Fréttablaðið - 10.11.2012, Qupperneq 82
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR50
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hluttekningu og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæru móður, dóttur,
tengdamóður, systur og ömmu,
ERLU SIGURDÍSAR ARNARDÓTTUR
Þorláksgeisla 49.
Halla Karen Jónsdóttir Andri Már Óttarsson
Elín Klara Jónsdóttir Kolbeinn Lárus Sigurðsson
Hjálmar Gauti Jónsson
Halla Hjálmarsdóttir
Helga Eygló Guðjónsdóttir
Jóna Hlín Guðjónsdóttir
Embla Eir Oddsdóttir
Hekla Andradóttir
Ástkær sonur minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KÁRI S. VALGARÐSSON
húsasmíðameistari,
Smáragrund 21, Sauðárkróki,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 7. nóvember. Útförin auglýst
síðar.
Jakobína R. Valdimarsdóttir
Ragnar Þór Kárason Freyja Jónsdóttir
Linda Dröfn Káradóttir Ragnar Grönvold
Kári Arnar Kárason Kristín Inga Þrastardóttir
og barnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir og frændi,
ARON KRISTJÁN BIRGISSON
lést að heimili sínu sunnudaginn 4. nóvember.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 14. nóvember kl. 13.00. Blóm og
kransar eru vinsamlega afþökkuð. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Neistann,
styrktarfélag hjartveikra barna.
Anna María Ámundadóttir Birgir Sumarliðason
Lára Birgisdóttir Björn Ólafsson
Bríet Birgisdóttir Björn Gunnlaugsson
Rósa Björnsdóttir
Anna María Björnsdóttir
Amalía Björnsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður
og ömmu,
INGVELDAR EINARSDÓTTUR
Álfabergi 14, Hafnarfirði.
Trausti Sveinbjörnsson
Björn Traustason Helga Halldórsdóttir
Bjarni Þór Traustason Sigrún Ögn Sigurðardóttir
Ólafur Sveinn Traustason Eydís Eyþórsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR I. MAGNÚSSON
húsasmíðameistari,
Álfabrekku 9, Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 7. nóvember, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn
16. nóvember kl. 13.00.
Guðrún Sigurðardóttir
Sigurbjörg Guðmundsdóttir Sigurður Pálsson
Þórarinn Magnús Guðmundsson
Sigurlaug Guðmundsdóttir Níels Adolf Ársælsson
Hjördís Guðmundsdóttir
Birna Guðmundsdóttir Guðni Þór Sigurjónsson
Birgir Heiðar Guðmundsson Helena Björk Pálsdóttir
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu, dóttur og systur,
JÓNÍNU ÓLAFSDÓTTUR
Melás 11, Garðabæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 11E á
Landspítalanum ásamt heimahjúkrun Karitas
fyrir góða umönnun og einstaklega hlýtt viðmót.
Hafþór Árnason
Sigríður Kristín Hafþórsdóttir Magnús Már Magnússon
Hanna Björk Hafþórsdóttir Sveinbjörn Hólmgeirsson
Ólafur Árni Hafþórsson Hanna Sigrún Steinarsdóttir
Helga María Hafþórsdóttir
Sigríður Benediktsdóttir
Sigurvin Ólafsson Svandís Sigurðardóttir
Ríkey, Ísak, Bergur, Sara, Hafþór, Freyr og Aníta Máney.
Elskuleg systir mín og mágkona okkar,
INGE JENSDÓTTIR
Skeiðarvogi 37,
lést þriðjudaginn 6. nóvember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 16. nóvember klukkan 13.00.
Vagn Laursen Inge Laursen
Henni Laursen
Bryndís Þorsteinsdóttir
Þorsteinn Þorsteinsson Helga Hansdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÚLÍA GARÐARSDÓTTIR
Hjallalundi 20, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13.30.
Garðar Lárusson Guðrún Ragna Aðalsteinsdóttir
Karl Óli Lárusson Þórdís Þorkelsdóttir
Þráinn Lárusson Þurý Bára Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁGÚSTA SIGURÐARDÓTTIR
sem lést miðvikudaginn 7. nóvember
á dvalarheimilinu Víðihlíð í Grindavík,
verður jarðsungin frá Útskálakirkju í Garði
þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13.00. Þeim
sem vilja minnast Ágústu er bent á FAAS,
Félags aðstandenda Alzheimersjúklinga.
Guðmunda Kristjánsdóttir Páll Jóhann Pálsson
Helgi Kristjánsson Kristín Þ.H. Helgadóttir
Jóna Sigrún Hjartardóttir Ólafur Jónasson
Hjörtur Hjartarson Guðný Þórarinsdóttir
Ingibjörg Halla Hjartardóttir Heimir Bjarnason
Sigurður Hjartarson Mona Lundblad
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
VALDIMARS KRISTINSSONAR
Kirkjusandi 1, Reykjavík.
Valborg Stefánsdóttir
Kristinn Valdimarsson
Stefán Ingi Valdimarsson Elínborg Ingunn Ólafsdóttir
Þórarinn Stefánsson
Þýskur kafbátur sökkti flutninga-
skipinu Goðafossi þennan dag árið
1944. Um borð var þrjátíu manna
áhöfn og tólf farþegar. Þrettán skip-
verjar og tíu farþegar drukknuðu, þar
á meðal heil fjölskylda, hjón með þrjú
ung börn, það yngsta fimm mánaða.
Sautján skipverjar og tveir farþegar
komust af.
Skipið var að koma frá Bandaríkjun-
um og var statt úti af Garðskaga þegar
tundurskeytið hitti það miðskips bak-
borðsmegin. Stór rifa kom í síðuna svo
sjór fossaði inn. Þegar skutur Goða-
foss var kominn í sjóinn fóru menn að
kasta sér frá borði og þeir sem gátu
syntu að flekum. Ekki liðu nema sjö
mínútur þar til skipið var sokkið.
Atburðurinn varð laust eftir hádegi
en nokkru eftir miðnætti sigldi banda-
rískt björgunarskip að skipbrotsmönn-
um.
ÞETTA GERÐIST: 10. NÓVEMBER 1944
Goðafossi grandað við Garðskaga
Átta lið úr framhaldsskólum landsins
keppa til úrslita í hugvitssemi í dag í
Háskólanum í Reykjavík undir yfir-
skriftinni Boxið. Markmiðið með keppn-
inni er að vekja áhuga á tækni og störf-
um í iðnaði og gera verkviti hátt undir
höfði. Um þrautabraut er að ræða með
nokkrum stöðvum og fara liðin á milli
og leysa eina þraut á hverjum stað. Skól-
arnir sem keppa eru Verkmennta skólinn
á Akureyri, MA, MR, MS, Verslunar-
skólinn, Tækniskólinn, Fjölbrautaskóli
Suðurnesja og Iðnskólinn í Hafnarfirði.
„Keppnin reynir á hugvit þátttak-
enda, verklag og samvinnu,“ segir Rakel
Pálsdóttir hjá Samtökum iðnaðarins og
tekur fram að öllum framhaldsskólum
á Íslandi hafi gefist kostur á þátttöku,
sextán hafi sótt um og tekið þátt í for-
keppni. „Þeim voru send verkefni til að
leysa á 30 mínútum.“
Þrautirnar eru margvíslegar og
útbúnar af fyrirtækjum úr ólíkum
greinum iðnaðarins í samstarfi við
fræðimenn Háskólans í Reykjavík. Þau
eru ÍAV, Marel, Skema, Gæðabakstur,
Actavis, Járnsmiðja Óðins og Marorka.
Þetta er annað árið sem Boxið fer
fram. Rakel segir önnur fyrirtæki hafa
útbúið þrautirnar í fyrra og nefnir dæmi
um þraut sem fólst í að raða saman sex
spjöldum þannig að til yrði QR-kóði sem
hægt var að skanna inn í snjallsíma og
fá lykilorð sem gæfi aðgang að tölvuleik.
„Boxið tókst geysilega vel í fyrra,
keppendunum fannst það skemmtilegt
og við fundum fyrir enn meiri áhuga
núna svo við vonum að keppnin verði
árviss viðburður eins og Gettu betur.
Hún hefur alla burði til þess.“
Keppnin stendur frá klukkan 10 til
16.30 í dag og öllum er heimilt að fylgj-
ast með henni að sögn Rakelar. Loka-
spretturinn mun að öllum líkindum
vekja mesta spennu en liðin leysa síð-
ustu þrautirnar upp úr klukkan 15.
Úrslit verða svo tilkynnt og verðlaun
afhent við athöfn sem hefst klukkan
16.30 í Sólinni í HR. Tekið skal fram að
ekkert kostar inn. - gun
Gera verkviti hátt undir höfði
ALMANNATENGILL „Við vonum að keppnin verði árviss viðburður eins og Gettu betur,“ segir
Rakel Pálsdóttir hjá Samtökum Iðnaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SIGURVEGARAR 2011 Lið Verslunarskólans að leysa þraut fyrirtækisins
Mentors.
SAMVINNA Tækniskólinn að leysa þraut Össurar í Boxinu 2011.