Heimilisritið - 01.06.1946, Qupperneq 4
Um kvikmyndir
og kvikmyndaleikara
Eru engir reykháíar í Reykjavík!
spurði UNA TURNER
Viðtal við GUNNAB RÚNAR ÓLAFSSON, sem
kynnzt hefur persónulega ýmsum filmstjörnum
og starfar nú að íslenzkri kvikmyndagerð.
HUGSUM okkur, að við fengj-
'Uim að dvelja í Hollywood í hálft
ár, fengjum að fylgjast með upp-
töku kvikmynda hjá stærsta kvik-
myndafélaginu og verða málkunn-
ug mörgum frægustu filmstjörnun-
um. Hvílíkt ævintýri!
Og þó er þetta einmitt það, sem
einn- ungur íslendingur, Gunnar
Rúnar Ólafsson, gerði í vetur.
Hann hefur haft nær ótakmarkað-
an aðgang að kvikmyndabóli M-G-
M-félagsins og kynnst Judy Gar-
land, Lana Turner, John Garfield,
Van Johnson og fjölda mörgum
öðrum af vinsælustu manneskjum
jarðarinnar — kvikmyndaleikurun-
um.
Gunnar Rúnar er nýlega kominn
heim og farinn að vinna hjá kvik-
myndafélaginu „Saga“. Og þar sem
það er alveg einstakt tækifæri að
2
geta talað við íslenzkan mann,
sem heifur af eigin raun kynnst líf-
inu í Hollywood og á að sjá um
kvikmyndatökur hérna, birtum við
hér eftirfarandi -samtal við þennan
unga kvikmyndatökumann.
Innlendar kvikmyndatökur
— Þið í „Sögu“ hafið mikið í
hyggju, er það ekki?
„Jú, nokkuð svo. Sören Sörens-
son hefur þegar tekið tvær fræðslu-
kvikmyndir, sem við erum • að
ganga frá. Önnur nefnist „Dagur
í Norðfirði“, en hin sýnir bygginga-
hætti hér, nú á tímum. Hefur hún
nú að undanförnu verið sýnd á
byggingasýningunni í húsi Stýri-
mannaskólans.
Annars ætlum við okkur að taka
ýmsar landkynningarmyndir og
fræðslumyndir m. a. af atvinnu-
HEIMILISRITIÐ