Heimilisritið - 01.06.1946, Side 49
auga. Verty var ósköp sakleysis-
leg og hjálparvana að sjá, og
hann hélt áfram að skrifa.
„Hvað svo?“
„Við skulum sjá. Stella kom
til mín út af einhverju sem fór
aflaga — Rob kallaði og sagðist
verða tilbúinn eftir augnablik.
Það fór að líta út fyrir, að ekki
yrði hægt að byrja borðhaldið á
réttum tíma, svo ég fór inníeld-
hús til að biðja matreiðslukon-
una um að halda matnum heit-
um. Það hefur verið þá sem
Beatrice ákvað að fara að gá að
Marciu Godden. En hvað um
það, ég tafðist og þegar ég kom
fram aftur voru allir famir og
Stella sagði mér ósköp æst, að
eitthvað alvarlegt hefði komið
fyrir Ivan Godden. Litlu síðar
fór ég á eftir hinum. Þetta er
allt“.
Davies hélt áfram að skrifa og
sagði svo ákveðinn í bragði:
„Frú Godden“.
„Já“. Hún varð að vera róleg;
svara aðeins því sem hann
spurði.
Blakie læknir kom hljóðlega
inn. Þegar hann opnaði sáust
snöggvast einkennisbúnir lög-
regluþjónar í anddyrinu. Davies
sagði: „Hvenær sáuð þér mann
yðar síðast á lífi?“
„Klukkuna hefur vantað
svona kortér í sjö. Ég man það,
af því að ég hafði orðið lítinn
tíma til að skipta um föt og
snyrta mig, áður en ég færi til
Verity Copleys“.
„Og hvenær komuð þér að
honum dauðum?“
„Um það bil fimm mínútur
yfir hálfátta. Ég leit á úrið áður
en ég fór niður“.
„Það em fimmtíu mínútur.
Sáuð þér eða heyrðuð nokkuð
grunsamlegt á þeim tíma? Urð-
uð þér vör við nokkum umgang
eða því líkt?“
„Nei“.
„Sáuð þér Beatrice Godden
fara út?“
„Hún kom inn í herbergið
mitt um leið og hún fór. Ég
heyrði hana opna og loka úti-
dyrunum strax á eftir“.
„Þér hafið þá verið alein í
húsinu í kortér, þar til þér —
komuð að manni yðar dauðum“.
„Ekki — ekki veit ég það.
Ancill og eldhússtúlkan voru
hér líka“.
„Hvemig vitið þér það?“
„Ég gerði ráð fyrir því. Það
var engin ástæða til að halda að
þau hefðu farið“.
Rob greip allt í einu fram í:
„Heyrið þér mig, eigum við að
skilja þetta sem opinbera yfir-
heyrslu og málsrannsókn?“
„Ég hef sagt, að við þyrftum
að glöggva okkur á því, hvenær
morðið var framið“.
Framh. í næsta hefti.
HEIMILISRITIÐ
47