Heimilisritið - 01.10.1949, Blaðsíða 7
Sem mjúkir, seyðandi tónar
ómar næturævintýrið innra með
ungá manninum. Hann reikar
um, sem í leið'slu undir laufþaki
trjánna. Fuglarnir syngja uppi
yfir honum, marglit sumarblóm-
in bera ferskan og sætan ilm, en
vfir öllu glóir sólin eins og um-
hyggjusöm móðir alheimsins og
vekur börnum jarðarinnar un-
aðs- og sælukennd.
Já, sjálf jörðin hefur breytt
um svip. Allt er orðið bjartara
og hlýrra; himinninn blárri og
heiðari, blómin fegurri og grasið
grænna.
Og allt er þetta vegna hennar,
drottningar ævintýrsins. TTpp
frá þessu skal allt vera óður til
hennar. Hver hugsun lians og
athöfn, skal vera henni helg-
uð.
ÁÐUR en hann varir er hann
kominn að húsinu, sem hún býr
í; stendur úti fyrir glugganum
hennar og horfir á lítinn læ-
virkja, er situr í gluggakistunni
og syngur.
Ungi maðurinn veit, að' þarna
fyrir innan rúðurnar sefur hún
nú, drottning ævintýrsins. Hann
sér hana fyrir sér, hvernig hún
muni hvíla á rósóttum svæfli
umvafin hvítu sængurlíni. Allt
umhverfið — allt í návist henn-
ar, er sem tákn hreinleikans og
fégurðarinnar.
Og nú slær stóra turnklukkan
á húsinu beint á móti, löng
hljómmikil slög — einnig þau,
eru þáttur í hljómkviðunni
miklu, — hljómkviðunni um
ástina.
EN ALLIR dagar eiga kvöld
— hamingjúdagarnir líka.
Sem svipvindur hefur sjúk-
dómsvofan komið, og hrifið
ungu stúlkuna í arma sína.
Nepjan í forsælunni við sýrenu-
tréð, hefur gengið of nærri við-
kvæmu brjósti drottningar æv-
intýrsins. Ilún vaknar með sáru
taki; hörundið er svitaþvalt og
augun gljáandi af sótthita.
Ðýru verði þarf hún að gjalda
gleðistundir gærdagsins, því að
nokkrum morgnum síðar, þá er
ungi maðurinn kemur að vitja
hennar, hefur dauðinn orðið á
undan honum á fund hennar.
A þeirri stundu myrkvaðist
veröldin.
I gluggakistunni situr lævirk-
inn litli, hnípinn og söngvana,
þennan morgun, og stóra turn-
klukkan slær langdregin og
þunglyndisleg högg, og nú bland-
ast ldjómar hennar hljómkviðu
sorgarinnar.
Og ungi maðurinn gengur
burtu dapur í bragði, en hann
dylur þó harm sinn, unz hann
kemur á kyrrlátan stað — á
belckinn undir sýrenutrénu. Þar
HEIMILISRITIÐ
5