Heimilisritið - 01.12.1951, Blaðsíða 41
Moyne var hinn settlegasti.
„Það hlutverk getur gula blóm-
ið ekki leikið alveg strax, með
því að hún verður fyrst að leika
hlutverk krókódílsins. Það er
almennt viðurkennt, að hún vaði
gegnum fenið og gefi frá sér
hljóð áþekkt vatnahestsfolaldi
— auðvitað undir leikstjórn föð-
ur síns.
„Fjórði þáttur endar, að sögn
Eyans, með vmsu móti. Vinsæl-
asti endirinn, fyrir alla hlutað-
eigendur, er samt sá, sem sýnir
Wing Moon frelsa góða herrann
úr stólnum. Og ekkert sýningar-
atriði í skopóperu eða venju-
legri revýu, getur jafnazt á við
það, sem sýnir góða herrann af-
lienda kven-krókódílnum álit-
lega peningafúlgu. Yfirleitt hlýt-
ur þú að viðurkenna, að þetta
kvikmyndadrama eigi vart sinn
líka“, lauk Moyne máli sínu.
Denham svaraði ekki. Hann
gekk aftur eftir þilfarinu og
þurrkaði af sér svitann.
ENDIR
STÓRI MUNURINN
Skáldið og fréttaritarinn Burnet Hershey segir þessa sögu af full-
trúasveit frá amerískum verkamönnum, er þeim var sýnd Skodaverk-
smiðjan í Tjekkoslovakíu, eftir að kommúnistar náðu þar völdum.
Ameríkumennirnir spurðu: „Hver á þessi verksmiðjuhús?"
„Við, fólkið, eigum þau,“ svöruðu fylgdarmennirmr.
„Hver á vélarnar?" spurðu gestirnir.
„Við, fólkið, eigum þær,“ svöruðu hinir.
„Hver fær hagnaðinn?" spurðu þeir amerísku.
„Við, fólkið, fáurn hann,“ var svarað.
Þá veittu Ameríkumennirnir atliygli þremur stórum bílum, sem stóðu
hjá verksmiðjunni, og spurðu, hver ætti þá.
„Einn þeirra á hervarnarfulltrúinn, annan á forseti verkamannaráðsins
og þann þriðja á fulltrúi frá Moskvu, sem er hér staddur," sögðu fylgd-
armennirnir hinum amerísku gestum.
Síðar kom fulltrúasveit frá Skodaverksmiðjunum til Bandaríkjanna,
til þess að kynnast verksmiðum þar. Amerískur verkalýðsleiðtogj sýndi
þeim Fordverksmiðjurnar.
„Hver á verksmiðjuhúsin?“ spurðu gestirnir.
„Ford á þau,“ svaraði sá bandaríski.
„Hver á vélarnar?" spurðu Tékkarnir, og fengu það svar, að Ford
ætti þær.
„Hver fær hagnaðinn?" spurðu þeir frá Skodaverksmiðjunni, og þeim
var svarað, að Ford fengi hann.
Þá sáu gestirnir 30.000 bíla, sem stóðu skammt frá verksmiðjunni, og
spurðu: „Hver á alla þessa bíla?“
Ameríkumaðurinn brosti og sagði: „Við, fólkið, eigum þessa bíla.“
DESEMBER, 1951
39