Heimilisritið - 01.06.1946, Blaðsíða 9
leikur 8 eða 9 ára gamall drengur,
sem Butch Jenkins er nefndur og
sem spáð er gífurlegum vinsældum.
Hann er mikill ærslabelgur og
hrekkjalómur, og það var of't gam-
an að honum, þegar hann átti að
leika, en hræddur er ég um að Ieik-
stjóranum hafi stundum þótt nóg
um“.
— Voru leikararnir ekki við-
kunnanlegasta fólk?
„Jú, jú, og það er ofmikið gert
■úr því, þegar sagt er, að sumar leik-
konurnar séu miklu ljótari, en þeg-
ar þær sjást í kvikmyndum.
Mér fannst Katerina Hepburn
bæði glæsilegri og persónulegri, en
hún virtist að jafnaði vera í kvik-
myndum.
Þegar ég kynntist Judy Garland
fyrst, var ég fyrirfram fremur lítið
hrifinn af henni, en hún er ákaf-
lega hlýleg og indæl stúlka í við-
kynningu og það er mjög gott að
vinna með henni.
Margarete litla O’ Brien er ynd-
islegur krakki, sem allir elska, og
þó er hún svo eðlileg og uppgerð-
arlaus að unun er að.
Ingrid Bergiman nýtur alveg frá-
, Judy Gar-
land, söng-
og leikkon-
an, sem allir
elska.
'bæra vinsælda, bæði þeirra sem
kynnast heni^i og þeirra sem sjá
hana leika.
Robert Walker er ósköp látlaus
piltur, rétt eins og hver annar og
er líklega ekki sízt vinsæll þess
vegna. Sama er að segja um átrún-
aðargoðið Van Johnson, sem talin
er fyrirmynd ungra og heilbrigðra
Bandaríkjamanna, að öðru leyti en
því, að hann lítur ekki á kvenfólk.
Greer Garson nýtur mikillar
virðingar enda mikið í hana spunn-
ið. Hún og Clark Gable voru ný-
búin að leika í kvikmyndinni
„Adventure“, þegar ég kom, en
það er fyrsta kvikmyndin, sem
Gable leikur í, síðan hann losnaði
úr herþjónustu. Sú mynd hefur
ekki hlotið sérlega góða dóma“.
/
Lana Tumer er mislynd
— Hvernig samdist með þeim
John Garfield og Lana Turner?
„Rétt í meðallagi. Lana er hálf-
gerður gallagripur, eins og fleiri
stjörnur, þegar kvikmyndatakan
fer fram. Hún er þá mislynd og til-
tektarsöm úr hófi fram. Það voru
satt að segja margir hissa á þ\'í, að
hún skyldi ekki setja sig upp á
móti því, að ég væri viðstaddur,
þegar hún var að leika. Yfirleitt
máttu þá ekki vera nærstaddir
aðrir en nauðsyn krafði.
Lana hafði verið eitthvað lasin
og mj'ndatökunni var því flýtt.
John Garfield var venjulega ró-
HEIMILISRITIÐ
7