Heimilisritið - 01.06.1946, Síða 43
manni sínum, að undanskildum
þjóni og þjónustustúlku. Hann
vissi að í næsta húsi hafði verið
að hef jast boðsveizla og að Veri-
ty Copley og Rob sonur hennar
og Blakie læknir höfðu komið
þaðan. Hann spurðist fyrir um
gluggadymar. Forstofudymar
voru alltaf tvílæstar, en hvað
um gluggadyrnar? Hafði nokk-
ur aflæst þeim?
Marcia furðaði sig á því,
hvemig hann gæti vitað svona
mikið. Hann hlaut að hafa talað
við Ancill, sem ekki var í her-
berginu með þeim hinum. Emma
Beek var þar*ekki heldur. Hvers
vegna?
„Opnuðuð þér gluggadymar,
frú Godden?“
Marciu varð hverft við. Augna-
lokin á Jacob Wait vora svo
sofandaleg, að hún hafði ekki
gert sér grein fyrir því, að hann
beindi spurningu sinni til henn-
ar,fyrr en hann sagði „frúGodd-
en“. Hafði hún opnað glugga-
dymar?
„Eigið þér við núna í kvöld?“
„í kvöld — í dag, yfirleitt síð-
an þeim var síðast aflæst. Ancill
kveðst hafa aflæst þeim í gær-
kveldi eins og venjulega og ekki
opnað þær síðan.“
„Ég — ég á svo bágt með að
hugsa. Já! Já, ég opnaði þær
víst með lykli í morgun, þegar
ég — gekk út í garðinn“.
HEIMILISRITIÐ
„Hvenær var það?“
„í kringum ellefu, held ég.
Fyrir hádegi“.
„Hafa þær verið ólæstar síð-
an?“
„Ég — ég veit það ekki“.
„En þér Beatrice Godden?“
Beatrice sat bein í baki og
þungbrýn á litlum frönskum
armstól og fingraði við kjólfell-
ingar á hnjám sér. Hún leit ekki
upp.
„Ég get ekkert um það sagt.
Ég man það hreint ekki“.
„Hugsið yður um“.
„Það er vont að muna svo
hversdagslega smámuni“.
„Enginn kom inn um forstofu-
dymar og enginn inn um bak-
dymar. Þjónustufólkið hefði
vitað það. Þá er aðeins um að
ræða gluggadymar. Það skipt-
ir miklu máli, hvort þær hafa
verið ólæstar. Það hefur að
minnsta kosti ekki verið brotist
inn í húsið. Ef þær hafa verið
opnar frá því um morguninn
kann einhver að hafa komið
inn um þær. Annars hefur ef til
vill verið opnað fyrir einhverj-
um“. Hann leit til Beatrice, eða
svo virtist, og sagði þreytulega:
„Þér komuð inn rétt á eftir að
Marcia Godden sá líkið, var það
ekki?“
„Jú, jú, auðvitað“. Beatrice
hætti að fitla við kjólfellingam-
ar og bætti við fremur fljót-
41