Nýjar kvöldvökur - 01.10.1947, Side 59
N. Kv.
AUGLÝSINGAR
XIII
Ný stórmerkileg bók:
Hallgrímur Pétursson
Ævi hans og starf
Eftir dr. theol. Magnús Jónsson prófessor
I.—II. bindi
Rit þetta er árangur margra ára athugana og rannsókna á ævi og starfi Hallgríms Péturssonar, og
er í raun og veru fyrsta tilraun, sem gerð hefir verið á síðari tímum til þess að rita rækilega ævisögu lians
og skýra skáldskap hans svo nokkru nemi. Er ritið geysifjölþætt og yfirgripsmikið, eins og eftirfarandi
ágrip af efnisyfirlitinu ber með sér.
I. bindi: Formáli. Ljósaskipti, Dimma öld, Geisli aldarinnar. Ævisaga Hallgrims Pétúrssonar: Ætt og
uppruni, Fæddur Hallgrímur Pétursson, Æskuárin Iieima, Utanför og dvöl í Danmörku, Guðríður kemur
til sögunnar, Prestur á Hvalsnesi, í Saurbæ á Hvalf jarðarströnd, Efri ár og ævilok. — Um Hallgrim Pét-
ursson: Útlit og ytri hætlir, Skapferli, Hjónaband og heimilislíf, Efni Hallgríms og fleira af högum hans,
Lærdómur, Trúarlíf og prestsstarf. Rimnaskdldskapur Hallgrims Péturssonar: Rímur af Lykla-Pétri og
Magellónu, Rímur af Króka-Ref, Rímur af Flórens og Leó. — Skdldskapur Hallgrims Péturssonar: Lausa-
kveðskapur, Tækifæriskvæði og tækifærisvísur, Ljóð ort af ákveðnu tilefni, Andlátssálmarnir, Heimsádeil-
ur, Gamankvæði, Fræðsluljóð, Samstæðurnar Gaman og Alvara, Ljóðaþýðingar, Útgáfur Hallgrímsljóða.
II. bindi: Passiusdlmarnir: Tilefni Passíusálmanna, Hve lengi var Hallgrímur með Passíusálmana?,
Hvernig eru Passíusálmarnir til otðnir?, Passíusálmarnir athugaðir, Niðurstöður, Handrit Passíusálmanna,
Útgáfur Passíusálmanna. — Rit Hallgrims i óbundnu mdli: Diarium, Útgáfur af Diarium, Eintal, Viðbót
við Eintal, Útgáfur Eintals, Smárit eftir Hallgrím Pétursson. — Rilferill Hallgrims Péturssonar. Lokaþátt-
ur. — Þá eru. í II. bindi 28 myndir, Skrá um verk Hailgríms í bókinni, Upphöf allra versa í Passíusálm-
unum, Nafnaskrá og fleiri skrár.
Ritið er rúmar 700 blaðsíður í stóru broti, prentað á úrvalspappír, skreytt myndum og tvílitum upp-
hafsstöfum og bundið í vandað skinnband.
Vafalítið cr þetta merkasta bók ársins og jafnframt einhver hin fallegasta.
íslenzkir guðfrœðingar 1847-1947
1. bindi: Síra Benjamín ICristjánsson: Saga Prestaskólans og Guöfrreöideildar Hdsltóla íslahds.
Þetta er mjög ýtarleg lýsing á aðdraganda að stofnun Prestaskólans — sem þá þótti stórt fyrirtæki —
starfi hans í meir en 60 ár og starfi guöfræðideildarinnar eftir að Háskóli íslands tók til starfa. Myndir
fylgja af kennurunum, sem slarfað hafa að guðfræðikennslunni þetta tímabil, svo og prestaskólahúsun-
um í Hafnarstræti og Austurstræti í Reykjavxk.
2. bindi: Björn Magnússon, dósent: Kandidatatal 1S47—19-I7. Viðbædr: Kandidatar frd Kauþmanna-
hafnarhdskóla.
Hér er um að ræða geysifróðlegt og merkilegt rit, sem kostað hefur höfund þess óhemju vinnu og
fyrirhöfn, og ómissandi vcrður hverjum þcim fræðimanni, sem fxest við ættfræði og peisónusögu. —
Myndir fylgja æviágripum allflestra guðfræðinganna, — alls yfir 400 myndir.
Það fer ekki hjá því, að íslenzltir guöfrœðingar 1847—1947 verði talið eitthvert merkasta rit sinnar
tegundar, cr út hefir komið hér á landi, enda ekkert verið til sparað af höfundanna og útgefandans
hálfu, til þess að svo mætti verða. Ritið cr 727 bls. í Skírnisbroti, með hátt á 5. hundrað myndum, en
kostar þó ekki nema 100 krónur.
Fæst hjá bóksölum og útgefanda, sem sendir það gegn póstkröfu hvert á land sem er.
H.F. LEIFTUR — Reykjavík — Sími 7554 — Pósthólf 732