Fréttablaðið - 10.11.2012, Side 50

Fréttablaðið - 10.11.2012, Side 50
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR4 Nánari upplýsingar um starfið veitir Snorri Þór Sigurðsson, formaður námsbrautar í efnafræði, í síma 525 4801, netfang: snorrisi@hi.is. Sjá nánar um starfið á www.starfatorg.is og www.hi.is/laus_storf PIPA R \ TBW A SÍA 123216 Lektor við Raunvísindadeild Laust er til umsóknar starf lektors í ólífrænni efnafræði eða efnagreiningu við Raunvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Lektornum er ætlað að stunda rannsóknir á sviði ólífrænnar efnafræði eða efnagreiningar, leiðbeina nemendum í framhaldsnámi, kenna grunn- og framhaldsnámskeið á sérsviði sínu og koma að kennslu á fyrsta ári. Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í efnafræði. Auk þess er krafist góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum. Ætlast er til að viðkomandi stundi öflugar rannsóknir og styrki með því framhaldsnám á sínu sviði. Umsóknarfrestur er til 10. desember 2012. Lektor í ólífrænni efnafræði eða efnagreiningu HEILSUSTOFNUN NLFÍ GRÆNUMÖRK 10 : 810 HVERAGERÐI Næringarráðgjafi eða næringarfræðingur óskast til starfa Laus er til umsóknar staða næringarráðgjafa eða næringarfræðings við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Starfshlutfall er 40%. Staðan er laus frá 1. janúar 2013. Viðkomandi ber faglega ábyrgð, skipuleggur og stjórnar næringarmeðferð í samvinnu við lækna og yfirmatreiðslumeistara. Veitt eru einstaklingsviðtöl ásamt fræðslu fyrir hópa. Er leiðbeinandi fyrir starfsfólk varðandi næringarmeðferð, sérfæði og næringargildi matarins. Lögð er áhersla á: • Faglegan metnað, þekkingu og reynslu í faginu. • Hæfni í mannlegum samskiptum. . • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði. Nánari upplýsingar veitir Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri í síma 483 0300 Umsóknarfrestur er til 18. nóvember 2012. Umsóknir með ferilskrá sendist til: HNLFÍ - starfsmannastjóri, Grænumörk 10, 810 Hveragerði eða aldis@hnlfi.is. Öllum umsóknum verður svarað. Hagkaup óskar eftir að ráða sérfræðing í kjöti. Starfið er fólgið í almennum rekstri á kjötsvæði, samskiptum við birgja, starfsfólk verslana og viðskiptavini. HAGKAUP SPÖNGINNI Nauðsynlegt er að viðkomandi sé lipur í mannlegum samskiptum, þjónustulundaður, geti unnið sjálfstætt og hafi metnað fyrir því að ná árangri í starfi. Æskilegt er að viðkomandi sé matreiðslumaður eða matgæðingur og hafi menntun og/eða reynslu á því sviði. Umsóknum skal skilað inn á skrifstofu Hagkaups í Holtagörðum eða í tölvupósti á kolla@hagkaup.is. Allar nánari upplýsingar veitir Kolbrún verslunarstjóri í síma 563 5000. Hagkaup er smásölufyrirtæki, sem býður íslenskum heimilum breitt úrval af vörum til daglegra þarfa, jafnt í matvöru, sem fatnaði, húsbúnaði og vörum til tómstundaiðkunar. Hjá Hagkaup starfar samhentur hópur fólks, um 850 manns í 500 stöðugildum. Lausar stöður við Leirvogstunguskóla Auglýst er eftir almennu starfsfólki til starfa við Leirvogs- tunguskóla sem fyrst. Leirvogstunguskóli er um 40 barna leikskóli staðsettur í kyrrlátu íbúðarhverfi og stutt er í fjölbreytta náttúru. Upplýsingar um störfin veita skólastjórnendur Leirvogstunguskóla, Gyða Vigfúsdóttir í síma 8916609 og Guðrún Björg Pálsdóttir í síma 5868648. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og umsóknum skal skilað á netfangið leirvogstunguskoli@mos.is ásamt upplýsingum um menntun og reynslu. Kjör eru skv. samningi Mosfellsbæjar við Félag leik- skólakennara eða við Starfsmannafélag Mosfellsbæjar. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.