Heimilisritið - 01.07.1948, Page 36
stað til Khartum í viðskiptaer-
indum“, sagði Fawcet.
Mannering sá blik í augum
bláa páfuglsins, sem hann hefði
getað svarið, að hugsaði á sömu
leið' og hann sjálfur.
Hljómsveitin byrjaði nýtt
danslag, og þau gengu öll þrjú
inn í danssalinn. Blái páfuglinn
tók undir handíegg manns síns.
„Farðu og fáðu þér einn
bridgehring, vinur minn, ég hef
nóga dansherra“.
„Já, ef til vill geri ég það“,
sagði maður hennar.
Andartaki síðar hélt Manner-
ing bláa páfuglinum í örmum sér,
hann sá Fawcet. ganga inn í
spilasalinn.
„Svo þér hafið nóg af herr-
um“, sagði hann og þrýsti grönn-
um iíkama hennar að sér.
Hún þrýsti hönd hans, en
svaraði honum ekki. Blá augu
hennar horfðu dreymandi út í
salinn, munnurinn var hálf op-
inn. Hún dansaði ljómandi vel.
Tlnuirinn úr hári hennar ieið fvr-
ir vit honum. Atta mánuðir án
þess að.sjá hvíta konu, og finna
svo þetta!
Lagið var á enda, og þau
stóðu hlið við hlið eitt andar-
tak.
,.Ó, nú byrja þeir annað lag“.
Hún var aftur í örmum hans og
þau svifu um salinn.
Fyrir Georg Mannering, var
hann eins og draumur, þessi
dans, ógleymanlegur, himnéskur
draumur.
„Viljið þér dansa • við mig
næsta dans líka?“ spurði hann
er þau gengu út á svalirnar.
„Já“, svaraði hún. „Segið mér,
er ekki gaman að vera hér, eftir
alla þessa mánuði í Súdan?“
„Jú, sannarlega“. Þau settust
á bekk undir háum pálmakrón-
um.
„Herbert fer á morgun; hve-
nær farið þér aftur?“
„Ekki fyrr en þrítugasta og
fyrsta“, svaraði hann.
Það var of skuggsýnt undir
krónunum til þess, að hann sæi
í augu henni, ef til vill var það
einungis ímyndun, eða hverfull
tunglsgeisli á andliti liennar, en
honum sýndist bregða fyrir bliki
í augum hennar.
Þau dönsuðu enn þrjá dansa.
Að þeim loknum vissi Georg
Mannering ýmislegt um Tris
Fawect. Hún var tuttugu og eins
árs; hafði verið gift í sex mánuði;
áður hafði hún átt heima í enskri
borg, maður hennar var verzl-
unarfélagi föðiir hennar og var
kominn til Egiptalands til að
stjóma bómullarfyrirtæki. Þetta
var í fyrsta sinn, sem hún fór úr
landi, og hún var reiðubúin að
sætta sig við hlutskipti sitt. Hún
þekkti ekki ástina eða hættur
hennar.
34
HEIMILISRITIÐ