Fréttablaðið - 10.11.2012, Síða 40
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR40
Þ
að var svo heitt í
Ungverjalandi að
ég varð að flytja í
burtu,“ segir Szil-
veszter kíminn og
hlær. Hann útskýrir
í kjölfarið að hann hafi ekki getað
fengið vinnu í heimabæ sínum sem
fimleikaþjálfari og það hafi orðið
til þess að þau hjónin hófu að skoða
þann möguleika að flytja annað.
Honum bauðst starf í Búdapest en
segir það ekki hafa heillað mikið
þar sem fjölskyldan hefði ekki
getað komið með honum, auk þess
sem hann sé ekki mikill aðdáandi
borgarinnar. Þegar honum barst
tilboð frá Gróttu þótti þeim hjón-
um hugmyndin um Ísland spenn-
andi. Þau pökkuðu því saman og
fluttu hingað í ágúst 2012, ásamt
dætrum sínum tveimur.
Hæfileikar á Íslandi
Szilveszter segir fimleikaheim-
inn á Íslandi um margt öðruvísi
en í Ungverjalandi. Hér séu til
að mynda fleiri börn sem stundi
íþróttina en þó séu fleiri sem fari
í keppnir og atvinnumennsku í
föðurlandi hans. „Hér eru mörg
börn sem koma í fimleika til að
hafa gaman. Það er alveg frábært.
Í Ungverjalandi er alltaf verið að
leita að þeim sem skara fram úr og
þau börn eru tekin og þeim kennt
áfram. Hin skipta engu máli,“
Ólympíumeistari kennir
hæfileikaríkum Íslendingum
Eftir að hafa stundað fimleika í 28 ár og unnið til allra helstu verðlauna í hringjum býr Szilveszter Csollány nú á Íslandi og
kennir fimleika. Tinna Rós Steinsdóttir settist niður með honum og spjallaði um verðlaunin, íþróttina og lífið á Íslandi.
HRINGIRNIR HANS ÁHALD Szilveszter ákvað snemma að einbeita sér að hringjunum því þeir lágu vel fyrir honum. Í gegnum tíðina hefur hann þó keppt í öllum sex greinunum í áhaldafimleikum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Merkustu verðlaun Szilveszter hlaut hann árið 2000 þegar hann landaði
Ólympíugullinu í hringjum. Hann hafði
lent í öðru sæti á Ólympíuleikunum 1996
og í því sjötta árið 1992. „1992 lenti ég
líka í sjöunda sæti í stökki. Það kom
mér mikið á óvart og ég sprakk eigin-
lega bara úr hlátri,“ segir Szilveszter
en hringirnir voru alltaf hans aðaláhald
þrátt fyrir að hann hafi keppt á öllum
sex áhöldunum í gegnum tíðina. „Fólk
hefur oft spurt mig af hverju ég hafi
valið hringina en það má eiginlega segja
að þeir hafi valið mig. Þeir lágu bara
best fyrir mér. Ég var 12 ára þegar ég
hélt mér í fyrsta skipti í kross. Þá áttaði
ég mig á því að ég væri kannski frekar
góður því venjulegir 12 ára krakkar
geta það ekki,“ rifjar Szilveszter upp,
en það er talin vera erfiðasta æfingin
í hringjunum. „Ég er með það mark-
mið að geta haldið mér í kross aftur í
lok vetrar,“ segir hann en formið hefur
greinilega slaknað ögn frá verðlaunaár-
unum, þó það sé ekki á honum að sjá.
Spurður um hver uppáhaldsverð-
launapeningurinn hans sé segist hann
verða að velja gullpeninginn sem hann
vann á heimsmeistaramótinu 2003 í
Ungverjalandi. „Það voru síðustu stóru
verðlaunin sem ég átti eftir að vinna.
Ég hafði fengið silfur á þessum mótum
í fimm ár á undan og í þetta skipti var
það haldið í heimalandinu mínu. Það
bjuggust allir við því að ég myndi vinna
því ég var Ólympíuhafi og á heimavelli.
Það var ólýsanleg tilfinning þegar ég
fékk peninginn um hálsinn á heimavelli.
Hann var síðasta púslið sem mig vant-
aði í myndina svo ég gat sagt skilið við
atvinnumannsferilinn hamingjusamur
og fullnægður,“ segir hann.
Hefur unnið gullverðlaun á öllum stærstu mótum heims
Gullið á Heimsmeistaramótinu 2003 uppáhaldsverðlaunapeningurinn. Hann var síðasta púslið í myndina.
Szilveszter er ekki bara að þjálfa börn í fimleikum hjá Gróttu, heldur full-
orðna líka. Fullorðinsfimleikar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi að
undanförnu en Szilveszter leggur mikið upp úr því að annast hvern ein-
stakling persónulega. „Ef ég er með fleiri en 10-12 í hóp er ég alltaf með
aukakennara með mér. Ég vil að fólk nái árangri og mæti í tíma til mín því
það græðir eitthvað á því,“ segir hann. Fimleikar eru mjög erfið íþrótt og
mikilvægt að fólk þekki líkama sinn vel. Það þarf mikinn líkamlegan styrk til
að gera æfingarnar og því mikilvægt að byrja á því að byggja líkamann upp
hægt og rólega. Szilveszter býður því upp á fjölbreyttar styrktaræfingar og
þrek nokkrum sinnum í viku.
Hann býður einnig upp á þá nýjung að vera með fullorðinstíma á
morgnana. „Ég veit alveg hvað fólk er upptekið og oft erfitt að komast frá
á kvöldin. Ég er alltaf laus á morgnana svo mér fannst sjálfsagt að prófa
að bjóða upp á tíma þá líka,“ segir hann. Hægt er að fá frekari upplýsingar
um tímana hjá honum með því að senda tölvupóst á netfangið csollany.
szilveszter@gmail.com.
FIMLEIKAÞJÁLFUN FYRIR FULLORÐNA
segir hann og bætir við að það sé í
kjölfarið möguleiki á að halda sér
og fjölskyldu sinni uppi sem fim-
leikaþjálfari hér á landi, en það sé
ekki möguleiki nema fyrir örfáa í
Ungverjalandi.
Að mati Szilveszters er mikla
fimleikahæfileika að finna í
íslenskum börnum. „Ég sá til að
mynda stelpurnar vinna Evrópu-
meistaramótið í hópfimleikum
á dögunum. Þær voru rosalega
góðar og heilluðu mig þvílíkt. Þó
hópfimleikar sé í raun önnur íþrótt
en áhaldafimleikar er þetta samt
gott dæmi um alla hæfileikana
sem leynast hérna,“ segir hann.
Hann hefur fulla trú á að Íslend-
ingar eigi eftir að eiga fleiri full-
trúa á Ólympíuleikunum í fimleik-
um á komandi árum, en enn sem
komið er er Rúnar Alexanders-
son sá eini sem hefur siglt undir
íslensku flaggi þar. Hann keppti
á bogahesti og náði sínum besta
Ólympíuárangri í Aþenu árið 2004
þegar hann lenti í 7. sæti. „Það
er ekkert grín að ala börn upp til
að verða Ólympíumeistarar. Tak-
mörkin til að komast á leikana til
að byrja með eru rosaleg. Til að
krakkar nái árangri er ekki nóg
að þeir mæti á æfingar og hafi
hæfileika heldur skiptir bakland-
ið gríðarlegu máli, foreldrarnir.
Þeir þurfa að vita hvenær þarf að
þrýsta á krakkana og hvenær þarf
bara að vera til staðar og styðja
þau,“ segir hann.
Kennsluaðferðirnar hér á Íslandi
eru ekki eins og í Ungverjalandi
þó Szilveszter taki enga afstöðu til
þess hvor leiðin virki betur. „Fim-
leikar eru þjóðaríþrótt í Ungverja-
landi og þar af leiðandi fleiri sem
lifa og hrærast í fimleikaheiminum
og þekkja íþróttina kannski betur.
Aðstaðan hér er samt mun betri,“
segir hann. Szilveszter kann vel
við sig á Íslandi og segir líklegt að
hann sé kominn til að vera. „Land-
ið er svo fallegt að ég er oft agn-
dofa þegar ég kem á nýja staði.
Áður en ég kom var búið að vara
mig við myrkrinu sem er alltaf hér
á veturna en það truflar mig ekki
neitt,“ segir hann. Menninguna í
Ungverjalandi segir hann vera mun
svipaðri íslenskri menningu en til
dæmis bandarískri eða kínverskri.
„Tungumálið er auðvitað gjörólíkt
en ég er farinn að kunna helstu
orðin tengd fimleikum og get leið-
beint fólki í fimleikasalnum. Það er
ágætis byrjun,“ segir hann og hlær.
Stórstjarna í Ungverjalandi
Hann segist ekki hafa orðið fyrir
miklu áreiti síðan hann kom til
Íslands, en margir hafi þekkt hann
í föðurlandinu. „Ég gat ekki farið út
að borða án þess að vera beðinn um
eiginhandaráritanir og mátti í raun
ekkert fara eða gera án þess að eiga
það á hættu að það kæmi í blöðun-
um daginn eftir. Ég átti orðið ekk-
ert einkalíf og það var orðið svo-
lítið þreytandi,“ segir hann. „Mér
fannst skemmtilegt að fara um og
gera heimskulega hluti áður en ég
varð þekkt andlit og vildi bara fá
að vera það áfram. Mér fannst ég
ekkert hafa breyst við það að vinna
þessi verðlaun. Þetta var bara vinn-
an mín og ég gerði hana vel, það er
allt og sumt,“ bætir Szilveszter við
hógvær.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 483 0300 og á www.hnlfi.is
Kyrrðardagar verða haldnir 15.-22. desember á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Á dagskrá er meðal annars: Samverustund - Hugleiðing - Bæn og íhugun í þögn
- Yoga - Qigong - Hlustunarhópar - Messa - Leikfimi - Slökunartímar - Útivist og
fræðslufundir. Innifalið er ljúffengur og hollur matur, aðgangur að sundlaugum,
baðhúsi og líkamsrækt.
Haraldur Erlendsson yfirlæknir og Pétur Pétursson guðfræði-
prófessor auk sérhæfðra leiðbeinenda og ráðgjafa á hinum
ýmsu sviðum sjá um Kyrrðardaga. Verð frá 9.900 kr. pr. dag.
Kyrrðardagar eru fyrir þá sem vilja sinna andlegri og líkam-
legri heilsu og fá skjól til að rækta sinn innri mann.
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Kyrrðardagar í Hveragerði