Heimilisritið - 01.06.1946, Side 59
ystu Þýzkalands og Ítalíu um „ný-
skipun“ Evrópu. í annarri grein
segir: „Þýzkaland og Ítalía viður-
kenna forystu Japana í því að
koma nýrri skipun á um hinar
miklu víðáttur Austur-Asíu“.
Berlín, J. október 1940.
Hitler og Mussolini hittust í
Brennerskarði laust fyrir hádegi í
dag. Ekkert var vikið að umræðu-
efninu í hinni opinberu tilkvnningu
í dag, aðeins sagt, að Keitel hafi
verið viðstaddur.
Ég hygg, að nokkur ástæða sé til
að ætla, að svo róttækur ágrein-
ingur hafi verið á milli öxulríkj-
anna, að Hitler hafi talið ráðlegt
að fara sjálfur til að tala við
Mussolini.
Berlín, 5. október 1940.
Mér barst áreiðanleg fregn um
það í dag, að byljótt hefði verið á
Brennerfundinum, og Mussolini
hefði haft hátt. ítalirnir hérna
höfðu sögu á lof*i, sem líklega er
efasamur sannleikur en sýntp þelið
í bræðralagi Þjóðverja og ítala.
Þeir segja, að Mussolini hafi spurt
Hitler í gær, hvers vegna hann hafi
hætt við fyrirætlun sína um að
vaða inn í England. Hitler hikstaði
við og svaraði svo með annarri
spurningu:
„Hvers vegna hefur þú, Duce,
ekki getað hertekið Möltu, þennan
eyjarácekil? Ég er mjÖ^ óánægður
yfir því“.
Þá segja ítalir að Mussolini hafi
hleypt brúnum og svarað:
„Gleymdu því ekki, foringi, að
Malta er líka eyja“.
Fimmta vikan í hinni miklu loft-
sókn Þjóðverja gegn Bretlandi
hófst í dag. Og Þjóðverjar eru æf-
ir yfir því, að Bretar vilja ekki
játa sig sigraða. Heiftin við Chur-
c’hill sýður upp úr þeim fyrir það,
að hann segir brezku þjóðinni, að
hún geti enn gert sér sigurvonir, í
stað þess að teygja frá sér skank-
ana og gefast upp, eins og allir
aðrir andstæðingar Hitlers hafa
gert. Þjóðverjar skilja ekki skap-
heila og þrekmikla þjóð.
Berlín, 15. olctóber 1940.
Ég er búinn að taka nokkurn
veginn fastar ákvarðanir um ýmis
einkamál mín. Eina leiðin, sem nú
er sæmilega fær frá Evrópu til
Ameríku, er um Sviss, Suður-
Prakkland, Spán og Portúgal til
Lissabon, en hún er nú orðin eina
borgin á meginlandi Evrópu sem
hefur samgöngur við Amerfku sjó-
leiðis og loftleiðis. Ef í harðbakka
slær, er alltaf hægt að sleppa í
gegnum Rússland og Síberíu, en
ekki er glæsilegt að leggja í þá
ferð með tveggja ára barn. Það
verður hallæri í Sviss í vetur. Þó
að Tess kjósi heldur að vera um
kyrrt, hefur hún þó fallist á að
hverfa lieim í lok þessa mánaðar.
Ég fer heim í rdesember. Ég býst
HEIMILISRITIÐ
57