
verður haustið
ekki jafn
drungalegt fyrir
fataskápinn og
tíðkast hefur.
ALTEWAI SAOME:
Merkið sem sló í gegn
á tískuvikunni ár. Með
sín einföldu snið og
litasamsetningar minnti
merkið örlítið á tískuhúsið
Celine. Haustsýning þeirra
var sú umtalaðasta meðal
tískuspekinga í ár.
ALLIR ELSKA VÖFFLUR sérstaklega söngkonan Nicky Minaj. Þegar
hún kemur fram á tónleikum eru vöfflur hluti af kröfu listanum, ásamt
límonaði og bakka af steiktum kjúklingi. Þó enga leggi.