Heimilisritið - 01.06.1946, Blaðsíða 34
Hversu listrænn ertu f
SMEKKVÍS maður, sem gæddur er næmu fegurðarskyni, hefur
venjulega skilning á grundv'allarreglum listarinnar, þótt hann geri sér
ef til Vill ekki ljóst í hverju þær eru fólgnar. Hann hefur meðfædda
dómgreind á jafnvægi, stíl, hrynjandi og litavali.
Skoðaðu myndirnar hérna á þessari opnu. Fjórar þeirra eru Ijósmyndir
af frægum málverkum, en hinar fjórar eru sömu mvndirnar, lítið eitt
beyttar til hins verra. Þegar þú hefur athugað þær og borið saman
skaltu segja til um, hverjar þeirra eru óbreyttar: mynd 1 eða mynd 2,
mynd 3 eða mynd 4 o. s. frv., og fá þannig prófstein á listrænan smekk
þinn. Gerðu um leið stutta grein fyrir vali þínu milli hverra tveggja
mynda — hvers vegna þú telur aðra listrænni en hina.
Þegar þú hefur skrifað hjá þér númer myndanna, sem þú velur,
skaitu fletta upp á bls. 64, þar muntu komast að raun um hverjar
frummyndirnar eru og — hversu listrænn þú ert.
12 34 56 78
mynd 1.
mynd 2.
32
HEIMILISRITIÐ