Heimilisritið - 01.06.1946, Page 21
um vínsins, og þeir vilja finna þau
sjálfir. Eldra fólk drekkur af því,
að um stundar sakir gefur vínið
því þægilega tilfinningu. Það leys-
ir hörmungarnar og gefur því
meira frjálsræði í framkomu. Fá-
um er það ljóst, að drykkjuskap-
ur er framstigull, skæður sjúk-
dómur, og mjög 'hættulegur, af því
að sjúklingurinn sér sjaldan hin
skaðlegu áhrif víns á sjálfum sér.
Vínið lamar dómgreindina. Sá,
sem rausar heimskulega og með
háum rómi, er mikill málsnillingur
í sínum eigin eyrum. Gortarinn
trúir í raun sannri því sem hann
er að segja frá, og feimni maður-
inn, sem venjulega fer allur hjá
sér í samkvæmum, álítur sjálfan
sig „hrók alls fagnaðar“.
En það góða, sem vínið kann
að gera að verkum, er aðeins
„stundargaman“, og í flestum til-
fellum veldur það ólyndi eftir á.
Flestir hinir svokölluðu kostir
vínsins, eru raunverulega hið gagn-
stæða.
Áfengi er EKKI örvandi, þvert
á móti er það deyfandi. Sjálfshöml-
ur drykkjumannsins döfna; hann
verður málgefnari og fjörugri en
venjulega, misskilur þessa breyt-
ingu, sem vínið orsakar og finnst
það vera örvun.
Áfengi er EKKI fæða. Ómeng-
aður vínandi er algjörlega snauður
vítamínum, og málmefnum, hefur
þess vegna ekkert næringargildi.
Ennfremur ber að athuga það, að
tíð áfengisneyzla deyfir matar-
lyst, svo að vanadrykkjumaðurinn
neytir oft lítils matar.
Áfengi er EKKI lyf. Fram til
þessa hefur áfengi mikið verið not-
að sem læ’knislyf. Það hefur samt
sem áður aldrei gert annað en að
veita sjúklingnum stundar þæg-
indi. Sú almenna trú, að það muni
lækna kvef, slöngubit eða tauga-
áfall — eða hvað annað sem er —
er ekki rétt. í sumum tilfellum
kemur það jafnvel í veg fyrir bata.
Líkamleg áhrif áfengis
Menn þola misjafnlega mikið á-
fengismagn. Þess vegna er það, að
sumir geta drukkið töluvert af á-
fengi, en haga sér eins og þeir
hefðu fengið lítið sem ekkert að
drekka. Aðrir veTÖa, eftir eitt glas,
sljóir, háværir og geta með engu
móti gengið án þess að slaga.
Stöðugt áfengisneyzla veldur
veikindum, bæði á sál og líkama.
Tíu af hundraði þeirra, sem fluttir
eru í sjúkrahús vegna ofdrykkju-
skapar, eru orðnir andlega sjúkir
af völdum áfengisins, og um það
bil fimmtíu af hundraði að meira
eða minna leyti vanheilir líkam-
lega, einkum af völdum fjörefna-
skorts.
Hin andlegu áhrif
Yfirleitt rýrir áifengi alltaf sjálf-
stjórn þess er neytir. Hann er ekki
fær um að nota dómgreind sína
HEIMILISRITIÐ
19