Fréttablaðið - 10.11.2012, Síða 92
10. nóvember 2012 LAUGARDAGUR60
lifsstill@frettabladid.is
EGF-húðdroparnir frá Sif
Cosmetics hafa slegið í
gegn á erlendri grundu að
undanförnu og meðal ann-
ars fengið mikla athygli í
öllum helstu tískublöðum
Evrópu.
HEILSA „Þó að virkni dropanna tali
sínu máli skiptir saga vörunnar
og uppruni líka miklu máli. Fólk
erlendis er mjög áhugasamt um
það hvernig svo lítið fyrirtæki frá
svo litlu landi geti gert svo stóra
hluti á alþjóðavísu,“ segir Björn
Örvar, framkvæmdastjóri Sif
Cosmetics, um EGF húðdropana.
Heiti vörunnar, Húðdropar, er
í einkaeign Sif Cosmetics og er
það eina fyrirtækið í heiminum
sem framleiðir þá. „Þessi vara á
sér engan líka svo við þurftum að
finna nafn á hana þegar hún kom
á markað,“ segir Björn.
EGF Húðdroparnir hafa verið
að gera góða hluti á erlendri
grundu og eru nú til sölu í betri
snyrtivöruverslunum 25 landa um
alla Evrópu. Enn hefur fyrir tækið
þó ekki þurft að kaupa eina ein-
ustu auglýsingu erlendis. „Virkn-
in talar sínu máli og meðmæli
manna á milli er langbesta aug-
lýsingin. Þar að auki höfum við
fengið mikla umfjöllun í helstu
tískutímaritunum í Evrópu,“
segir Björn og nefnir sem dæmi
Cosmopolitan, Har-
pers baz aar, Elle
og Vougue. „Reg-
ina Stahl frá þýska
Vogue kom til að
mynda í heimsókn
til landsins fyrir
nokkru til að kynna
sér vöruna og ræddi
við Dorrit í leið-
inni,“ segir hann,
en forsetafrúin
Dorrit Moussai eff
hefur verið ófeim-
in við að lýsa yfir
dálæti sínu á dropunum og tók
þá til að mynda með sér í viðtal
til Mörthu Stewart í vor. Margar
heimsóknir hafa fylgt í kjölfarið
og segir Björn að meðaltali einn
til tvo erlenda blaðamenn koma
í hverjum mánuði núorðið til að
kynna sér starfsemina, húðdrop-
ana og Ísland.
Aðspurður hvað sé fram
undan hjá Sif Cosmetics
segir Björn útrás húðdrop-
anna vera rétt að byrja.
Þar að auki sé þriðja
vara þeirra væntanleg
snemma á næsta ári.
„Við erum enn þá lítið
fyrirtæki og tökum lítil
skref en við viljum fyrst
og fremst einbeita okkur
að vörum sem við teljum
að virki,“ segir hann.
tinnaros@frettabladid.is
Umfjöllun í helstu tísku-
tímaritum Evrópu
HAFA VAKIÐ ATHYGLI Húðdroparnir frá Sif Cosmetics hafa hlotið mikla athygli í helstu tískublöðum Evrópu að undanförnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NETIÐ „Það má segja að þetta sé eBay Íslands en með
smá snúningi því við bjóðum upp á mun meiri þjónustu,“
segir Kristján Örn Kristjánsson um vefinn Uppbods-
hus.is.
Vefurinn fór í loftið 1. október síðastliðinn og er
þegar orðinn feikivinsæll. Aðdáendur á Facebook eru
orðnir um 6.000 og um 500 vörur er að finna á síðunni.
„Þetta er búið að ganga framar væntingum svo ég get
ekki kvartað,“ segir Kristján. Eins og nafnið gefur til
kynna er um uppboðssíðu að ræða en með meiri þjón-
ustu en tíðkast. „Við bjóðum upp á að sækja vöruna og
sendast með hana. Við sendum líka í póstkröfu hvert á
land sem er og erum með umboðssölu,“ segir Kristján.
Hann telur sig því ekki vera í samkeppni við síðuna
Bland.is sem hefur verið stærsta sölusíða landsins
hingað til. „Ég er að bjóða upp á þjónustu fyrir fólk
sem vill losna við að þurfa að selja vöruna sína sjálft,“
segir Kristján.
„Þetta byrjaði árið 2008 þegar ég hafði loksins náð
að safna mér nægilegum peningum til að kaupa mér
nýtt innbú. Þá vildi ég selja það gamla og þó ég hafi
ekki verið að leitast eftir miklum peningum þá gekk
það frekar illa. Þegar ég var til dæmis að reyna að fá
fimmtung af verðmæti vörunnar bauð fólk samt bara
helminginn af því. Ég taldi því að Íslendingar væru
vel tilbúnir í íslenskan uppboðsvef,“ segir Kristján að
lokum. - trs
Íslenskur eBay með snúningi
ENGIN SAMKEPPNI Kristján Örn
segir Uppbodshus.is ekki vera í
samkeppni við Bland.is því vefurinn
þjónusti fólk sem vilji losna
við að þurfa að selja
vöruna sína sjálft.
MYND/EINKAEIGN
HÖNNUN Leikarinn Brad Pitt hefur
snúið sér að húsgagna hönnun en
hönnun leikarans verður frumsýnd
í næstu viku á vefsíðunni Pitt-poll-
aro.com. Það var húsgagnasmiður-
inn Frank Pollaro sem uppgötv-
aði þennan leynda hæfileika
leikarans er hann smíðaði
húsgögn inn á heimili Pitt og
Angelinu Jolie. Þar féll hann
fyrir óteljandi teikningum
Pitt af húsgögnum sem
hann geymdi í þykkri
skissubók. Í kjölfar-
ið bað Pollero, sem
er virtur innan hús-
gagnabransans vestanhafs, leikar-
ann um að ganga til liðs við sig og
búa til húsgagnalínu.
Pitt kveðst ánægður með
afraksturinn og þá sérstaklega
með hönnunarferlið, enda
nýttu þeir Pollaro tímann vel
til að fínpússa hönnunina.
„Við deilum miklum áhuga
á víni og drukkum mikið af
því saman.“
Gerist húsgagna-
hönnuður
GRÆNT TE aðstoðar meðal annars við að lækka kólesteról og halda blóð-
þrýstingnum niðri. Vert er að muna að vatn í grænt te á einungis að hita í 80 gráður og
pokinn á ekki að vera í vatninu nema eina mínútu því annars verður drykkurinn bitur.
EGF-húðdroparnir eru alfarið íslensk framleiðsla. Þeir sporna gegn öldrun
húðarinnar og vinna á þurri húð. „Galdurinn á bak við vöruna er virkt efni
sem kallast frumuvaki. Það eru náttúruleg prótín sem koma upprunalega frá
manninum en við framleiðum með erfðatækni í byggi,“ segir Björn Örvar,
framkvæmdastjóri Sif Cosmetics sem framleiðir dropana.
FRAMLEIDDIR MEÐ ERFÐATÆKNI
LEYNDUR HÆFILEIKI Brad Pitt
frumsýnir húsgagnalínu
úr smiðju sinni í næstu
viku.
Morð og missætti
Skáldsaga e. Guðbjörgu Tómasdóttur –
„Blekkingin grassérar. – Það gengur á
ýmsu þar til ...“