Fréttatíminn - 18.11.2011, Page 4
Aukin þekking - fjárfesting til framtíðar
Háskóli Íslands býður upp á úrval námskeiða
í viðskiptafræði með vinnu.
Dæmi um námskeið á vormisseri 2012:
- Verkefnastjórnun - Inngangur að fjárhagsbókhaldi - Stefnumótun fyrirtækja
- Markaðsfærsla þjónustu - Rekstrarstjórnun - Fjármálamarkaðir
- Alþjóðamarkaðsfræði og markaðsáætlanir - Stjórnun og skipulagsheildir
Skráðu þig á www.bsv.hi.is
Michelsen_255x50_B_0911.indd 1 28.09.11 15:10
Haraldur tók sig af
launaskrá OR
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnar-
formaður Orkuveitunnar, ákvað sjálfur
að færa fullt starfshlutfall sitt til fyrra
horfs og þiggja hálf mánaðarlaun í
apríl og maí. Og þá í kjölfarið að hætta
á almennri launaskrá fyrirtækisins en
þiggja þess í stað laun fyrir hefðbundin
stjórnarformennskustörf. Þetta kemur
fram í svari Jóns Gnarr borgarstjóra á
síðasta borgarráðsfundi við fyrirspurn
borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna og
Sjálfstæðisflokks frá því í september.
Ekkert sé athugavert við ákvörðunina
enda hafi fullt starf stjórnarformanns
átt að standa tímabundið. Við þessa
breytingu fóru laun Haraldar því úr 920
þúsund krónum á mánuði í 225 þúsund
krónur fyrir formennskuna. - gag
Tvíburaforeldrar fá
systkinaafslátt
Foreldrar tveggja tvíbura geta nú
hrósað happi. Kópavogsbær hefur
samþykkt að hvorir foreldrar um sig
fái 75 þúsund krónur á þessu ári í
meiri niðurgreiðslu gæslu dagfor-
eldra. Bærinn ætlar að niðurgreiða
kostnað hjá þeim sem eiga fleiri en
eitt barn hjá dagforeldrum, rétt eins
og gert er í dægradvöl grunnskólanna
og á leikskólum. Eftir breytinguna er
sem fyrr greitt 35 þúsund með fyrsta
barni, en 52.500 þúsund krónur séu
börnin tvö og 70 þúsund séu þau
þrjú. -gag
Heimsending matarbakki myglaði Hjá ellilífeyrisþega
Mamma átti bara að
éta það sem úti frýs
86 ára gömul kona í göngugrind missti af matarsendli og matnum sem fauk út á stétt.
Þetta er
ekki ketti
bjóðandi
sem á
að vera
fyrir eldri
borgara.
e r þetta matur? Átt þú þetta,“ sögðu krakkar sem fylgdust með 86 ára gam-alli móður Sigfúsar Ægis Árnasonar á
dögunum reyna að kraka upp matarsendingu
frá borgaryfirvöldum með stafnum sínum.
Heimsendur matur hennar hafði fokið af
þröskuldinum hjá henni út á gangstétt.
„Hún leggur sig á daginn. Þegar hún
vaknar dinglar þetta ýmist á hurðarhúninum
hjá henni eða liggur á jörðinni,“ segir Sigfús.
(Myndin sem fylgir fréttinni tók Sigfús.) „Já,
þá var þessu fleygt á stéttina hjá henni. Hún á
bara að éta það sem úti frýs og má hirða þetta
þegar henni hentar. En hún getur það ekki.
Hún er í göngugrind, rétt getur staulast um
íbúðina,“ segir hann.
Sigurður Einarsson, framkvæmdarstjóri
Félags eldri borgara, segir þónokkrar kvart-
anir hafa borist þar sem fólk kvarti yfir að
maturinn sem áður kom heitur fyrir hádegi
sé nú kaldur og hengdur á hurðarhúna á
misjöfnum tíma yfir daginn. Þá hafi kona í
Grjótaþorpinu kvartað því matnum hennar
var stolið.
Sigfús sendi myndina til borgaryfirvalda.
„Það gekk alveg fram af okkur þegar við
sáum hvernig umbúnaðurinn var. Þetta hefur
verið hengt á hurðarhúninn hjá henni síðan.“
Myndina setti Sigfús á Facebook þar sem
Fréttatíminn pikkaði hana upp.
„Eldra fólk borðar, held ég, yfirleitt í
hádeginu frekar en á kvöldin,“ segir Sigfús.
„En hún fær laugardagsfiskinn sinn milli
klukkan 15 til 16 á laugardögum. Það sem er
afhent þá borðar hún í hádegi í sunnudegi, þá
tveggja daga gamalt,“ segir Sigfús. „Þetta er
ekki ketti bjóðandi sem á að vera fyrir eldri
borgara.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Hollari og betri en fínpússa þarf ferlið
Tuttugu og fimm ára gamalt og úrelt fyrir-
komulag við matarsendingar Reykjavíkurborgar
til aldraðra og annarra var lagt niður þegar hætt
var að senda út „heitan“ mat og skipt í kaldan.
Þetta segir Bragi Guðmundsson, matreiðslu-
maður á velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
„Þetta var eins og svart/hvíta sjónvarpið – þótti
fínt einu sinni en ekki lengur. Nú er það komið í
lit og steríó,“ segir hann.
„Maturinn er miklu betri, hollari, ferskari og
hefur fjögurra daga geymsluþol,“ segir Bragi.
„Nú kemur hann í lokuðum pakkningum, sem
ekki var áður. Hann er kældur í stað þess að
reynt sé að flytja hann heitan fyrir hádegi til
400 manns. Það sem var heit var orðið volgt og
það sem átti að vera kalt líka,“ segir hann. „Við
viljum gera vel og bjóða fólki góða þjónustu.
Þess vegna skoðuðum við heimsendingarþjón-
ustu í Noregi, Svíþjóð,
Hollandi og Þýskalandi.
Þetta var niðurstaðan og
við erum ánægðir.“
Bragi segir að enn eigi
eftir að fínpússa ferlið.
Maturinn sem dreift
er á laugardögum sé
eldaður og kældur niður
á föstudögum. Reyna eigi
að stytta ferlið um einn
dag og dreifa tveimur
bökkum í einu.
Bragi viðurkennir að þeim hafi ekki flogið í
hug að fólk sem sjái á eftir sunnudagssteikinni
geymi laugardagsbakkann sem komi síðdegis til
hádegis næsta dags. „Þetta er góð ábending og
verður skoðuð.“ - gag
Svona mat fá um
400 heim til sín á
morgun.
Matarbakki móður Sigfúsar beið hennar á tröpp-
unum en hangir nú á húninum. Mynd/Sigfús
86 ára og styðst við göngugrindina ein heima.
Myndin er sviðsett. Mynd/gettyimages
Borgarbúar ráðstafi 300
milljónum í viðhald
Borgarbúar fá að hafa puttana í því hvar verður
ráðist í viðhald í hverfum þeirra á næsta ári.
Borgin boðar „samráðsferli“ sem stefnt er að
því að hefjist um miðjan nóvember. Þá er hægt
að senda hugmyndir inn í gegnum samráðsvef-
inn Betri Reykjavík. Borgin ætlar að verja 300
hundruð milljónum í smærri viðhaldsverkefni
í hverfum borgarinnar á nýju ári. Hvert hverfi
fær 7,5 milljónir en 225 milljónir króna skiptast
milli hverfanna eftir íbúafjölda. Stefnt er að því
að verkefnin verði ákveðin í samráði við íbúa.
Borgaryfirvöld ætla svo að leggjast yfir
hugmyndirnar og leyfa íbúum að kjósa í
gegnum Betri Reykjavík um þau verkefni sem
hverfisráðin stilla upp. - gag
Vinnuskólinn hækkar laun
Laun yngri unglinga í Vinnuskólanum hækka
um 18 krónur á tímann og laun þeirra
eldri um 24 krónur næsta sumar.
Launahækkunin nemur fmm
prósentum. Skólastjóri Vinnu-
skólans lagði hækkunina til og
borgarráð samþykkti. Sóley
Tómasdóttir, borgarfulltrúi,
náði ekki hljómgrunni meirihlut-
ans þegar hún mælti fyrir því að
launin yrðu hækkuð 8,3 prósent
þar sem laun hafi ekki hækkað í
Vinnuskólanum frá árinu 2008.
Laun á almennum vinnumarkaði
hafi hækkað um sem nemur
því hlutfalli. Hún vildi einnig
sjá hækkun í samræmi við
hækkun lægstu launa. - gag
veður föstudagur laugardagur sunnudagur
HæGlætisveður oG milt. riGninG
með köflum, en þó Að mestu þurrt
suðvestAn- oG sunnAnlAnds.
HöfuðborGArsvæðið: SKýJað MEð
KöFLuM OG ÞuRRT. HiTi uM 4 TiL 6°C.
Að mestu þurrt, en þó riGninG
frAmAn Af norðAn- oG AustAn-
lAnds. væGt frost í innsveitum, en
AnnArs milt í veðri
HöfuðborGArsvæðið: ÚRKOMuLauST
OG HæGuR ViNduR.
fer Að riGnA um mest Allt lAnd. þó
þurrt norðAustAntil. AllHvAss
vindur oG HlýnAr Aftur
HöfuðborGArsvæðið: VæTu- OG ViNda-
SaMT EN FREKaR HLýTT.
lítið lát á hausthlýindum
Þrátt fyrir gang lands- og heimsmála virðist
þetta einkennilega tíðarfar vera flestum efst
í huga. Margir eru alveg standandi bit á mildu
veðrinu dag eftir dag. Hægur vindur almennt
séð á landinu fram á laugardagskvöld veldur
því reyndar að sums staðar nær að frysta inn
til landsins. aðfararnótt sunnudagsins er síðan búist
við myndarlegu úrkomusvæði frá djúpri
lægð suðvesturundan. Á sunnudag
allhvasst og rigning víða á sunnudag
með suðlægum uppruna loftsins að
nýju. Fljótlega eftir helgi er að
sjá að svalara loft úr vestri nái
yfirhöndinni.
5
5 4
6
6
3
5 4
5
6
6
5 8
8
6
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
veðurvaktin ehf
Ráðgjafafyrirtæki í eigu
Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings. Veður-
vaktin býður upp á veður-
þjónustu fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og opinbera
aðila í ráðgjöf og úrvinnslu
flestu því sem viðkemur
veðri og veðurfari.
Veðurvaktin ehf
Eikarási 8, 210 Garðabæ
Sími: 857 1799
www.vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 18.-20. nóvember 2011