Heimilisritið - 01.12.1951, Page 66
castle, og ef vélstjórinn er gras-
æta, fráskilinn og nauðasköllótt-
ur, og skipshöfnin er samansett
af átta þjóðernum — og hafi
loks kostað 4 miljónir að smíða
skipið, og sonur útgerðarmanns-
ins hafi tekið stúdentspróf árið
áður en eldsvoði varð um borð,
en sama ár og föðursystir út-
gerðarmannsins var lögð á spí-
tala og skorin upp við botn-
langabólgu, hve gamall er þá
skipstjórinn?"
Áheyrendur voru ekki alveg
með á nótunum. Sumir flissuðu,
en flestir sátu þegjandi og
horfðu á mig með sauðarsvip,
sem sagði þetta: „Veiztu nú ekki
þetta?“ og reyndu með því að
dylja sína eigin fullkomnu fá-
vizku. Ég var kaldur og heilinn
í mér starfaði af fullum krafti.
Rólegur bað ég hann að endur-
taka spurninguna, aðallega til
að fá staðfestingu á igrun mín-
um. Stjórnandinn endurtók
hana hlæjandi, en eftir fyrstu
setninguna greip ég fram í.
„Skipstjórinn er 38 ára,“ sagði
ég.
„Hvernig vitið þér það?“
spurði hann.
„Ég ætti nú að vita minn eig-
in aldur,“ svaraði ég.
Og þar með var ég ofaná. Ég
stóð þarna með 27 súkkulaði-
pakka og naut aðdáunar og öf-
undar áheyrenda. Að því ég bezt
fékk séð, sat Randi með ljóm-
andi augu og fannst hún mið-
depill samkvæmisins.
„Keppnin heldur áfram,“
sagði stjórnandinn, — „og nú
skulum við snúa okkur að tón-
listinni. Ef þér viljið hætta yð-
ar 27 pökkum, legg ég 50 á móti
um það, að þér getið ekki sagt
mér nafnið á þessari tónsmíð og
höfundi hennar.“
„Áfram með smjörið,“ sagði
ég án þess að hugsa mig um.
Þegar um tónlist var að ræða,
hafði ég litla trú á, að ég yrði
rekinn á stampinn. Útvarps-
hljómsveitin lék líka jafn al-
þekkt lag og „Blómavalsinn“ úr
Hnetubrjótnum eftir Tsjai-
kovski. Ég hefði getað tekið það
sem móðgun, en það gerir maður
ekki þegar svona stendur á, og
þarna stóð ég með 77 súkkulaði-
pakka.
„Ágætt!“ hrópaði stjórnand-
inn. „Ef þér óskið, getið þér
gjarnan tekið vinninginn með
yður og farið nú. En ég vil ekki
láta hjá líða að vekja athygli
yðar á, að þér eigið kost á að
vinna ennþá meir. Ég er til með
að veðja einu sinni enn, og
nú legg ég 150 pakka móti yð-
ar 77. Hvað segið þér um það?“
Kliðurinn frá salnum barst
upp til okkar. Fólk ræddi hvísl-
andi um, hvað ég ætti að gera.
Ég beindi augunum til Randi,
64
HEIMILISRITIÐ