Fréttablaðið - 10.11.2012, Síða 50
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR4
Nánari upplýsingar um starfið veitir Snorri Þór Sigurðsson,
formaður námsbrautar í efnafræði, í síma 525 4801,
netfang: snorrisi@hi.is.
Sjá nánar um starfið á www.starfatorg.is og
www.hi.is/laus_storf
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
123216
Lektor við Raunvísindadeild
Laust er til umsóknar starf lektors í ólífrænni efnafræði eða efnagreiningu við Raunvísindadeild Verkfræði-
og náttúruvísindasviðs.
Lektornum er ætlað að stunda rannsóknir á sviði ólífrænnar efnafræði eða efnagreiningar, leiðbeina
nemendum í framhaldsnámi, kenna grunn- og framhaldsnámskeið á sérsviði sínu og koma að kennslu
á fyrsta ári.
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í efnafræði. Auk þess er krafist góðrar samstarfshæfni
og lipurðar í mannlegum samskiptum. Ætlast er til að viðkomandi stundi öflugar rannsóknir og styrki
með því framhaldsnám á sínu sviði. Umsóknarfrestur er til 10. desember 2012.
Lektor í ólífrænni efnafræði eða efnagreiningu
HEILSUSTOFNUN NLFÍ
GRÆNUMÖRK 10 : 810 HVERAGERÐI
Næringarráðgjafi eða
næringarfræðingur óskast til starfa
Laus er til umsóknar staða næringarráðgjafa eða
næringarfræðings við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Starfshlutfall er 40%. Staðan er laus frá 1. janúar 2013.
Viðkomandi ber faglega ábyrgð, skipuleggur og
stjórnar næringarmeðferð í samvinnu við lækna og
yfirmatreiðslumeistara. Veitt eru einstaklingsviðtöl
ásamt fræðslu fyrir hópa. Er leiðbeinandi fyrir starfsfólk
varðandi næringarmeðferð, sérfæði og næringargildi
matarins.
Lögð er áhersla á:
• Faglegan metnað, þekkingu og reynslu í faginu.
• Hæfni í mannlegum samskiptum. .
• Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
Nánari upplýsingar veitir Aldís Eyjólfsdóttir
starfsmannastjóri í síma 483 0300
Umsóknarfrestur er til 18. nóvember 2012. Umsóknir
með ferilskrá sendist til: HNLFÍ - starfsmannastjóri,
Grænumörk 10, 810 Hveragerði eða aldis@hnlfi.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Hagkaup óskar eftir að ráða sérfræðing í kjöti. Starfið er fólgið í almennum
rekstri á kjötsvæði, samskiptum við birgja, starfsfólk verslana og viðskiptavini.
HAGKAUP
SPÖNGINNI
Nauðsynlegt er að viðkomandi sé lipur í mannlegum samskiptum, þjónustulundaður,
geti unnið sjálfstætt og hafi metnað fyrir því að ná árangri í starfi. Æskilegt er að
viðkomandi sé matreiðslumaður eða matgæðingur og hafi menntun og/eða reynslu
á því sviði.
Umsóknum skal skilað inn á skrifstofu Hagkaups í Holtagörðum eða í tölvupósti
á kolla@hagkaup.is.
Allar nánari upplýsingar veitir Kolbrún verslunarstjóri í síma 563 5000.
Hagkaup er smásölufyrirtæki, sem býður
íslenskum heimilum breitt úrval af vörum til
daglegra þarfa, jafnt í matvöru, sem fatnaði,
húsbúnaði og vörum til tómstundaiðkunar.
Hjá Hagkaup starfar samhentur hópur fólks, um
850 manns í 500 stöðugildum.
Lausar stöður við
Leirvogstunguskóla
Auglýst er eftir almennu starfsfólki til starfa við Leirvogs-
tunguskóla sem fyrst.
Leirvogstunguskóli er um 40 barna leikskóli staðsettur í
kyrrlátu íbúðarhverfi og stutt er í fjölbreytta náttúru.
Upplýsingar um störfin veita skólastjórnendur
Leirvogstunguskóla, Gyða Vigfúsdóttir í síma 8916609
og Guðrún Björg Pálsdóttir í síma 5868648.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og umsóknum skal
skilað á netfangið leirvogstunguskoli@mos.is ásamt
upplýsingum um menntun og reynslu.
Kjör eru skv. samningi Mosfellsbæjar við Félag leik-
skólakennara eða við Starfsmannafélag Mosfellsbæjar.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin.